Fara í efni

Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar

11. fundur
2. febrúar 2026 kl. 13:00 - 15:30
í Holti
Nefndarmenn
Ari Hannesson
Bjarni Haukur Bjarnason
Erla Rún Guðmundsdóttir
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
Málsnúmer 202510014
Á síðasta fundi íbúaráðs var óskað eftir að ræða aftur við formann umhverfis- og skipulagsnefndar um sorpmál í dreifbýlinu, með sérstaka áherslu á flokkun og hrægáma.
Íbúaráð þakkar formanni umhverfis- og skipulagsnefndar fyrir gott samtal. Íbúaráð telur að lokað flokkunarsvæði þar sem hægt er að losa endurvinnanlegt sorp, eins og raftæki, timbur, dekk o.s.fr. í hverri sveit sem íbúar hafa aðgang að geti orðið til bóta í flokkun og sorplosun. Íbúaráð fagnar því að verið sé að vinna að úrbótum í þessum málaflokk og leggur áherslu á mikilvægi þess að þjónustan þjóni þörfum íbúa bæði í dreifbýli og þéttbýli.
2.
Mótun og fyrirkomulag íbúaráða
Málsnúmer 202601142
Bæjarráð mætir á fund og ræðir fyrirkomulag íbúaráðanna og mótun þeirra til framtíðar.
Íbúaráð þakkar bæjarráði fyrir gott samtal og fagnar því að sveitarfélaginu finnist íbúaráðin vera að þjóna sínum tilgangi. Íbúaráð tekur undir það og hefur fundist störfin á kjörtímabilinu bæði góð og gagnleg. Íbúaráð undirstrikar mikilvægi þess að halda áfram að efla og þróa ráðin og leggur áherslu á lýðræðislegt umboð ráðanna.