Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

112. fundur
18. mars 2026 kl. 16:00 - 17:15
í Miðgarði
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir formaður
Elías Tjörvi Halldórsson varaformaður
Níels Brimar Jónsson 1. varamaður
Starfsmenn
Bartek Andresson Kass
Xiaoling Yo
Fundargerð ritaði:
Bartek Andresson Kass
Dagskrá
1.
Lokun móttökustöðvar á ákveðnum laugardögum í tengslum við helgidaga
Málsnúmer 202603052
Hringrás hefur óskað eftir heimild til að hafa móttökustöðina lokaða á ákveðnum laugardögum í tengslum við helstu hátíðir ársins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við lokanir á laugardögum í tengslum við jól og páska en fer fram á að opið sé á laugardegi um verslunarmannahelgi. Nefndin leggur áherslu á að lokanir verða auglýstar tímanlega.
2.
Yfirlit beitar og slægju hólf innan Hafnar
Málsnúmer 202603057
Tekið er fyrir yfirlit yfir beitar- og slægju svæði innan Hafnar. Á 1212. fundi bæjarráðs var óskað eftir yfirsýn yfir þau svæði sem eru í útleigu sem beitar- og slægju svæði.
Lagt fram til kynningar.
3.
Breyting á deiliskipulagi miðsvæðis
Málsnúmer 202512090
Tekin er fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðsvæði, skóla- og íþróttasvæði. Breytingin felur í sér að lóðin að Hafnarbraut 40b er tekin út. Breytingin hefur verið í kynningu en engar athugasemdir voru gerðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að starfsmanni verði falið að senda breytingu til Skipulagsstofnunar og auglýsa gildistöku. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Hafnarbraut 13-Atvinnuhúsnæði
Málsnúmer 202510031
Tekin er fyrir umsókn um byggingu við Hafnarbraut 13. Áformin hafa verið grenndarkynnt, engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi Hof 1
Málsnúmer 202603003
Tekin er fyrir umsókn Arctic Circle Hotels ehf. vegna áforma um byggingu 14 íbúða starfsmannahúss að Hofi 1 í Öræfum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að kanna hvort fyrirhuguð byggingaráform falli undir skilmála skipulags fyrir svæðið og afla frekari upplýsinga um áformin frá umsækjanda.
6.
Byggingarleyfisumsókn - Mjóatorfa, íbúðarhús
Málsnúmer 202510113
Tekin er fyrir umsókn Hafdísar S. Roysdóttur um leyfi til byggingarframkvæmda að Mjóutorfu í Öræfum. Fyrirhugað er reisa íbúðarhús. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið en samkvæmt aðalskipulagi er svæðið á landbúnaðarsvæði. Grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Umsókn um byggingarleyfi - Hafnarbraut 47, viðbygging
Málsnúmer 202602083
Tekin er fyrir umsókn um leyfi fyrir viðbyggingu við Hafnarbraut 47 (Brautarholt). Viðbyggingin saman stendur af kjallara og tveimur hæðum ásamt tvöföldum staðsteyptum bílskúr. Ekki er í gildi deiliskipulag sem nær yfir lóðina.
Starfsmanni falið að grenndarkynna áform íbúum lóða að Hafnarbraut 45, 45A, 45B, 47A og 49 í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
8.
Áskorun frá Siglingasambandi Íslands
Málsnúmer 202603011
Erindi Siglingasambands Íslands (SÍL) lagt fram. Sambandið skorar á sveitafélög landsins að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengialmennings að sjónum til útivistar og jafnframt huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög ogstarfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar.
Lagt fram til kynningar.
9.
Beiðni frá Kiwanisklúbbnum Keili
Málsnúmer 202603053
Erindi frá Kiwanisklúbbnum Keili um að koma fyrir bekk þar sem útsýni er yfir Hornarfjarðarós til minningar um þá sem fórust með skólaskipinu Mími RE 3 árið 1991.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er jákvæð fyrir erindinu og felur starfsmanni að útfæra verkefnið með umsækjanda.
10.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Lón, Plæging á háspennustreng
Málsnúmer 202603048
Framkvæmdaleyfisumsókn Rarik tekin fyrir. Samkvæmt umfókn á að plægja 19 kV háspennustreng inn í Stafafellsfjöll og frá Brekku að Aðalbóli. Einnig frá Reyðará að Holti. Stofn strengur verður plægður frá Brekku að Aðalbóli og hjálparstrengir út frá honum. Uppsetning spennistöðva, háspennutengiskápa og rofahúsa á leiðinni. Heildarlengd plægingaleiða er um 20km og gert er ráð fyrir að setja upp 13 jarðspennistöðvar, 2 háspennutengiskápa og 2 rofahús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við útgáfu framkvæmdarleyfis en skorar á umsækjanda að taka mið af umsögnum Náttúruverndarstofnunar og Minjastofnunar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Landeignaskrá - Sandfell , umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003575
Málsnúmer 202603047
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Sandfell, þar sem gert er ráð fyrir uppskiptingu landeignar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Umsækjanda er bent á að uppbygging og framkvæmdir hafa ekki verið heimilaðar á svæðinu umfram það sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi. Málinu vísað til bæjarstjórnar.