Fara í efni

Stýrihópur um barnvænt sveitarfélag

2. fundur
26. október 2020 kl. 14:00 - 15:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Selma Ýr Ívarsdóttir
Stígur Aðalsteinsson
Íris Mist Björnsdóttir
Starfsmenn
Guðrún Einarsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Einarsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá
1.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 202010120
Farið var yfir fyrstu tvo gátlistana og urðu almennar umræður um þá. Í umræðum um réttindafræðslu í grunnskóla kom m.a. fram hjá fulltrúum ungmennaráðs mismunandi upplifun hvar og hvernig þau hafa fengið fræðslu.Ákveðið að klára að svara gátlistum 3, 4 og 5 fyrir 9. nóvember. Samþykkt að allir myndu senda verkefnastjóra gátlista í síðasta lagi 6. nóvember.
Námskeiðið verður haldið 9. nóvember klukkan 13-16 á Teams sem er sami tími og 3. fundur stýrihóps átti að vera. Hann frestast því vegna námskeiðs.
Stýrihópur skoðaði barnasáttmálann og var beðinn um að kynna sér hann heima fyrir námskeiðið.
Verkefnastjóra falið að panta Barnasáttmálann og Markmið Sameinuðu þjóðanna á veggspjaldi.