Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

11. fundur
1. apríl 2020 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Finnur Smári Torfason varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Íris Mist Björnsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Grenndarstöðvar á Höfn
Málsnúmer 202003077
Tillaga að uppsetningu flokkunarstöðva á stærstu viðkomustöðum ferðamanna á Höfn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til bæjarráð smþykki að leigðar verði flokkunarstöðvar til uppsetningar við Ósland, Leiðarhöfða og steinagarðinn til reynslu yfir sumarið.
2.
Matjurtagarðar á Höfn
Málsnúmer 202003047
Sveitarfélagið hefur afmarkað land fyrir matjurtagarða í bæjarlandinu. Umræða um hugmyndir og framtíð slíks svæðis.
Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu skv. umræðum á fundinum.
3.
Hjólaleiðir á Suðurlandi
Málsnúmer 202003103
Hjólaleiðir sem sveitarfélagið vill birta á kortavef SASSsjá á heimasíðu https://www.sass.is/kortavefur/
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að hjólaleiðir í sveitarfélaginu séu birtar á kortasjá SASS.
Starfsmanni falið að leggja upp drög að svörum skv. umræðum á fundinum og vísar málinu til Atvinnu og menningarmálanefndar.
4.
Silungsveiði við Silfurnes
Málsnúmer 202003104
Silungsveiði hefur verið stunduð frá Silfurnesi. Umræða um framhald veiðanna.
Lagt fram til kynningar.
5.
Áherslur sumarsins 2020 í umhverfinu
Málsnúmer 202003105
Umræður um áherslur í umhverfismálum, umhirðu og grænum svæðum fyrir sumarið 2020.
Starfsmönnum falið að vinna áfram í málinu.
6.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Málsnúmer 201907018
Uppfærð jafnréttiráætlun sveitarfélagsins lögð fyrir nefndina.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áætlunina.
7.
Aðalskipulagsbreyting: Þétting byggðar á Höfn
Málsnúmer 201809084
Markmið með breytingunni er að þétta byggð í Innbæ, hún skal vera í samræmi við núverandi byggð hvað varðar tegundir, stærðir, þéttleika og ásýnd byggðar. Með þéttingu byggðar skal tryggja gönguleiðir að opnum svæðum. Þétting byggðar tekur til nýrra lóða, auk aðliggjandi byggðra lóða við Silfurbraut og Hvannabraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir íbúðarlóðum fyrir einbýlishús og raðhús. Svæðið er auðkennt sem íbúðarsvæði ÍB9 í aðalskipulagi. Tillagan var í kynningu frá 19. desember til mánudagsins 3. febrúar. Umsagnir hafa borist frá Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun Íslands og undirskriftarlisti frá íbúum. Rætt hefur verið við forsvarsmenn undirskriftarlista og haldinn var íbúafundur um málið þann 5.3.2020.
Málinu var frestað á fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar þann 11.3.2020 til þess að gefa forsvarsmönnum undirskriftarlista tækifæri á að svara þeim tillögum sem sveitarfélagið hefur lagt fram að breytingum.
Gerðar voru breytingar á deiliskipulagi til að koma til móts við athugasemdir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að aðalskipulagsbreytingin verði samþykkt skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim breytingum sem bent er á í umsögn Skipulagsstofnunar.
Starfsmanni falið að svara umsagnaraðilum og senda til Skipulagsstofnunar. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Deiliskipulag Þétting byggðar Innbæ
Málsnúmer 201909089
Deiliskipulaginu er ætlað að koma á móts við eftirspurn og stuðla að vexti þéttbýlis með auknu lóðarframboði. Þétting byggðar tekur til nýrra lóða, auk aðliggjandi byggðra lóða við Silfurbraut og Hvannabraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir íbúðarlóðum fyrir einbýlishús og raðhús. Svæðið er auðkennt sem íbúðarsvæði ÍB9 í aðalskipulagi. Tillagan var í kynningu frá 19. desember til mánudagsins 3. febrúar. Umsagnir hafa borist frá Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun Íslands og undirskriftarlisti frá íbúum. Rætt hefur verið við forsvarsmenn undirskriftarlista og haldinn var íbúafundur um málið þann 5.3.2020.
Málinu var frestað á fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar þann 11.3.2020 til þess að gefa forsvarsmönnum undirskriftarlista tækifæri á að svara þeim tillögum sem sveitarfélagið hefur lagt fram að breytingum. Einnig var leitað til Golfklúbbs Hornafjarðar sem ítrekaði fyrri umsögn sína.
Leitað var eftir áliti sérfæðinga vegan mögulegra áhrifa jarðvegsframkvæmda á nærliggjandi byggð.
Gerðar voru eftirfarandi breytingar og lagfæringar á auglýstri tillögu að lokinni auglýsingu til að koma til móts við athugasemdir:
-
Kafli 3.3. Nýjar lóðir og byggingarmagn. Lóð 41 við Silfurbraut er felld út.
-
Kafli 3.5. Veitur og ofanvatn. Bætt er við ákvæðum varðandi ofanvatn.
-
Kafli 4.1. Almennt. Bætt er við ákvæðum um áfangaskiptingu framkvæmda.
-
Kafli 4.3. Grundun mannvirkja. Bætt er við nýjum kafla um grundun mannvirkja.
-
Kafli 4.5. Frágangur lóða. Bætt er við tímamörkum um frágang lóða.
Gerðar eru eftirfarandi breytingar á uppdráttum:
-
Vesturbraut er þrengd niður í 4 m þar sem hún þverar gangstíg.
-
Umfang snúningssvæðis við norðurenda Silfurbrautar er minnkað.
-
Auðkennt er leiksvæði og/eða sparkvöllur syðst á skipulagssvæðinu.
-
Lóð nr. 41 við Silfurbraut felld út.

