Umhverfis- og skipulagsnefnd
102. fundur
17. september 2025
kl.
16:00
-
16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Níels Brimar Jónsson
1. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Sindri Sigurjón Einarsson
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Bartek Andresson Kass
Xiaoling Yo
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir
Verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála
Dagskrá
1.
Breyting á deiliskipulagi - Fiskhóll 11,Stækkun byggingar
Imsland ehf. óskaði eftir breytingu á deilsikipulagi á Fiskhól 11 er varðar bæði lóðamörk og byggingarreit. Breytingin var grenndarkynnt 30. júlí með athugasemdarfresti til 29. ágúst 2025. Engar athugasemdir bárust.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum fundarlið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt í samræmi við 2.mgr. 43.gr. laga 123/2010.
.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt í samræmi við 2.mgr. 43.gr. laga 123/2010.
.
2.
Umsókn um byggingarheimild - Sæbraut 1 Gáran, viðbygging
Lagt er fram erindi Sveitarfélagsins Hornafjarðar þar sem sótt er um leyfi til byggingarframkvæmda að Sæbraut 1. Fyrirhugað er byggja við núverandi sorpmóttökustöð. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið, en samkvæmt aðalskipulagi er svæðið á athafnasvæði AT1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi þegar farið fram samkvæmt 2. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010, þar sem að nágrannar hafa lagt fram samþykki fyrir framkvæmdinni. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Bréf frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands v.svæða sem eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum
Bréf frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands þar sem áréttuð er lagaleg staða og ábyrgð sveitarfélaga í skipulagsmálum og réttur almennings til skýrra upplýsinga um takmarkanir á vátryggingavernd og bótarétti skv. 16. gr. laga nr. 55/1992 þegar byggt er á svæðum með fyrirfram þekkta náttúruvá, einkum vegna vatns- og sjávarflóða.
Lagt fram til kynningar.
4.
Landeignaskrá Stafafell - Stafafell fjárhús - merkjalýsing
Landeigendur að Stafafelli í Lóni óska eftir staðfestingu á merkjalýsingu sem gerir ráð fyrir stofnun nýrrar lóðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Ósk um að fjarlægja kant- Fákaleira 8a
Erindi frá Kristjáni Erni Þorvarðssyni þar sem óskað er eftir að fjarlægja götukant meðfram lóðinni Fákaleiru 8A.
Starfsmanni falið að hafa samband við umsækjenda og afla frekari upplýsinga.