Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

119. fundur
25. ágúst 2026 kl. 13:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Fundarsalur
Finnur Smári Torfason formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varaformaður
Þórdís Þórsdóttir aðalmaður
Níels Brimar Jónsson aðalmaður
Helga Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Erlingur Ingi Brynjólfsson aðalmaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040 var auglýst í Skipulagsgátt, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana þann 14. apríl 2026 með athugasemdafresti til 12. júní sl. Samtímis og með sama athugasemdafrest, var auglýst tillaga að skrá fyrir vegi í náttúru Íslands, sbr. 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 og reglugerð nr. 260/2018. Sjá mál nr. 11/2023 í skipulagsgátt. Umsagnir bárust frá 25 aðilum (sjá Skipulagsgátt) og er efni þeirra dregið saman í minnisblaði sem umhverfis- og skipulagsnefnd fékk sent 6. júlí sl. Í minnisblaðinu eru einnig drög að svörum til umfjöllunar og afgreiðslu nefndarinnar.
Skipulagsráðgjafi Alta fór yfir helstu athugasemdir og drög að svörum í framlögðu minnisblaði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að ganga frá svörum í samræmi við umræður á fundinum og uppfæra aðalskipulagsgögn í samræmi við þau.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja aðalskipulagstillögu og tilheyrandi umhverfismatsskýrslu með breytingum, skv. minnisblaði, í samræmi við sbr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 16. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Samþykkt samhljóða.
2.
Vegir í náttúru Íslands - Endurskoðun aðalskipulags
Málsnúmer 202410089
Tillaga að skrá fyrir vegi í náttúru Íslands, sbr. 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 og reglugerð nr. 260/2018, var auglýst og birt í Skipulagsgátt samtímis tillögu að Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040. Athugasemdafrestur var frá 14. apríl til 12. júní 2026. Efni þeirra athugasemda sem bárust við vegaskrána er dregið saman í minnisblaði sem umhverfis- og skipulagsnefnd fékk sent 6. júlí sl. Í minnisblaðinu eru einnig drög að svörum til umfjöllunar og afgreiðslu nefndarinnar.
Skipulagsráðgjafi Alta fór yfir helstu athugasemdir og drög að svörum í framlögðu minnisblaði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að ganga frá svörum í samræmi við umræður á fundinum og uppfæra vegaskrána í samræmi við þau.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að vegaskrá með breytingum, skv. minnisblaði, í samræmi við 2. mgr. reglugerðar nr. 260/2018 um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd.
Samþykkt samhljóma.