Umhverfis- og skipulagsnefnd
118. fundur
20. ágúst 2026
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Fundarsalur
Finnur Smári Torfason
formaður
Þórdís Þórsdóttir
aðalmaður
Níels Brimar Jónsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Erlingur Ingi Brynjólfsson
aðalmaður
Bjarni Haukur Bjarnason
varamaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Umferðaröryggisáætlun
Lögð er fram samþykkt Umferðaröryggisáætlunar Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2026-2036. Í umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins eru sett fram markmið þess fyrir næstu ár á sviði umferðaröryggis. Þar er fjallað um helstu áskoranir og lögð fram aðferðafræði og úrræði sem miða að því að fækka slysum og stuðla að öruggari umferð. Með slíkri áætlun verður stefnumótun sveitarfélagsins skýrari og auðveldara verður að forgangsraða aðgerðum og taka upplýstar ákvarðanir. Samþykkt Umferðaröryggisáætlunar 2026-2036 felur í sér samþykkt á stefnumörkun sveitarfélagsins en ekki samþykkt einstakra tillagna að aðgerðum eða fjárveitinga vegna þeirra.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að Umferðaröryggisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2026-2036 verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
2.
Endurskipulag móttökusvæðis
Tekið er fyrir minnisblað starfsmanna sviðs þar sem farið er yfir endurskipulagningu söfnunarstöðvar á Höfn. Óskað er eftir afstöðu nefndarinnar til þess hvort langtímastefna sveitarfélagsins eigi að byggjast á gjaldtöku fyrir heimilisúrgang á söfnunarstöð eftir rúmmáli eða eftir þyngd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að langtímastefna sveitarfélagsins, vegna gjaldtöku, byggist á að sorp verði vigtað fremur en áætlað skv. rúmmáli. Þangað til að langtímalausn á sorpmóttöku raungerist verði gjaldtaka heimilisúrgangs metin skv. rúmmáli. Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu.
3.
Uppbygging miðbæjar á Höfn
Lögð er fram kynning frá Landsbyggð þar sem kynnt er staða skipulagsvinnu vegna nýs miðbæjar á Höfn. Landsbyggð stefnir á að útbúa skipulagsgögn ásamt greinargerð sem verða aðgengileg íbúum en stefnt er að íbúakosningu vegna verkefnisins haustið 2026.
Lagt fram til kynningar.
4.
Deiliskipulag - Álaugarey
Tekið er fyrir minnisblað starfsmanna sviðs þar sem óskað er eftir afstöðu nefndar hvort hefja eigi deiliskipulag Álaugarey.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að hefja eigi vinnu við deiliskipulag í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ákvörðun vísað til bæjarstjórnar.
5.
Deiliskipulag - Jörðin Birgi í Borgarhöfn
Tekið er fyrir deiliskipulag á jörðinni Birgi. Deiliskipulagið tekur til uppbyggingar á jörðinni Birgi í Borgarhöfn, Suðursveit, í sveitarfélaginu Hornafirði. Skipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu 3-4 stjörnu hótels ásamt tengdri starfsmannaaðstöðu. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 13. maí til 26. júní 2026 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Átta umsagnir bárust. Fyrir fundinum liggur yfirlit yfir umsagnir og tillaga að svörum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að tillagan verði send til athugunar HMS í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Deiliskipulag - Skarðshólar
Tekið er fyrir deiliskipulag á Skarðshólum. Deiliskipulagið er unnið í samræmi við Aðalskipulag Hornafjarðar 2012-2030 þar sem svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland. Skilgreindur er byggingarreitur fyrir íbúðarhúsi og útihúsi auk aðkomu að svæðinu. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 15. apríl til 30. maí 2026 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Þrjár athugasemdir bárust. Fyrir fundinum liggur yfirlit yfir umsagnir og tillaga að svörum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að tillagan verði send til athugunar HMS í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Fyrirspurn UMF Sindra vegna fyrirhugaðrar gistiaðstöðu fyrir leikmenn
Tekið er fyrir erindi Sindra vegna gistiaðstöðu fyrir leikmenn. Körfuknattleiksdeild UMF Sindra hefur fengið tækifæri til að gera langtímaleigusamning um hluta fasteignarinnar að Álaugarvegi 21, sem jafnan er nefnd Garðeyjarhúsið. Í erindi er óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til fyrirhugaðrar nýtingar á húsnæðinu sem gistiaðstöðu fyrir allt að fimm leikmenn deildarinnar.
Sveitarfélagið vinnur að heildarendurskoðun á aðalskipulagi þar sem gert er ráð fyrir að heimilt verði að reka langtímaleigu á viðkomandi athafnasvæði. Jafnframt er unnið að gerð deiliskipulags fyrir svæðið.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og telur að fyrirhuguð nýting geti samræmst þeirri stefnu sem unnið er að í yfirstandandi skipulagsferli. Nefndin bendir þó á að endanleg heimild til breyttrar notkunar húsnæðisins er háð því að fyrirhuguð starfsemi samræmist gildandi skipulagi þegar leyfisumsókn er tekin til afgreiðslu, auk þess sem uppfylla þarf önnur skilyrði samkvæmt lögum og reglugerðum, eftir því sem við á.
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að upplýsa umsækjanda um stöðu skipulagsvinnunnar og þau leyfi sem kunna að vera nauðsynleg vegna fyrirhugaðrar breytingar á notkun húsnæðisins.

8.
Júllatún einstefna - Óveruleg breyting á deiliskipulagi
Tekin er fyrir ósk um að einstefnu götu í enda Júllatúns verði breytt í tvístefnu með forgangsstýringu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að einstefnu í enda Júllatúns verði breytt í tvístefnu með forgangsstýringu og að málsmeðferð verði í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga enda um svo óverulegt frávik að ræða.
9.
Samtök orkusveitarfélaga Kynningarbæklingur til kjörinna fulltrúa
Tekið er fyrir kynningarbréf Samtaka orkusveitarfélaga. Samtök orkusveitarfélaga eru samstarfsvettvangur sveitarfélaga sem hafa beina hagsmuni af nýtingu orkuauðlinda, uppbyggingu og rekstri orkuvera og áhrifumorkuvinnslu á nærsamfélög.
Lagt fram til kynningar.
10.
Landeignaskrá - Austurhóll, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar (M002260 )
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Austurhól, þar sem gert er ráð fyrir stofnun lóðar Austurhóll 2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

11.
Landeignaskrá - Hlíðartún 5, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar (M004132)
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Hlíðartún 5, þar sem gert er ráð fyrir uppfærslu á skráningu lóðar til samræmis við uppmælingu hennar.