Íbúaráð Öræfum
13. fundur
13. nóvember 2026
kl.
13:30
-
15:00
í Hofgarði
Nefndarmenn
Jón Ágúst Guðmundsson
formaður
Matthildur U Þorsteinsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Skólasamfélagið í Öræfum
Undanfarið hefur farið fram umræða um núverandi stöðu í skólamálum í Öræfum og hvernig best sé að hlúa að og byggja upp skólastarf í Hofgarði til framtíðar.
Íbúaráð telur mikilvægt að leita lausna til að hlúa allt í senn að félagslegum þörfum barna í Öræfum, vellíðan starfsfólks og að styrkja skólahald í Grunnskólanum í Hofgarði.
2.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027-2031
Lagt fram skjla frá formanni íbúaráðs um ýmis áherslu mál í tengslum við fjárhagsáætlun 2027. Þau lúta að skólamálum, uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, byggingu fjölnotahúss, verkefni er lúta að þróun byggðarinnar, björgunarmiðstöð, þjóðgarðsmálum og sorpmálum.
Íbúaráð leggur áherslu á að málum sem fram koma í skjalinu verði ýtt úr vör með markvissum og tímasettum hætti. Jafnframt bendir íbúaráð á að sveitarfélagið hafi ekki farið í nýbyggingu á mannvirkjum síðan Hofgarður var tekin í notkun á 9. áratug síðustu aldar.
3.
Klifurveggur í Hofgarði
Óskað hefur verið eftir að setja upp klifurvegg í salnum í Hofgarði.
Íbúarráð leggur áherslu á að áður en veggurinn verði settur upp eða salnum breytt að þá verði leitað eftir afstöðu íbúa til hugmyndarinnar.