Öldungaráð
17. fundur
6. mars 2025
kl.
13:00
-
15:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Eiríkur Sigurðsson
aðalmaður
Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Jóna Bára Jónsdóttir
Ari Jónsson
Starfsmenn
Skúli Ingibergur Þórarinsson
Fundargerð ritaði:
Skúli Ingibergur Þórarinsson
sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Byrjað á vettvangsferð um framkvæmdasvæði Skjólgarðs. Sigurjón Andrésson bæjarstjóri mætir á fundinn og fylgir eftir heimsókninni og fer yfir stöðu mála.
Málinu frestað þar sem fulltrúi framkvæmdaraðlia gat ekki tekið á móti hópnum en býður öldungaráði að mæta og fá leiðsögn um svæðið næsta þriðjudag. Öldungaráð þiggur að koma í skoðunarferð þriðjudaginn 11. mars n.k.
2.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram tillögðu að tímalínu um vinnslu framtíðarsýnar fyrir málefni aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2026-2034 og minnisblað um framkvæmd þess.
Starfsmaður leggur fram tillögu að tímalínu og framgöngu verkefnisins næstu mánuði. Öldungaráð leggur til að FeH fái tvo fulltrúa í vinnuhópunum og að fulltrúi heimahjúkrunar/HSU sitji í vinnuhópnum.
Málinu vísað áfram til umræðu í velferðarnefnd.
Málinu vísað áfram til umræðu í velferðarnefnd.
3.
Endurbætur og viðhald í Ekru
Stefnt er að því að fara í heildræna endurskoðun á skipulagi jarðhæðar Ekrunar sem hýsir dagþjónustu sveitarfélagsins, félagsstarf aldraðra og Ekrusalinn. Gláma-Kím hafa verið fengnir til að koma að vinnslu verkefnisins.
Aðkoma Glámu-Kím sem hönnuðir að verkefninu kynnt fyrir ráðinu og allra fyrstu hugmyndir þeirra kynntar. Góðar umræður sköpuðust um mögulegar leiðir til að bæta notagildi hússins fyrir alla.
Stefnt er að því að hönnuðir komi í heimsókn á næstu vikum og öldungaráð leggur ríka áherslu á að FeH og stjórn húsfélags Ekrunnar komi að vinnslu málsins strax frá fyrstu skrefum þess.
Stefnt er að því að hönnuðir komi í heimsókn á næstu vikum og öldungaráð leggur ríka áherslu á að FeH og stjórn húsfélags Ekrunnar komi að vinnslu málsins strax frá fyrstu skrefum þess.
4.
Íþróttahús - hönnun
Fyrr um daginn voru kynningarfundir á uppbyggingu íþróttamannvirkja haldnir og mættu fulltrúar sveitarfélagsins á fund Öldungaráðs til að kynna stöðu mála.
Sigurjón Andrésson bæjarrstjóri, Eyrún Fríða Árnadóttir formaður bæjarráðs og Magnús Rannver Rafnsson starfsmaður mannvirkjasviðs kynna stöðu hönnunar íþróttamannvirkja. Öldungaráð þakkar þeim fyrir góða kynningu.
5.
Opinber heimsókn forseta Íslands til Hornafjarðar
Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, kemur til Hornafjarðar í sína fyrstu opinberu heimsókn innanlands dagana 12-13 mars n.k. Farið yfir dagskránna, heimsókn forseta í Ekruna og aðkomu Félags Eldri Hornfirðinga að móttökunni.
Kynnt fyrir öldungaráði að tekið verði á móti forseta í Ekrusalnum í hádeginu. Félagar úr FeH mun vera með tónlistaratriði og stutt ávarp.