Meirihluti umhverfis- og skipulagsnefndar leggur til að tillagan verði samþykkt skv. 42. gr. skipulagslaga. Starfsmanni er falið að gera samantekt um málsmeðferð og svara umsögnum. Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Ásgrímur, Erla og Finnur B- lista samþykkja að deiliskipulagstillöguna.
Á móti Sæmundur E- lista og Björgvin D- lista.
Minnihluti E og D lista bókar eftirfarandi:
Minnihlutinn bókar og leggur til að farið verði eftir tillögu í minnisblaði Eflu verkfræðistofu frá 18. mars áður en deiliskipulag verði samþykkt, en þar segir:
"Eindregið er mælst til þess að gerðar verði jarðkannanir á fyrirhuguðum byggingarlóðum til að taka af allan vafa um jarðvegsaðstæður. Það er forsenda þess að hægt sé að ákveða hvaða aðferðum verði beitt við grundun húsa
og minnkar hættu á kröfum væntanlegra lóðarhafa á hendur sveitarfélagsins vegna óhagstæðra jarðvegsaðstæðna
eða aukins ófyrirséðs kostnaðar við grundun húsanna".
9.
Aðalaksipulagsbreyting - Stafafell í Lóni AF3
Málsnúmer 202003098
Ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna AF-3. Tjaldsvæðis á Stafafelli í Lóni í samræmi við deiliskipulagstillögu
Málinu er frestað

10.
Deiliskipulag: Stafafell í Lóni - Tjaldsvæði og þjónustumiðstöð
Málsnúmer 202001087
Tillagan gengur út á að koma upp þjónustumiðstöð með nútímalegri og góðri gistiaðstöðu á tjaldsvæði til að mæta þeim aukna ferðamannafjölda sem gistir á eigin vegum; þ.e. notar húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi o.s.frv. Einnig er reiknað með að þjónustu- og upplýsinga miðstöð fyrir ferðamenn. Svæðið gæti bæði tekið við hópum sem gista í hefðbundnum tjöldum svo um leið og það byði upp á góða aðstöðu fyrir tjald- og fellihýsi og húsbíla.Tjaldsvæði á Íslandi eru flokkuð eftir flokkunarviðmiði sem Ferðamálaráð Íslandshefur sett fram. Markmiðið er að uppfylla í áföngum 4 stjörnu viðmið fyrir tjaldsvæðin í Stafafelli.Á síðasta fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar var samþykkt að skipulagstillagan verði auglýst skv. 40 og 41. gr. skipulagslaga. Strax á eftir kom fram athugasemd frá landeiganda á Brekku og ósk um að ferlið verði stöðvað.
Málinu er frestað

