Fara í efni

Notendaráð um málefni fatlaðs fólks

3. fundur
17. apríl 2026 kl. 09:00 - 00:00
Miðgarður
Nefndarmenn
Tinna Rut Sigurðardóttir formaður
Kolbrún Rós Björgvinsdóttir aðalmaður
Gunnar Páll Halldórsson aðalmaður
Kolbrún Reynisdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir
Fundargerð ritaði:
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir Stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu
Dagskrá
1.
Gjaldskrár velferðarsviðs 2026
Málsnúmer 202512011
Kynntar eru breytingar á gjaldskrá velferðarsviðs 2026. Gjaldskrár snúa að greiðslum til stuðningsfjölskyldna, gjaldskrá vegna stoð- og stuðningsþjónustu Þjónustunnar heim og gjaldskrá fyrir akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks.Stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu kynnir breytingar á gjaldskrám.
Notendaráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar hækkun greiðslna til stuðningsfjölskylda. Ráðið hvetur sveitarfélagið til að bæta úr skýringum á reikningum sem sendir eru til íbúa. Margvísleg gjöld er varða íbúa falla undir ýmislegt og því ekki hægt að fylgjast með fyrir hvað þau gjöld standa. Þetta myndi bæta þjónustu við íbúa, skapa gagnsæi og auðvelda bókhald.
2.
Framkvæmd Endurbætur og viðhald í Ekru
Málsnúmer 202603029
Framkvæmdir við fyrsta áfanga á endurbótum á jarðhæð Ekru eru hafnar. Fyrsti áfangi felur í sér endurbætur á Ekrusalnum, skipta um gólfefni, loftaklæðningu og bæta hljóðvist í salnum ásamt því að setja upp nýjan margmiðlunar og fjarfundarbúnað. Eldhúsið verður stækkað, innréttingar og tæki endurnýjuð og þá verður skipt um gólfefni og loftaklæðningu í anddyri. Stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu kynnir stöðu endurbóta og hvernig tímabundinn flutningur á þjónustu dagdvalar Ekru yfir í Miðgarð gengur.
Notendaráð þakka fyrir yfirferðina og fagnar því að blöndun þjónustunnar í dagdvöl Ekru og dagdvöl Miðgarðs / iðju og hæfingastöðvarinnar gengur vel.
3.
Kaup á þjónustubifreið - Stuðnings- og virkniþjónusta
Málsnúmer 202601068
Í fjárhagsáætlun 2026 var gert ráð fyrir kaupum á nýrri þjónustubifreið fyrir stuðnings- og virkniþjónustu. Bifreiðin er sérútbúin með þeim hætti að hægt sé að sinna akstursþjónustu með hjólastólaaðgengi.Bifreiðin er Volkswagen Transport sem er sérútbúin með hjólastólalyftu á hlið bílsins. Auk þess er bifreiðin útbúin brautum og festingum til að tryggja nægt pláss og öryggi farþega.
Notendaráð fagnar kaupum á sérútbúinni þjónustubifreið.
4.
Stefna í málefnum fatlaðs fólks 2027-2035
Málsnúmer 202601075
Stefnt er að því að vinna drög að stefnu í málefnum fatlaðs fólks í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2027 - 2035. Lagt er fram minnisblað þar sem farið er yfir áform um hvernig staðið skuli að mótun stefnunnar. Stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu ásamt formanni fara yfir áform um stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks til næstu 8 ára.
Notendaráð hlakkar til vinnunnar við gerð stefnunnar og fagnar því að undirbúningsvinnan sé hafin. Stefnan mun auka gagnsæi, auka fagmennsku í störfum og styðja við starfsfólk, notendur og aðstandendur.
5.
Úttekt á stuðnings- og virkniþjónustu 2026
Málsnúmer 202601074
Samkvæmt framtíðarsýnar um málefni aldraðra skal á árinu 2026 vinna óháða úttekt á þjónustu sveitarfélagsins í málaflokknum. Samið var við Samskiptastöðina að sjá um framkvæmd úttektar á stuðnings- og virkniþjónustu Velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Úttektin var gerð í mars og er niðurstöður hennar væntanlegar í lok apríl. Stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu fer yfir úttektina, markmið hennar og hvernig niðurstöðurnar verða nýttar til úrbóta.
Notendaráð þakka kynninguna á úttekt á stuðnings- og virkniþjónustunni. Ráðinu hlakkar til að fá niðurstöður úttektarinnar og óskar eftir því að fá að sitja kynninguna þegar Samskiptastöðin kemur og kynnir niðurstöðurnar.