Umhverfis- og skipulagsnefnd
117. fundur
30. júní 2026
kl.
16:00
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Fundarsalur
Finnur Smári Torfason
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varaformaður
Þórdís Þórsdóttir
aðalmaður
Níels Brimar Jónsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Hjörvar Ingi Hauksson
varamaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar
Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar lagt fram til kynningar. Aðal- og varamenn sitja undir þessum lið.
Erindisbréf verður í framhaldi af fundinum sent aðal- og varamönnum til undirritunar.
2.
Fundargátt sveitarfélagsins - kynning fyrir nefnd
Kynning á fundargátt sveitarfélagsins https://fundargatt.hornafjordur.is/login/. Aðal- og varamenn sitja undir þessum lið.
Sett fram til kynningar.
3.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040 var auglýst í Skipulagsgátt, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana þann 14. apríl 2026 með athugasemdafresti til 12. júní sl. Samtímis og með sama athugasemdafrest var auglýst tillaga að skrá fyrir vegi í náttúru Íslands, sbr. 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 og reglugerð nr. 260/2018. Framlagt, til kynningar og umræðu, minnisblað yfir athugasemdir og ábendingar sem bárust en 25 aðilar skiluðu umsögn. Þau gögn má nálgast í Skipulagsgátt.
Skipulagsráðgjafi Alta fór yfir meginefni athugasemda í framlögðu minnisblaði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að láta vinna drög að svörum við athugasemdum í samræmi við umræður á fundinum. Nefndin mun fjalla um drögin og gera tillögu að svörum til bæjarstjórnar, sbr. 32. gr. skipulagslaga nr. 2010/123 og 16. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
4.
Aðalskipulagsbreyting - Mói í Nesjum
Tekin er fyrir beiðni eigenda jarðarinnar Móa í Nesjum um aðalskipulagsbreytingu. Samkvæmt áformum eigenda er fyrirhugað að byrja á því að reisa hús til útleigu og síðar hús til fastrar búsetu. Svæðið er skv. aðalskipulagi skilgreint sem landbúnaðarland.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar í fyrri afgreiðslu þar sem ekki er fallist á að breytingin verði sett inn í yfirstandandi endurskoðun. Nefndin bendir á að föst búseta er forsenda reksturs gistihúsa á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi sveitarfélagsins.
5.
Orkunýting - Evrópuverkefni - EUCF project
Sveitarfélagið Hornafjörður hlaut styrk frá EU City Facility (EUCF) til að vinna fjárfestingaráætlun um bætta orkunýtingu við sundlaugina á Höfn. Í verkefninu voru tvær hagkvæmar aðgerðir metnar fýsilegar: að setja yfirbreiðslu á sundlaugina og að innleiða varmaendurvinnslukerfi sem nýtir varma úr frárennslisvatni.
Lagt fram til kynningar.
6.
Horn - Deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi að Horni var auglýst frá 10.3. til 21.4. 2025. Umsagnir bárust frá HAUST, Vegagerðinni, Minjastofnun og Landhelgisgæslu Íslands. Farið hefur fram fornleifaskráning og hafa skipulagsgögn verið lagfærð í samræmi við umsagnir. Fyrir fundinum liggur samantekt á umsögnum og tillaga að viðbrögðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði send til athugunar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir fjölorkustöð í Skaftafelli II í Freysnesi í Öræfum
Tekin er fyrir lýsing vegna áforma Vegsauka ehf. um fjölorkustöð og þjónustumiðstöð, Skaftafelli II/Freysnesi í Öræfum. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir fjölorku- og þjónustulóð. Innan lóðarinnar yrði komið fyrir þjónustusvæði eldsneytisafgreiðslu, hleðslustöðvum fyrir rafbíla og þjónustumiðstöð. Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að afmarka lóð og byggingarreiti ásamt því að skilgreina fyrirkomulag aðkomu svæðisins og setja þau ákvæði sem ástæða er til í deiliskipulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að lýsing verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Nefndin leggur einnig til við bæjarstjórn að lýsingin verði kynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. sömu laga.
Samþykkt samhljóma.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóma.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Breyting á deiliskipulagi Nýtt verslunar og þjónustu svæði við Fjárhaga
Tekin er fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæði við Fjárhaga. Breytingin felur í sér færslu lóðamarka ásamt stofnun lóðar undir spennistöð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að gera megi óverulega breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Deiliskipulag - Hagahverfi, staðsetning lóðar fyrir spennistöð
Lagt er fram erindi Sveitarfélagsins Hornafjarðar þar sem óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir lóð Kletthaga 30. Um er að ræða nýja lóð undir spennistöð í Hagahverfi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
10.
