Öldungaráð
23. fundur
15. október 2026
kl.
13:00
-
14:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir
formaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
aðalmaður
Reynir Gunnarsson
Ari Jónsson
Eirný Baggi Valsdóttir
formaður félags eldri hornfirðinga
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir
Stjórnandi stuðnings og virkniþjónustu
Dagskrá
1.
Framkvæmd - Ekra - útiæfingasvæði
Trausti Magnússon deildarstjóri þjónustu og framkvæmda umhverfis og skipulagssviðs kemur með kynningu á framkvæmdum á útiæfingasvæði Ekru.
Öldungaráð fagnar útiæfingasvæðinu og telur svæðið auka lífsgæði eldri Hornfirðinga.
Ráðið felur deildastjóra þjónustu og framkvæmda að útfæra lýsingu á svæðinu út frá umræðum á fundi.
Ráðið felur deildastjóra þjónustu og framkvæmda að útfæra lýsingu á svæðinu út frá umræðum á fundi.
2.
Erindi til sveitarstjórna frá Landssambandi eldri borgara
Lögð eru fram áhersluatriði sem Landssamband eldri borgara setti fram fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar ásamt erindi frá sambandinu um að skipa í öldungaráð, hafi það ekki þegar verið gert. Þá eru sveitarstjórnir hvattar til að leggja áherslu á öflugt starf í öldungaráði frá upphafi kjörtímabils og boðið er upp á frekara samtal og samstarf um þessi málefni.
Lagt fram til kynningar
3.
Endurskoðun reglna stuðnings- og virkniþjónustu
Lagt er fram endurskoðun á reglum stuðningsþjónustu og reglum um akstursþjónustu aldraðra.
Frestað til næsta fundar
4.
Samningur við Félag eldri Hornfirðinga
Eirný Valsdóttir formaður Félags eldri Hornfirðinga lagði til skoðun á samningi sveitarfélagsins við Félag eldri Hornfirðinga.
Samningur var ræddur og öldungaráð vill áframhaldandi samstarf um framkvæmd samningsins.
5.
Öldrunarþjónusta í Öræfum
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs, varðandi þróun félagsstarfs, virkni og stoðþjónustu fyrir eldri borgara í Öræfum. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir erindi sem borist hefur frá íbúa á svæðinu um þörf fyrir aukna þjónustu og félagsstarf í sveitinni. Gerð er grein fyrir mikilvægi þess að aðlaga þjónustu sveitarfélagsins að dreifbýlinu með staðbundnum lausnum og fjarbúnaði, en jafnframt áréttað að einstaklingsbundin þjónusta skuli ávallt byggja á formlegu þjónustumati fagaðila velferðarsviðs til að tryggja jafnræði og faglega stjórnsýsluhætti. Lagt er til að ráðist verði í rafræna könnun meðal eldri borgara í Öræfum til að kortleggja áhuga á félagsstarfi, heimaþjónustu og akstursþjónustu. Þá er kynnt tillaga að tilraunaverkefni í vetur sem felur í sér skipulagningu félagsstarfs í Hofgarði, aðstoð við beinar útsendingar á leikfimi frá Ekrunni á Höfn og afmarkaða aksturs- og stuðningsþjónustu á verktakagrundvelli.
Öldungaráð fagnar fram komnum hugmyndum um eflingu félagsstarfs og þjónustu við eldri borgara í Öræfum. Ráðið felur starfsmanni að vinna að gerð rafrænnar könnunar meðal eldri borgara í Öræfum með það að markmiði að meta eftirspurn eftir félagsstarfi, heimaþjónustu og akstursþjónustu. Auk þess er lagt til að fagaðilar sviðsins kynni öldrunarþjónustu sveitarfélagsins á svæðinu með kynningarfundi í Hofgarði.
Jafnframt felur ráðið starfsmanni að útfæra fyrirkomulag þjónustunnar nánar og stefna að því að setja af stað tilraunaverkefni í vetur um skipulagt félagsstarf og aðgengi að leikfimi í Hofgarði.
Jafnframt felur ráðið starfsmanni að útfæra fyrirkomulag þjónustunnar nánar og stefna að því að setja af stað tilraunaverkefni í vetur um skipulagt félagsstarf og aðgengi að leikfimi í Hofgarði.
6.
Samstarfssamningur um akstursþjónustu fyrir Skjólgarð
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs, ásamt drögum að samstarfssamningi á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Vigdísarholts ehf. um framkvæmd akstursþjónustu fyrir íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn.Samningurinn felur í sér að velferðarsvið tekur að sér að sinna nauðsynlegum akstri íbúa Skjólgarðs til að sækja heilbrigðis- og læknisþjónustu að beiðni rekstraraðila. Aksturinn verður framkvæmdur af starfsmanni stuðnings- og virkniþjónustu á sérútbúinni bifreið akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks. Sveitarfélagið mun innheimta gjald fyrir þjónustuna hjá Vigdísarholti ehf. sem tekur mið af raunkostnaði við aksturinn, launum bílstjóra og rekstri bifreiðarinnar.Með samningnum er stuðlað að hagkvæmri nýtingu á innviðum og starfsfólki sveitarfélagsins auk þess sem íbúum Skjólgarðs er tryggður öruggur og faglegur flutningur án þess að útgjöld sveitarsjóðs aukist.
Frestað til næsta fundar
7.
Akstursþjónusta íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
Fram hefur komið ósk um að Sveitarfélagið Hornafjörður taki að sér að sinna akstri íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði vegna einkaerinda. Nýverið var gerður samstarfssamningur milli velferðarsviðs og Vigdísarholts ehf. sem kveður á um að Vigdísarholt geti nýtt þjónustu sérútbúinnar bifreiðar akstursþjónustu aldraðra hjá sveitarfélaginu vegna nauðsynlegrar læknisþjónustu. Sá samningur nær ekki yfir ferðir sem íbúar óska eftir til að sinna einkaerindum.Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra um málið og óskað eftir afstöðu velferðarnefndar til erindisins og ef komi til þjónustunnar, hvernig hún skuli útfærð.
Frestað til næsta fundar
8.
Þjónustuhandbók - Dagþjónusta eldri borgara
Lögð eru fram til kynningar og umræðu fyrstu drög að nýrri þjónustuhandbók fyrir starfsfólk dagþjónustu aldraðra í Ekrunni.Dagþjónustan er mikilvægt stuðningsúrræði sem sem miðar að því að styðja aldraða einstaklinga til sjálfshjálpar og gera þeim kleift að búa áfram á eigin heimilum. Við þjónustuna starfa fjórir starfsmenn í 1,7 stöðugildum og er opið alla virka daga frá kl. 10:00 til 15:00. Starfsemin fer fram í sérrými í Ekrunni með áherslu á iðju og virkni, auk þess sem notendur hafa aðgang að slökunarherbergi og snæða sameiginlegan hádegisverð í Ekrusalnum í samstarfi við félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga.Handbókinni er ætlað að vera hagnýtur leiðarvísir fyrir starfsfólk þar sem kveðið er á um helstu verkefni, ábyrgðarmörk og faglegar skyldur, m.a. varðandi samstarf við heimahjúkrun, þagnarskyldu, vinnuvernd og gæðaeftirlit. Þá byggir handbókin á gildandi kröfulýsingu stjórnvalda fyrir öldrunarþjónustu og hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar (Gentle Teaching) sem höfð er að leiðarljósi í allri velferðar- og stuðningsþjónustu sveitarfélagsins.
Frestað til næsta fundar