Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar
12. fundur
10. júní 2026
kl.
10:00
-
12:00
í Holti
Nefndarmenn
Ari Hannesson
aðalmaður
Bjarni Haukur Bjarnason
formaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Ósk um leiksvæði á Hrollaugsstöðum
Íbúaráð óskaði eftir því að byggt yrði upp leiksvæði við Hrollaugsstaði og að aðstaðan við Holt yrði löguð á fundi sínum þann 29.09.2025 og óskar eftir upplýsingum um stöðu málsins. Minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs lagt fram.
Íbúaráð ítrekar fyrri beiðni sína um að ráðist verði sem fyrst í uppbyggingu leikvallar við Hrollaugsstaði og telur mikilvægt að börnum og fjölskyldum á svæðinu standi til boða örugg og aðlaðandi leik- og útivistaraðstaða sem nýtist jafnt íbúum sem gestum.
Jafnframt bendir íbúaráð aftur á nauðsyn þess að bæta og lagfæra núverandi leik- og útivistaraðstöðu í Holti, þar sem viðhald og endurbætur eru orðnar tímabærar til að tryggja öryggi á leiksvæðinu.
Íbúaráð óskar því eftir að sveitarfélagið setji þessi verkefni í forgang og að hafist verði handa við undirbúning og framkvæmd þeirra sem fyrst.

2.
Breyting á aðalskipulagi vegna jarðanna Birgis og Króks
Umræður vegna breytingu á aðalskipulagi vegna jarðarinnar Birgi í Suðursveit.
Í kynningu á fyrirhugaðri uppbyggingu á jörðinni Birgi kemur fram að markmið verkefnisins sé að efla ferðaþjónustu í Suðursveit með því að fjölga gistirýmum, bæta þjónustu við ferðamenn og styðja við fjölbreytt atvinnulíf á svæðinu.
Íbúaráð óskar eftir frekari rökstuðningi fyrir þessum fullyrðingum. Ljóst er að á svæðinu er þegar fjölbreytt framboð gistirýma og ferðaþjónustu, þar sem fjölmargir íbúar og fjölskyldurekin fyrirtæki hafa byggt upp atvinnu sína og afkomu á slíkri starfsemi. Því vakna spurningar um með hvaða hætti fyrirhuguð hótelbygging muni í raun efla ferðaþjónustu á svæðinu umfram það sem þegar er til staðar.
Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum um hvaða þjónustu við ferðamenn fyrirhugað er að bæta og hvort fyrir liggi greining sem sýnir fram á skort eða vöntun á gistirýmum á svæðinu.
Íbúaráð hefur einnig áhyggjur af áhrifum slíkrar uppbyggingar á rekstrarumhverfi þeirra fyrirtækja sem þegar starfa á svæðinu. Stór hótelrekstur getur haft veruleg áhrif á samkeppnisstöðu smærri aðila. Nauðsynlegt er að meta hvort verkefnið styrki í raun atvinnulíf heimamanna eða hvort megináhrif þess verði að skapa störf sem að stórum hluta verði mönnuð af aðfluttu vinnuafli.
Íbúaráð telur mikilvægt að ákvarðanir um frekari uppbyggingu séu byggðar á traustum gögnum, raunhæfu mati á þörf fyrir aukið gistirými og heildstæðu mati á áhrifum á samfélag, atvinnulíf og byggðaþróun. íbúaráð telur að fyrirhuguð framkvæmd samræmist ekki þeim sjónarmiðum sem íbúar á svæðinu hafa almennt komið á framfæri um þróun ferðaþjónustu og uppbyggingu á svæðinu.
Íbúaráð óskar því eftir að fram fari frekari greining á þörf verkefnisins og áhrifum þess áður en ákvörðun verður tekin um breytingu deiliskipulags.

3.
Íbúaráð kjörtímabilið 2023-2026
Umræður um starf íbúaráðs Suðursveitar og Mýra á kjörtímabilinu.
Íbúaráð telur starfstímabilið hafa verið bæði lærdómsríkt og ánægjulegt. Samstarf innan ráðsins hefur lukkast vel og tækifærið til að koma sjónarmiðum íbúa á framfæri mikilvægt.
Að mati íbúaráðs hefur verkefnið tekist vel og skapað gagnlegan vettvang fyrir umræðu og þátttöku íbúa í málefnum nærsamfélagsins. Skýr vilji er meðal ráðsmanna til að halda starfinu áfram og efla það enn frekar á komandi kjörtímabili.

4.
Gjaldtaka á nýjum kafla hringvegar
Á aðalfundi búnaðarfélagi Suðursveitar var gjaldtaka á nýja fljótaveginum rædd og þar útbúin ályktun sem er hér lögð fram.
Íbúaráð tekur undir ályktun Aðalfundar Búnaðarfélags Suðursveitar og hvetur bæjarstjórn til að beita sér gegn fyrirhugaðri gjaldtöku á nýja Fljótaveginum.
Íbúaráð telur að slík gjaldtaka feli í sér tvísköttun íbúa, þar sem vegaframkvæmdir og uppbygging vegakerfis eru þegar fjármagnaðar með sköttum og nýlega innleiddu kílómetragjaldi. Umrædd framkvæmd var jafnframt nauðsynleg af öryggisástæðum og liður í að fækka einbreiðum brúm á þjóðvegakerfinu.
Íbúaráð bendir á að nýi vegurinn veiti ekki þá viðbótarþjónustu sem almennt réttlætir veggjöld, svo sem tvöfaldar akreinar, aukinn hámarkshraða eða sérstaka þjónustu við vegfarendur. Gjaldtakan gæti hins vegar haft veruleg áhrif á heimamenn sem þurfa að fara leiðina reglulega vegna atvinnu, skólasóknar eða annarra nauðsynja. Jafnframt eru líkur á að aukinn flutnings- og rekstrarkostnaður vegna gjaldtökunnar mun endurspeglast í hærra vöru- og þjónustuverði á svæðinu og þannig hafa víðtæk áhrif á íbúa og atvinnulíf.
Íbúaráð skorar því á bæjarstjórn að vinna að því að heimamenn verði undanþegnir gjaldtöku eða að hún verði felld niður með öllu.