11.
Deiliskipulag - Breiðabólstaður Hali
Málsnúmer 202003097
Ásgrímur vék af fundi undir liðum 11 og 12.Óskað er eftir heimild til að vinna deiliskipulag á Breiðabólsstað - Hala.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimiluð sé vinna við deiliskipulag í samræmi við 40. til 42. gr. skipulagslaga. Allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi og því er fallið frá kröfu um lýsingu. Ákvörðun vísað til bæjarstjórnar.
12.
Byggingaráform: Smáhýsi - Hali
Málsnúmer 202003014
Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir tvær sexherberja sambyggðar smáhýsalengjur. Grenndarkynning hefur farið fram skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga en engar athugasemdir bárust.
Fyrirhugaðar byggingar eru í samræmi við framlögð drög að deiliskipulagi s.br. lið 11 í fundargerð. Framkvæmdirnar hafa verið grenndarkynntar án athugasemda. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur því til að heimilað verði að gefa út byggingarleyfi. En leggur áherslu á að frárennsli sé hugsað og lagt fram með heildarsýn fyrir bæjartorfuna í deiliskipulagi. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarsjórnar.
13.
Óveruleg breyting á deilisikipulagi tjaldsvæði og íbúðarsvæðis við Fiskhól
Málsnúmer 202001047
Óveruleg breyting á byggingarreit á lóð L7, tjaldstæði. Byggingarreit er breytt þannig að hægt sé að byggja sérstæða hreinlætisaðstöðu sunnan við núverandi þjónustubyggingu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að tillagan feli í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins. Nefndin telur breytingin hafí í engu áhrif á hagsmuni í grennd og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
14.
Deiliskipulagsbreyting: Lambleiksstaðir
Málsnúmer 201904036
Markmið með gerð breytingar á deiliskipulagi fyrir Lambleiksstaði er að efla byggð og styrkja atvinnulíf. Ferðaþjónusta hefur lengi verið á Lambleiksstöðum og með gerð þessarar breytingar er rekstrargrundvöllur styrktur, skipulagssvæðið stækkað og skipt í byggingarreiti A-D hver með sína húsaþyrpingu. Breytingin á deiliskipulaginu tekur til frekari uppbyggingar á gistiaðstöðu og nýbygginga fyrir ferðaþjónustu. Skipulagið var til kynningar frá 16. maí til 1. júlí 2019.Tekið fyrir að nýju skv. umsögn Skipulagsstofnunar og með uppfærðum gögnum.
Tillögunni hefur verið breytt á eftirfarandi hátt skv. umsögnum og athugasemd Skipulagsstofnunar.
- Tjaldsvæði hefur verið fellt út úr tillögunni.
- Stærð skipulagssvæðis og byggingarreita hefur verið skilgreind í texta.
- Fornleifar hafa verið skráðar og færðar inn á uppdrátt.
- Byggingaráform og áfangaskipting hafa verið skilgreind nánar og form framsetningar lagfært.

Önnur viðbrögð við athugasemdum:
- Tillagan samræmist aðalskipulagi. VÞ15 heimilar allt að 40 gistirými. Í breytingu á ferðaþjónustukafla aðalskipulags sem nú er í staðfestingarferli há Skipulagsstofnun er þetta skilgreint nánar: "Þar sem fjallað er um gistirými í skipulaginu er almennt miðað við
að eitt gistirými rúmi tvo næturgesti nema annað sé tekið fram."
- Bæjarhúsin eru öll utan deiliskipulagsmarka. Einu húsin sem eru á skipulagssvæðinu eru nýleg smáhýsi, ætluð til ferðaþjónustu. Því er húsakönnun talin óþörf.

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að deiliskipulagið verði samþykkt skv. 41. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu. Starfsmanni falið að svara umsagnaraðilum. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

15.
Deiliskipulag Þorgeirsstaðir í Lóni
Málsnúmer 201908028
Deiliskipulagið nær til hluta jarðanna Þorgeirsstaða (landnr. 159402) og Þorgeirsstaða 3 (landnr.223144) í Lóni í Sveitarfélaginu Hornafirði. Skipulagssvæðið er um 12 ha að stærð og er í þrennu lagi.Á Þorgeirsstöðum er íbúðarhús og fjárhús en einnig hefur verið rekin þar ferðaþjónusta með gistingufyrir 7 gesti. Virkjun er í Þorgeirsstaðaá. Fyrirhuguð er frekari uppbygging á ferðaþjónustustarfsemi,m.a. að breyta fjárhúsum í gistingu og vera með gistingu fyrir allt að 60 gesti. Einnig eru fyrirhugaðartvær nýjar virkjanir í Þorgeirsstaðaá, tjaldsvæði vestan árinnar og göngubrú yfir ána.Í Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar er skipulagssvæðið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði (VÞ35), afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF25) og landbúnaðarsvæði. Þá er heimilt að byggjasmávirkjun með uppsettu rafafli allt að 200 kW.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skipulagstillagan verði auglýst skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
16.
Tilkynning um framkvæmd: Vesturbraut 11 - gluggi í útvegg
Málsnúmer 202002059
Óskað er leyfis til að bæta við glugga á útvegg.
Á svæðinu er ekki í gildi deiliskipulag. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að um óverulegt frávik sé að ræða sem skerði ekki hagsmuni nágranna að neinu leiti og heimilar því breytinguna í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.