Öldungaráð
4. fundur
23. janúar 2019
kl.
12:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigurlaug Gissurardóttir
aðalmaður
Eiríkur Sigurðsson
aðalmaður
Albert Eymundsson
aðalmaður
Ólafía Ingibjörg Gísladóttir
aðalmaður
Pálína Sighvatsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Elísa Sóley Magnúsdóttir
félagsmálastjóri
Dagskrá
1.
Öldungaráð
Samþykktir Öldaungaráðs kynntar og farið yfir hlutverk og verksvið ráðsins.
Sigurlaug, formaður ráðsins fer yfir skipun nefndarmannna og samþykktir ráðsins.
2.
Málþing um stöðu eldri borgara
Umræður um fyrirhugað málþing Félags eldri Hornfirðinga í mars. Öldungaráð telur mjög jákvætt að fyrirhugað sé að halda slíkt málþing og umræður sköpuðust um efnistök.
3.
Öldungarráð Íslands
Kynnt var að sveitarfélagið Hornafjörður hefur sótt um aðild að Öldungaráði Íslands. Aðildin gefur kost á einu atkvæði innan þeirra samtaka.
4.
Akstursþjónusta eldri borgara
Kynnt var sú vinna sem hafin er á reglum vegna akstursþjónustu við eldri borgara.
5.
Þjónusta við aldraða sem búa á eigin heimili
Fjallað var um erindi sem barst bæjarstjórn frá aðstandendum aldraðra þann 10. október 2018. Öldungaráð tekur undir það að skipulag þjónustu þurfi að vera sem skilvirkast og skýrast, eins og aðstandendur kalla eftir og hvetur sveitarféalgið til frekari vinnu til að ná því fram i samræmi við áherslur aðstandenda.
6.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Bæjarstjóri fer yfir stöðu mála
Bæjarstjóri segir frá stýrihópi sem mun halda utan um hönnunarsamkeppni sem haldin verður um nýtt hjúkrunarheimili á næstunni. Hjúkrunarheimilið verður þrjár einingar og 30 hjúkrunarrými. Stefnt á að heimilið verði tekið til notkunar árið 2021. Umræður.
Öldungaráð fagnar framkomnum upplýsingum og áætlunum.
Öldungaráð fagnar framkomnum upplýsingum og áætlunum.