Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

109. fundur
4. febrúar 2026 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir formaður
Elías Tjörvi Halldórsson varaformaður
Starfsmenn
Xiaoling Yo umhverfisfulltrúi
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Endurskipulag móttökusvæðis
Málsnúmer 202601079
Lögð fram tillaga að breytingum á skipulagi og útfærslu lóðar við Gáruna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur mikilvægt að vinna þurfi þarfagreiningu áður en að hönnun kemur. Nefndin telur einnig mikilvægt að huga að skilvirkni og öryggi í framtíðarhönnun sorpmótökunnar. Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu.
2.
Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
Málsnúmer 202510014
Lagt fyrir minnisblað frá fundi starfsmanna sveitarfélagsins, formanns nefndarinnar og fulltrúum Hringrásar ehf.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna áfram í málinu og vísar málinu til umræðu í bæjarráði.
3.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Teknar eru fyrir viðbætur við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Vinnslutillaga heildarendurskoðunar aðalskipulags er til rýni hjá Skipulagsstofnun.Breytingarnar varða landnotkunarflokka á nýju fyrirhuguðu miðbæjarsvæði, verslunar og þjónustu fyrir Birgi og afþreyingar- og ferðamannastaðar við Múlagljúfur.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að fella áform vegna Múlagljúfurs inn í yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags. Nefndin telur hin verkefnin þurfa meiri umræðu, greiningu og samráð.
4.
Breyting á aðalskipulagi vegna jarðanna Birgis og Króks
Málsnúmer 202509045
Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi og nýs deiliskipulags hefur verið í kynningu frá 30. desember 2025 til 27. janúar 2026. Alls bárust 8 umsagnir.
Starfsmanni falið að vinna drög að svörum við umsögnum.
5.
Deiliskipulag - Jörðin Birgi í Borgarhöfn
Málsnúmer 202602002
Tekin er fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi, jörðin Birgi í Borgarhöfn. Skipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu hótels ásamt tengdri starfsmannaaðstöðu. Skipulagssvæðið er sunnan við Þjóðvegi 1. Það er 8,4 ha að stærð og liggur innan lóðarmarka Birgis sem er 16.1 ha. Breyting á aðalskipulagi fer fram samhliða deiliskipulagsvinnu.
Málinu frestað á meðan unnið er að svörum við lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi.
6.
Deiliskipulag - Skarðshólar
Málsnúmer 202602006
Tekin er fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi Skarðshóla. Í skipulaginu er skilgreindur byggingarreitur fyrir íbúðarhúsi og útihúsi auk aðkomu að svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt og auglýst í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
7.
Stjórnsýslukæra UUA2601001 framkvæmdaleyfi jarðtæknirannsóknir Hoffelli
Málsnúmer 202601049
Tekinn er fyrir úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Landvernd lagði fram kæru vegna ákvörðunar um útgáfu framkvæmdaleyfis vegna jarðtæknirannsókna við Hoffellslón. Kærumáli var vísað frá úrskurðarnefndinni.
Lagt fram til kynningar.
8.
Ægissíða - gönguleið
Málsnúmer 202602003
Tekin er fyrir tillaga að legu nýs göngustígs í Ægissíðu. Fyrirhuguð tenging tengir Eystri Ægissíðu við göngustíganet í Syðri Ægissíðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar fyrirhuguðum áformum og gerir ekki athugasemd við þau. Nefndin telur að taka verði mið af legu lands við hönnun og framkvæmd. Framkvæmdin fellur ekki undir lög um mat á umhverfisáhrifum og telur nefndin framkvæmdina ekki háða útgáfu framkvæmdaleyfis í samræmi við 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
9.
Barna og ungmennaþing 2025
Málsnúmer 202504082
Þann 18. nóvember var haldið Barna- og ungmennaþing á Hornafirði, þar sem yfir 300 börn og ungmenni tóku þátt. Grunnskólar sveitarfélagsins og framhaldsskólinn tóku þátt, ásamt fulltrúum úr atvinnulífinu og RÍN-hópum sem kynntu sínar nálganir á þeim málstofum sem voru til umfjöllunar. Einnig tók elsti árgangur leikskólanna þátt og fór yfir málin.Grunnniðurstöður þingsins voru kynntar tveimur dögum síðar eða þann 20.nóvember, en Ungmennaráð hefur óskað eftir því að starfsfólk fræðslusviðs kynni nánari niðurstöður fyrir öllum ráðum, fastanefndum og starfsstöðvum sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
10.
Framkvæmd - Leikvöllur í Nesjahverfi - tilfærsla og endurbættur
Málsnúmer 202506071
Sveitarfélagið hefur unnið að hönnun og staðsetningu leikvallar við Mánagarð í Nesjum. Hugmyndir um legu nýs leikvallar hafa verið kynntar íbúum í Nesjum.
Til stendur að vinna heildarendurskoðun leikvalla í sveitarfélaginu Hornafirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að áætlanir um leikvöll við Mánagarð verði tekið með í þá vinnu.
11.
Byggingarleyfisumsókn - Mjóatorfa, íbúðarhús
Málsnúmer 202510113
Tekin er fyrir umsókn Hafdísar S. Roysdóttur um leyfi til byggingarframkvæmda að Mjóutorfu í Öræfum. Fyrirhugað er reisa íbúðarhús. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið en samkvæmt aðalskipulagi er svæðið á landbúnaðarsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin samþykkir að grenndarkynna íbúum að Nýjatúni, Svínafell 1 og Svínafelli 1 Háaleiti umsóknina, samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga.