Umhverfis- og skipulagsnefnd
12. fundur
6. maí 2020
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson
formaður
Finnur Smári Torfason
varaformaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Matthildur U Þorsteinsdóttir
1. varamaður
Íris Mist Björnsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
umhverfisfulltrúi
Bartosz Skrzypkowski
byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 1
Byggingarfulltrúi hefur tekið upp það verklag að hafa afgreiðslufundi byggingafulltrúa aðra hverja viku.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
2.
Hreinsunarvika 2020
Í hreinsunarviku sveitarfélagsins í apríl voru sótt 150 tonn af brotajárni í sveitirnar. Hreinsunarátakið gekk vel og var meira magn sótt en áður.
Lagt fram til kynningar.
3.
Uppgræðsla með seyru
Minnisblað var unnið fyrir umhverfis og skipulagsnefnd til þess að kanna grundvöll þess að nýta seyru til uppgræðslu. Töluverð tækifæri eru í slíku framtaki. 277 tonn af seyru voru urðuð í Lóni árið 2019, hægt væri að minnka slíka urðun svo um munar, spara flutningskostnað og mengun sem af flutningnum verður og árlega mætti binda um 36 tonn af CO2 sem samsvarar útblæstri frá 18 bensíndrifnum fólksbílum á ári. Sveitarfélagið gæti með þessu tekið fyrstu skrefin í að kolefnisjafna rekstur sinn sem ávallt verða meiri kröfur um. Á ca 10 árum ætti að vera hægt að vera búið að greiða upp stofnfjárfestinguna.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
4.
Urðunarstaður: Grænt bókhald 2019
Tekið hefur verið saman grænt bókhald fyrir urðunarstaðinn í Lóni 2019 og skilað inn til Umhverfisstofnunar með fyrirvara um undirskrift bæjarstjórnar. Talsverð frávik voru frá starfsleyfi eftir síðasta eftirlit Umhverfisstofnunar. Úrbótum er lokið skv. áætlun þar um. Samtals voru urðuð 2.566 tonn af úrgangi á urðunarstaðnum í Lóni árið 2019. Úrgangurinn erfrá fyrirtækjum og heimilum. Djúpavogshreppur hefur urðað úrgang í Lóni en samstarfssamningur rann út í janúar 2020. Magn úrgangs til urðunar minnkaði um 1000 tonn frá árinu 2018, helstu áhrifaþættir fyrir minnkun úrgangs eru að lífrænn úrgangur frá sláturhúsi og fiskvinnslu dróst verulega saman. Til þess að framfylgja kröfum um minnkun úrgagns til urðunar er þörf á aðgerðum.
Lagt fram til kynningar og vísað til bæjarstjórnar.
5.
Samningur um styrk: Göngu- og hjólastígur milli Svínafells og Skaftafells
Sveitarfélagið hefur hlotið styrk, 12 milljónir til hönnunar á Göngu- og hjólastígs milli Svínafells og Skaftafells.
Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu skv. umræðum á fundinum.
6.
Styrkir Sveitarfélagsins vegna Jöklaleiðar.
Greiddar hafa verið bætur vegan tjóns í hamfaraflóðum 2017 og því í undirbúningi að lagfæra göngubrýr Hólmsá og Kolgrímu og vinna áfram í Jöklastíg.
Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu skv. umræðum á fundinum.
7.
Umgengni og hreinsun á Eystri-Ægissíðu
Tillaga að hreinsunarátaki á Eystri-Ægissíðu og nærumhverfi þéttbýlisins.
Starfsmanni falið að skipuleggja hreinsunarátak og hafa samband við lóðarhafa.
8.
Gjaldskrá: Beitar- og slátturhólf í landi sveitarfélagsins
Umræða um samninga vegna leigu á beitarhólfum, gjaldskrá og umgengni.
Starfsmanni falið að vinna að gerð gjaldskrár og frágangi samninga við leigjendur.
9.
Áherslur sumarsins 2020 í umhverfinu
Umræða um áherslur sumarsins í umhverfinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að leggja áherslu á fegrun umhverfis í sumar. Unnið verði að stígagerð og undirbúningi fyrir stígagerð. Leitast verði við að yfirfara gróðursvæði og endurnýja og bæta við gróðri til skjólmyndunar á fjölförnum svæðum. Leiksvæði verði lagfærð og undirbúin áætlun fyrir endurnýjun leiksvæða í sveitarfélaginu. Unnið verði að skapandi verkefnum með vinnuskólanum á ákveðnum svæðum. Auk þessa verði unnið að girðingar- og viðhaldsverkefnum ýmiskonar.
10.
Hönnun: Fráveita, götur og gangstéttir Hafnarbraut
Unnið er að hönnun Hafnarbrautar og endurnýjun fráveitu. Lögð fram til umræðu frumdrög að hönnun.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
11.
Brunavarnir og gámabyggðir í Öræfum
Íbúasamtök Öræfa sendu sveitarfélaginu bréf þar sem þau lýsa áhyggjum sínum vegna tveggja nýlegra bruna á svæðinu.
Starfsmönnum falið að undirbúa og vinna viðbrögð af hálfu sveitarfélagsins vegna brunavarna og gámabyggða í sveitarfélaginu.
12.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Umræða um skólamál og næstu skref.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
13.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi: Víkurbraut 25 og 27
Í breyttu deiliskipulagi voru bílastæði færð út fyrir lóðir og eru því alfarið í landi bæjarins. Hæðarsetningar eru vandamál þarna þar sem búið er að stækka byggingarreit hjúkrunarheimilis. Í upphaflegu skipulagi er sýnd hæðarlega sem ekki gengur upp. Lagt er til að sveitarfélagið geri aðkomu, bílastæði og stíg skv. deiliskipulagi. Búin verði til lóð um bílastæðin sem fylgi íbúðarlóðum í sameign. Þannig verði rekstur svæðisins á höndum íbúa og hægt að setja upp rekstrarfélag um rafbílahleðslu, snjóbræðslu og sorpskýli. Einnig að lóðarhafa verið heimilt að hækka svæðið sunnan og vestan við byggingarnar til þess að aðlaga lóðina að aðliggjandi landi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagðar tillögur.
14.
Tilkynning um framkvæmd: Kirkjubraut 63 - breyt notkun bílskúrs og stækkun
Engar athugasemdir bárust við grenndarkynningu og allir nágrannar skrifuðu undir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar málinu til bæjarstjórnar.
15.
Stafafellsfjöll: kæra v. byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum
Borist hefur athugasemd við ákvörðun byggingarfulltrúa.
Ákvörðun byggingarfulltrúa frá 30. júlí 2018 í máli nr. 200909003 um að Sveinbirni Imsland er gert að fjarlægja sumarhús af lóðinni eða flytja það inn á byggingarreit er byggð á þeim forsendum að umrætt hús er án byggingarleyfis, staðsett utan byggingarreits lóðar og u.þ.b. 2m frá lóðarmörkum. Byggingarfulltrúi telur að rökstuðningur ákvörðunar sé í samræmi við 21. og 22. gr. stjórnsýslulaga 37/1993 og að meðalhófs hafi verið gætt eins og kom fram í úrskurði í máli nr. 107/2019 Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
16.
Deiliskipulag Stafafellsfjöllum
Vakin hefur verið athygli á því að ýmsar byggingar í Stafafellsfjöllum hafi ekki leyfi eða séu staðsettar utan við byggingarreiti. Komið hefur fram ósk frá landeiganda í Stafafellsfjöllum um að tekinn verði einhverskonar núllpunktur nú og í framhaldinu verði því fylgt eftir stífar að skipulagsskilmálum sé fylgt og að hús á svæðinu hafi gilt byggingarleyfi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að með núgildandi skipulagi hafi verið tekinn núllpunktur og að allar byggingar og framkvæmdir á svæðinu skuli vera samkvæmt því.
17.
Umsögn um breytingar á lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna. Mál 715
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis Óskar umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna (aðilar utan Evrópska efnahagssvæðisins, landeignaskrá, ráðstöfun landeigna, aukið gagnsæi o.fl.), 715. mál.Þingskjalið má sækja hér: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=150&mnr=715
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við lagabreytingar.
18.
Júllatún 17 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Ásgrímur vék af fundi undir þessum lið. Óskað er eftir stækkun lóðar nr. 17 við Júllatún. Þar sem áætlað er að leggja göngustíg milli lóða 15 og 17 þarf að minnka lóð nr. 15 samsvarandi. Samráð hefur verið haft við eiganda í Júllatúni 15.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna breytingu á afmörkun lóða við Júllatún 15 og 17 skv. 44. gr. skipulagslaga.