Öldungaráð
3. fundur
2. október 2017
kl.
10:00
-
11:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson
formaður
Albert Eymundsson
aðalmaður
Sigurður Örn Hannesson
aðalmaður
Ólafía Ingibjörg Gísladóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jón Kristján Rögnvaldsson
félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
Bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Erindi vegna þjónustu við aldraða
Erindi lagt fram frá aðstandendum aldraðra í þjónustu hjá sveitarfélaginu og heilbrigðisstofnun. Rannveig Einarsdóttir og Svava Kr. Guðmundsdóttir sátu fundinn undir þessum lið og fylgdu erindinu úr hlaði.
Öldungaráð fagnar erindinu og telur að í því sé margt jákvætt sem hægt sé að nota til þess að auka og bæta þjónustu við aldraða í sveitarfélaginu. Því er beint til félagsmálanefndar og starfsmanna nefndarinar að taka tillit til erindisins við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.

2.
Stefna HSU Hornafirði 2017
Matthildur Ásmundardóttir, framkvæmdastjóri HSU-Hornafirði kynnir vinnu við stefnumótun HSU-Hornafjarðar.
3.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2018
Sigurður Hannesson, fyrir hönd Félags eldri Hornfirðinga, óskar eftir upplýsingum um hvar málið er statt í dag og hvernig standi til að vinna það.
Sigurður Hannesson, fyrir hönd Félags eldri Hornfirðinga, óskar eftir upplýsingum um vinnu við reglur um afslátt af fasteignaskatti fyrir árið 2018. Björn Ingi svarar því til að málið sé í vinnslu og verði m.a. rætt í bæjarráði síðar í dag, verið er að afla frekari upplýsinga um afslátt annarra sveitarfélaga til samanburðar.