Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

120. fundur
2. september 2026 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Fundarsalur
Finnur Smári Torfason formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varaformaður
Þórdís Þórsdóttir aðalmaður
Níels Brimar Jónsson aðalmaður
Erlingur Ingi Brynjólfsson aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson Áheyrnarfulltrúi til vara
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Deiliskipulag - endurskoðun deiliskipulags Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands, HSU og deiliskipulags austan Víkurbrautar, svæði S3
Málsnúmer 202605833
Bæjarstjórn hefur ákveðið að hefja skuli undirbúning að endurskoðun deiliskipulags á svæðinu við Víkurbraut 24-30 og nærliggjandi reitum. Verkefnið tengist stefnumörkun sveitarfélagsins um uppbyggingu velferðarkjarna á svæðinu, þar sem horft verði heildstætt til framtíðaruppbyggingar búsetuúrræða, öldrunarþjónustu, þjónustu við fatlað fólk, hjúkrunarheimilis og heilbrigðisþjónustu. Í stefnu um framtíðarsýn í málefnum aldraðra 2026-2034 er lögð áhersla á fjölbreytta þjónustu, inngildandi samfélag og sjálfstætt líf, auk þess sem sérstaklega er gert ráð fyrir að unnið verði að endurskoðun deiliskipulags á Víkurbraut S3 og reit heilbrigðisstofnunarinnar með það að markmiði að móta velferðarkjarna. Samhliða þessari vinnu verður stofnaður vinnuhópur sérfræðinga og hagsmunaaðila sem mun leiða vinnuna. Lagt er fram til kynningar erindisbréf vinnuhópsins sem samþykkt var í bæjarráði 28.7.2026.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að unnin verði breyting á gildandi deiliskipulagi í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóma.
2.
Mögulega mengaður jarðvegur á lóð fyrrum bensínstöðvar
Málsnúmer 202608044
Möguleg mengun jarðvegs á lóð fyrrum bensínstöðvar við Hafnarbraut 38 kom til skoðunar í tengslum við fyrirhugaða byggingu íþróttahúss. Þar sem svæðið er nálægt leiksvæði barna er talið rétt að rannsaka jarðveginn frekar m.t.t. mögulegrar mengunar, jafnvel þótt íþróttahúsið verði að lokum byggt á öðrum stað.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að frekari rannsóknir verði gerðar til að kanna umfang mögulegrar mengunar. Samþykkt samhljóma. Málinu vísað til bæjarráðs.
3.
Breyting á deiliskipulagi moto-cross - Stækkun vegna fjallahjólabrautar
Málsnúmer 202602161
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Moto-cross svæði á Höfn var auglýst frá 13. maí með athugasemdafresti til 26. júní 2026. Breytingin felur í sér stækkun á skipulagssvæði og skilgreiningu á svæði til íþróttaiðkunar innan þess. Samhliða breytingunni er landnotkun stækkunar breytt úr landbúnaðarlandi í íþróttasvæði en sú vinna er hluti af endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.Fjórar athugasemdir/umsagnir bárust á auglýsingatíma. Breytingar voru gerðar að loknum auglýsingatíma.Á uppdrætti er fjallahjólabraut minnkuð að sunnanverðu á svæði sem nú er nýtt er sem beitarhólf fyrir hross og áætlað er að verði áfram. Einnig er girðingu bætt við sunnan við fjallahjólabraut til þess að aðskilja svæðin en staðsetning er leiðbeinandi.Í greinargerð er texta bætt við í kafla um öryggi og umhverfismál þar sem fram kemur að girðing aðskilji akstursíþróttasvæðið frá beitarhólfi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillaga, með breytingum, verði send til yfirferðar HMS í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Samþykkt samhljóða. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Deiliskipulagsbreyting Skaftafell III og IV
Málsnúmer 202604118
Tekin er fyrir tillaga að deiliskipulagsbreytingu Skaftafell III og IV. Breytingin felur í sér að heimild er að byggja einnar hæðar hús á reitunum A,B,D,E og F í stað tveggja hæða húsa líkt og núverandi skipulagsákvæði heimila. Hámarkshæð húsa verður 4,0 m miðað við aðkomu hæð (gólfplötu). Hámarks grunnflötur húsa er 64 m².Tillagan var í auglýsingu frá 15. maí til 26. júní 2026, alls bárust átta umsagnir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að ræða við málsaðila í samræmi við umræður á fundinum.
