Fara í efni

Öldungaráð

9. fundur
4. apríl 2022 kl. 15:00 - 16:15
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Eiríkur Sigurðsson aðalmaður
Páll Guðmundsson aðalmaður
Sigurður Örn Hannesson aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir fulltrúi heilsugæslu
Starfsmenn
Erla Björg Sigurðardóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði:
Erla Björg Sigurðardóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
1.
Staðan í starfsemi velferðarsviðs
Málsnúmer 202108007
Erla Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri kynnti meginþætti í starfsemi velferðarsviðs.
2.
Áskorun - Nýtt hjúkrunarheimili
Málsnúmer 202204006
Á aðalfundi FeH 30. mars 2022 var samþykkt ályktun með áskorun á Heilbrigðisráðherra og Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar að ljúka tafarlaust útboðsferli og hefja byggingu á nýju húsnæði við hjúkrunarheimilið Skjólgarð sem fyrst.
Öldungarráð tekur undir ályktun aðalfundar FeH og hvetur ríki og sveitarfélag til að ljúka tafarlaust útboðsferli og hefja byggingu á nýju húsnæði við Skjólgarð sem fyrst.
3.
Augnlæknir - Þjónusta í heimabyggð
Málsnúmer 202204005
Á aðalfundi FeH 30. mars 2022 var samþykkt ályktun um að beina því til Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands að tryggja þjónustu augnlækna við heilsugæsluna á Höfn.
Öldungarráð tekur undir ályktun aðalfundar FeH um nauðsyn þjónustu augnlækna við íbúa sveitarfélagsins. Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri fulltrúi í öldungarráði fylgir eftir ályktuninni innan HSU. Ásgerður Gylfadóttir formaður bæjarráðs fylgir ályktuninni eftir innan bæjarstjórnar og heilbrigðisráðuneyti.