Breyting á deiliskipulagi - Hagahverfi, endurskoðun deiliskipulags
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs, dags. 16. júní 2026, þar sem rakin er þörf á endurskoðun deiliskipulags Hagahverfis til að einfalda regluverk og flýta uppbyggingu. Í minnisblaðinu er farið yfir mögulegar breytingar er varða uppskiptingu fjölbýlishúsalóða, frágang bílastæða, blágrænar lausnir og ýmsa byggingarskilmála. Nefndin ræddi framlögð atriði ítarlega og fór yfir mögulegar útfærslur á breytingum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar málinu til áframhaldandi vinnu. Starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs er falið að útbúa tillögu að breytingu á deiliskipulaginu í samræmi við þær áherslur og umræður sem fram komu á fundinum og leggja fyrir nefndina að nýju.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Umsókn um byggingarleyfi Hagi 1 frístandandi gistiálma
Tekin er fyrir byggingarleyfisumsókn gistihúss að Haga 2. Um er að ræða um 170 m² einnar hæðar gistihús með 6 herbergjum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur áformin samræmast landnotkun, byggðarmynstri og þéttleika. Nefndin samþykkir samhljóma að grenndarkynna áform í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
12.
Umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform Hafnarbraut 72
Tekin er fyrir umsókn lóðarhafa Hafnarbrautar 72 um viðbyggingu við núverandi húsnæði. Fyrirhugað er að reisa um 30 m² viðbyggingu. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið en samkvæmt aðalskipulagi er svæðið á athafnarsvæði 2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin samþykkir að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda, samkvæmt 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Samþykkt samhljóða.
13.
Umsókn um byggingarleyfi- Aðalból 2- 2541310
Tekin er fyrir umsókn eigenda Aðalbóls í Lóni um byggingu skemmu. Um er að ræða um 250 m² óupphitaða skemmu/geymsluhúsnæði. Byggingin er ekki ætluð til reglulegrar íveru fólks.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin samþykkir að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda, samkvæmt 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Samþykkt samhljóða.
14.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Hafnarbraut 13
Umhverfis- og skipulagsnefnd ákvað á fundi sínum þann 5. maí 2026 að grenndarkynna fyrirhugaða nýbyggingu gistiheimilis að Hafnarbraut 13 og að málsmeðferð verði skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 8. júní 2026. Við grenndarkynningu bárust engar athugasemdir.
Umhverfis- skipulagsnefnd samþykkir að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Samþykkt samhljóða.
15.
Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu Stokksnesvegur
Lögð er fram ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar dags. 2. júní 2026 um matsskyldu vegna endurbyggingar um 3,7 km kafla Stokksnesvegar á milli Almannaskarðs og Leirtjarnar. Niðurstaða HMS er að framkvæmdin sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Lagt fram til kynningar.
16.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Heppuvegur 6 - Ósk um að setja upp skilti
Tekin er fyrir fyrirspurn frá Heppu Restaurant um uppseningu skiltis á staura sem fyrir eru við gatnamótin Heppuveg - Víkurbraut.
Umhverfis- og skipulagsnefnd setur sig ekki á móti nýtingu staura til uppsetningar á auglýsingaskilti. Nefndin bendir á að staurarnir séu víkjandi í samræmi við gildandi deiliskipulag sem nær yfir svæðið.
17.
Landeignaskrá - Krosseyjarvegur 2, breyting lóðarmarka
Lögð er fram tillaga að stækkun lóðar Krosseyjarvegur 2, en um er að ræða 4.073 m² stækkun. Tillagan hefur verið unnin af starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs í samráði við lóðarhafa. Með því að stækka lóðina um núverandi bílastæði og það svæði sem verktakar höfðu til afnota við byggingu frystihúss, skapast meiri skýrleiki um ábyrgð og viðhaldsskyldu á milli Skinneyjar-Þinganess og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Stækkun myndi einnig tryggja að athafnasvæðið styðji við starfsemi í nýju frystihúsi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stækkun lóðar og vísar erindinu til umræðu í Hafnarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
18.
Landeignaskrá - Skaftafell 2, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003775
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Skaftafell 2 þar sem fjórar lóðir eru sameinaðar í eina sem mun bera heitið Skaftafell 2 hótel.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004
Umsækjanda er bent á að samþykki merkjalýsingar gefur ekki heimild til uppbyggingar eða framkvæmda á svæðinu.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Samþykkt samhljóða.
Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004
Umsækjanda er bent á að samþykki merkjalýsingar gefur ekki heimild til uppbyggingar eða framkvæmda á svæðinu.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Samþykkt samhljóða.
19.
Landeignaskrá - Heiðarlækur umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003776
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Heiðarlæk 1 til 4 þar sem fjórar lóðir eru afmarkaðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga.