Öldungaráð
6. fundur
2. október 2020
kl.
15:30
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Sigurður Örn Hannesson
aðalmaður
Ólafía Ingibjörg Gísladóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir
félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir
félagsmálastjóri
Dagskrá
1.
Erindisbréf öldungaráðs
Bæjarráð vísaði erindisbréfinu til öldungaráðs til umsagnar félagsmálanefnd er búin að samþykkja erindisbréfið.
Öldugaráð samþykkir erindisbréf ráðsins og vísar því áfram.
2.
Styrkur: Öflug samskipti í samþættri þjónustu með hjálp velferðartækni
Félagsmálastjóri kynnir innleiðingu þjónustunnar heim og Memaxi. Ráðinn hefur verið starfsmaður til að halda utan um innleiðinguna og verkefnið er samkvæmt áætlun.
3.
Umsókn um styrk til að auka félagsstarf fullorðinna vegna Covid sumarið 2020
Félagsmálastjóri kynnti veittan styrk frá félagsmálaráðuneytinu og þá viðburði sem voru áætlaðir. Öldugaráð fagnar þessu og telur þetta metnaðarfullt verkefni. Dagská endurskoðuð í samvinnu við stjórn félags eldri Hornfirðinga.
4.
Fyrirspurn um augnlæknaþjónustu á Hornafirði
Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá HSU á Hornafirði er óvissa um framhald augnlæknaþjónustu á Hornafirði. Öldungaráð leggur áherslu á að augnlæknaþjónusta hefur verið partur af grunnþjónustu í sveitarfélaginu í áratugi og hefur miklar áhyggjur af framhaldinu verði þjónustan ekki í boði á staðnum. Reglulegt eftirlit augnlæknis er mikilvægt, ekki síst fyrir þá sem eldri eru og eiga erfitt með að sækja sér þjónustuna um langan veg. Öldungaráð skorar á HSU að halda úti þjónustunni eins og verið hefur.