Fara í efni

Öldungaráð

8. fundur
22. október 2021 kl. 13:00 - 14:00
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Eiríkur Sigurðsson aðalmaður
Páll Guðmundsson aðalmaður
Sigurður Örn Hannesson aðalmaður
Ólafía Ingibjörg Gísladóttir aðalmaður
Pálína Sighvatsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Aðgerðaráætlun í heilsueflingu aldraðra
Málsnúmer 202108063
Aðgerðaráætlun í heilsueflingu aldraðra lögð fram til kynningar
Aðgerðaráætlunin felur m.a. í sér eftirfarandi tillögur starfshóps heilbrigðisráðherra:
1. Samstarf um heilsueflingu
2. Hreyfing og virkni
3. Næring
4. Húsnæði og ytra umhverfi
5. Fræðsla og kannanir
2.
Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða
Málsnúmer 202108062
Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða lögð fram til kynningar
3.
Samningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Félags aldraðra á Hornafirði
Málsnúmer 202103084
Samningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Félags aldraðra á Hornafirði ræddur
Samningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Félags aldraðra á Hornafirði hefur verið endurskoðaður og er tilbúinn til undirritunnar.
4.
Þjónustukjarni í Mjallhvít
Málsnúmer 202104100
Sviðsstjóri upplýsti um þjónustu við íbúa í Mjallhvít
Starfsfólk stuðnings- og virkniþjónustu eru á vöktum kl.8-13 og 17-22 alla daga vikunnar og sinna þrifum og aðstoða íbúa við daglegar athafnir. Frá kl.22-8 er öryggishnappur tengdur við vakt á Skjólgarði.
5.
Starfsemi velferðarsviðs í málaflokki aldraðra
Málsnúmer 202108007
Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti er verkefni í málaflokki aldraðra
Verkefni velferðarsviðs í málaflokki aldraðra eru:
-Dagdvöl og félagstarf fer fram í Ekrunni. Virkniráðgjafi kemur að starfinu m.a. með leikfimi 1x í viku og að samstarfi við FeH.
-Þjónustan heim sem heyrir undir stuðnings- og virkniþjónustu sem felur m.a. samvinnu við heimahjúkrun þar sem heimaþjónusta og heimahjúkrun er samþætt. Fulltrúar frá stuðnings- og virkniþjónustu og frá heimahjúkrun sitja í matsnefnd sem tekur á móti umsóknum um þjónustuna heim og metur þær. Þá er samþætt faglegt teymi sömu aðila sem fylgir eftir samþættri þjónustu.
-Almenn félagsleg ráðgjöf.
6.
Útboð byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202109040
Rætt um stöðu byggingu á nýju hjúkrunarheimili.
Fundarmenn lýstu yfir áhyggjum sínum á stöðu mála varðandi byggingu á nýju hjúkrunarheimili.