5.
Lóðir fyrir verslun og þjónustu á miðsvæði
Málsnúmer 202608026
Minnisblað skipulags- og byggingafulltrúa varðandi þjónustulóðir innan þéttbýlis lagt fram.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að unnin verði breyting á gildandi deiliskipulagi í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða.
6.
Tímabundnar umferðaröryggisaðgerðir á hafnarsvæðinu
Málsnúmer 202512003
Lagðar eru fram tvær tillögur að breyttu umferðarskipulagi og útfærslu bílastæða á hafnarsvæðinu. Meginmarkmið tillagnanna er að auka öryggi í tengslum við starfsemi á hafnarsvæðinu og vegfarenda á svæðinu, auk þess að tryggja greiðara umferðarflæði og bæta við skiltum og merkingum á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að valkostur A verði valin til framkvæmdar. Nefndin telur mikilvægt að staðsetning bílastæða á nærsvæði verði sýndar á yfirlitsskilti. Ennfremur telur nefndin mikilvægt að möguleiki verði á lokun á milli Heppu og Skinney Þinganes þegar starfssemi er mikil.
Málinu vísað til umræðu í hafnarstjórn.
7.
Ábending um umferðaröryggi í Álaleiru og Hagaleiru
Málsnúmer 202504069
Hólmar H. Unnsteinsson og Hafrún Eiríksdóttir Álaleiru 17 senda inn ósk um botnlanga í enda Álaleiru, við Hagaleiru. Bent er á að umferð er mikil um götuna og stafar hún íbúum og börnum mikla hættu og mikið ónæði.Erindinu var vísað til endurskoðunar umferðaröryggisáætlunar á fundi nefndarinnar þann 07.05.2025. Umferðaröryggisáætlun gerir ekki ráð fyrir sérstakar aðgerðir á þessum stað, en hún gerir hins vegar ráð fyrir þverun á öðrum hluta Hagaleiru, m.a. til að draga úr hraða og bæta öryggi við aðkomu að opnu svæði innan hverfisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið, en í ljósi nýrrar umferðaröryggisáætlunar telur nefndin ekki þörf á þessum aðgerðum. Til að koma við móts við ábendingu leggur nefndin til að við innleiðingu aðgerða öryggisáætlunar verði þverun Hagaleiru í forgangi.

8.
Ósland - endurbætur á göngustíg
Málsnúmer 202608022
Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda um endurbætur á göngustígum í Óslandi lagt fram. Bæjarráð vísaði málinu til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur framkvæmdina óverulega í samræmi við 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og því ekki háða framkvæmdaleyfi. Starfsmanni falið að afla leyfis Náttúruverndarstofnunar.
9.
Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi
Málsnúmer 202608021
Lagt fram erindi frá Samtökum um dýravelferð, dags. 6. ágúst 2026, þar sem sveitarfélög eru hvött til að taka afstöðu til loðdýraræktar við mótun aðalskipulags. Í erindinu er vísað til ákvörðunar Norðurþings um að banna loðdýrarækt innan sveitarfélagsins í aðalskipulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að landnotkun og stefnumörkun í aðalskipulagi taki mið af sjónarmiðum um sjálfbærni, náttúruvernd og dýravelferð. Nefndin telur rétt að erindið verði haft til hliðsjónar við næstu endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.
10.
Umsókn um afnot af bæjarlandi fyrir malbikunarstöð
Málsnúmer 202608083
Colas Ísland ehf. óskar eftir samþykki sveitarfélagsins fyrir uppsetningu malbikunarstöðvar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir staðsetningu malbikunarstöðvar við Ægissíðu í 3 vikur, að því tilskyldu að umsóknaraðili skili svæðinu í sama ásigkomulagi og hann kom að því. Málinu vísað til bæjarráðs.