Fara í efni

Sameignilegur nefndarfundur atvinnu- og menningamálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar.

133. fundur
11. febrúar 2026 kl. 16:00 - 18:47
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þóra Björg Gísladóttir
Steindór Sigurjónsson
Kristján Örn Ebenezersson
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Sigrún Sigurgeirsdóttir
Níels Brimar Jónsson
Tinna Rut Sigurðardóttir
Gunnar Ásgeirsson
Guðrún Sigfinnsdóttir
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
Selma Ýr Ívarsdóttir
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir og Þórgunnur Torfadóttir
Dagskrá
1.
Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26
Málsnúmer 202512087
Sameiginlegur aukafundur atvinnu- og menningarmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar vegna úthlutunar á verkefnastyrkjum nefndanna.
Heildarfjárhæð styrkja sem nefndirnar veita er fimm milljónir. Tuttugu og tveir aðilar sóttu um styrk að upphæð krónur 15.659.089. Nefndirnar veita 19 verkefnum styrk. Á menningarhátíð í Nýheimum 6. mars verður tilkynnt hvaða verkefni hljóta styrk.

Breytingar voru gerðar á reglum um úthlutun styrkja hjá sveitarfélaginu síðasta haust með það að leiðarljósi að úthlutunin yrði einfaldari, gegnsærri og sanngjarnari.
Hluti af vinnu nefndanna að þessu sinni var að yfirfara nýju reglurnar og koma með tillögur að breytingum á þeim. Starfsmönnum falið að vinna áfram að breytingum og leggja fyrir nefndirnar í mars.