Fara í efni

Stýrihópur um barnvænt sveitarfélag

1. fundur
15. október 2020 kl. 14:00 - 15:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Björg Sigurðardóttir
Ragnhildur Jónsdóttir
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Sigrún Sigurgeirsdóttir
Selma Ýr Ívarsdóttir
Starfsmenn
Guðrún Einarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Einarsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá
1.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 202010120
Kortlagningin er annað skrefið af átta í innleiðingarferli Barnasáttmálans og felur í sér greiningu á lífskilyrðum barna. Stuðst verður við gátlista UNICEF sem byggja á fimm grunnþáttum Barnvænna sveitarfélaga.
Stýrihópurinn kom saman og fór yfir innleiðingarferlið. Ákveðið var að hver og einn fundarmaður myndi svara gátlistum eitt og tvö heima og senda svörin til verkefnastjóra og síðan fer stýrihópurinn yfir svörin á næsta fundi á. Ákveðið var að hittast til að byrja með á tveggja vikna fresti og fara yfir gátlistann. Einnig var lagt til að hengja barnasáttmálann á vegg í fundarherberginu.