Fara í efni

Öldungaráð

5. fundur
28. nóvember 2019 kl. 12:00 - 13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Eiríkur Sigurðsson aðalmaður
Albert Eymundsson aðalmaður
Sigurður Örn Hannesson aðalmaður
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir félagsmálastjóri
Dagskrá
1.
Hlutverk Öldungaráðs
Málsnúmer 201911083
Umræða almennt um hlutverk öldungaráðs, þjónustu við aldraða og húsnæðismál. Ákveðið að hafa fundi ráðsins 4x á ári.
2.
Könnun á högum og líðan aldraðra
Málsnúmer 201911082
Rætt um mikilvægi að kanna aðstæður aldraðra m.t.t. félagslegrar einangrunar. Ákveðið að kanna hvort mögulegt sé að fá niðurstöður könnunar á högum og líðan aldraðra sem framkvæmd var árið 2016 á landsvísu og þá sem varða svör frá íbúum sveitarfélagsins. Einnig að kanna hvort verði gerð könnun árið 2020.
3.
Heilsueflandi samfélag 2019
Málsnúmer 201903072
Herdís Ingólfsdóttir verkefnastjóri heilsueflandi kynnti starf og áherslur þess verkefnis.