Umhverfis- og skipulagsnefnd
111. fundur
4. mars 2026
kl.
16:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Finnur Smári Torfason
1. varamaður
Sindri Sigurjón Einarsson
Fulltrúi ungmennaráðs
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
formaður
Elías Tjörvi Halldórsson
varaformaður
Starfsmenn
Xiaoling Yo
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Eyðing dýraleyfa
Erindi vegna greiðslu gjalda vegna dýrahræja tekið fyrir. Samkvæmt erindi er óskað eftir því að kostnaður sem fellur vegna förgun dýrahræja verði sendur á fyrirtæki.
Málinu vísað til umræðu í bæjarráði.
2.
Tæming rotþróa í sveitarfélaginu
Minnisblað með niðurstöðu útboðs vegna tæmingar rotþróa tekið fyrir. Tvö tilboð bárust, frá Hreinsitækni og Funa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur aukinn sveigjanleika falinn í því að gera samning við báða aðila þar sem heimildir til þess koma fram í útboðinu. Málinu vísað áfram til bæjarráðs.
3.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026
Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur samþykkt drög að samþykkt um meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu. Fyrir fundinum liggur athugasemd frá HAUST og lögfræðingi þeirra.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi drög að samþykkt um meðhöndlun úrgangs. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Breyting á aðalskipulagi vegna jarðanna Birgis og Króks
Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi og nýs deiliskipulags var í kynningu frá 30. desember 2025 til 27. janúar 2026. Alls bárust 8 umsagnir. Umsagnir og tillaga að svörum liggja fyrir fundinum. Samkvæmt uppfærðum gögnum hefur Krókur verið tekinn út úr áframhaldandi vinnu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna breytinguna inn í endurskoðun aðalskipulags. Nefndin leggur áherslu á að yfirlit með stærri breytingum verði kynnt sérstaklega með aðalskipulagstillögu.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Breyting á deiliskipulagi moto-cross - Stækkun vegna fjallahjólabrautar
Erindi Akstursíþróttafélags Austur-Skaftafellssýslu tekið fyrir. Samkvæmt erindi er óskað eftir stækkun svæðis þar sem áformað er að koma fyrir fjallahjólabraut. Félagið óskar ennfremur eftir að fá um 4.000 m³ af uppgreftrarefni til mótunar brautar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er jákvæð fyrir erindinu og felur starfsmanni að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Breyting á deiliskipulagi Nýtt verslunar og þjónustu svæði á Höfn
Óveruleg breyting á deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis á Höfn tekin fyrir.
Starfsmanni falið að vinna drög að breytingu í samræmi við umræður á fundinum.
7.
Breyting á deiliskipulag Breiðabólsstaðartorfa
Tekin er fyrir ósk um breytingu á deiliskipulagi Breiðabólsstaðartorfu. Samkvæmt breytingunni er byggingarreitur lóðarinnar Rof 2 stækkaður um 4 m til suðurs.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur frávik á lögun byggingarreits óveruleg og að þau skerði ekki hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, skuggavarp eða innsýn. Starfsmanni falið að gefa út byggingaleyfi í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
8.
Umsókn um byggingarheimild - Heppuvegur 2A, viðbygging (sólstofa)
Tekin er fyrir umsókn eigenda Heppuvegar 2A um viðbyggingu. Um er að ræða um 33 m² sólskála við suðvestur gafl hússins. Fyrirhuguð áform eru ekki í samræmi við skilmála deiliskipulags sem nær yfir lóðina. Grenndarkynning hefur farið fram án athugasemda.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis.
9.
Umhverfisviðurkenning 2025
Fyrirhuguð veiting umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2025 tekin fyrir. Sveitarfélagið hefur auglýst eftir tilnefningum.
Starfsmanni falið að veita umhverfisviðurkenningar í samræmi við ákvörðun fundarins.
10.
Stjórnsýslukæra UUA2601006 Byggingarheimild Skaftafell 3C
Tekinn er fyrir úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna kæru á ákvörðun byggingarfulltrúa um að samþykkja byggingaráform fyrir byggingu 13 gistihúsa að Skaftafelli 3C í Öræfum. Kærumáli var vísað frá úrskurðarnefndinni.
Lagt fram til kynningar.