Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

121. fundur
29. september 2026 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Fundarsalur
Finnur Smári Torfason formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varaformaður
Þórdís Þórsdóttir aðalmaður
Níels Brimar Jónsson aðalmaður
Helga Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Hjörvar Ingi Hauksson varamaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026
Málsnúmer 202601013
Athugasemdir hafa borist frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu (URN) við Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026. Drögin hafa verið yfirfarin og breytingar gerðar í samræmi við athugasemdir ráðuneytisins eftir því sem við á. Tvö atriði þarfnast þó frekari umfjöllunar og ákvörðunar nefndarinnar áður en hægt er að halda áfram með samþykktina í næsta skref samþykktarferlisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að vegna heimajarðgerðar verði einföld leið valin þar sem heimajarðgerð er heimiluð án sérstaks skráningar- eða úttektarkerfis.
Varðandi heimilisúrgang frá rekstraraðilum samþykkir nefndin leið í samræmi við tillögur ráðuneytisins. Sú leið veitir meira réttaröryggi en gerir rekstraraðilum jafnframt áfram kleift að semja beint við þjónustuaðila um söfnun.
2.
Deiliskipulag - Álaugarey
Málsnúmer 202607044
Fyrirhugað deiliskipulag Álaugarey tekið fyrir. Tillaga að afmörkun svæðis er til umræðu.
Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundi.
3.
Skipulagsmál í landi sveitarfélagsins
Málsnúmer 202608045
Minnisblaðið varðandi stöðu íbúðarlóða í Sveitarfélaginu Hornafirði og möguleika til frekari uppbyggingar tekið fyrir. Samkvæmt íbúaspá er áætluð þörf fyrir um 160-270 nýjar íbúðir til ársins 2040, eða að jafnaði 11-18 íbúðir á ári.
Lagt fram til kynningar.
4.
Skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir fjölorkustöð í Skaftafelli II í Freysnesi í Öræfum
Málsnúmer 202606088
Lýsing vegna áforma um fjölorkustöð í landi Skaftafells II/Freysnes var auglýst frá 22. júlí til 2. september 2026. Sex umsagnir bárust.
Starfsmanni falið að svara umsögnum í samræmi við samantekt og tillögu að viðbrögðum og vísar þeim til áframhaldandi vinnu.
5.
Skráning vega í náttúru Íslands, vegur við Freysnes
Málsnúmer 202609099
Tekin er fyrir ósk landeiganda að Freysnesi að fella veg út af skrá yfir vegi í náttúru Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að umræddur vegur verði tekinn af skrá. Breytingu vísað til næstu breytingar á aðalskipulagi.
6.
Borgarhafnarfjall - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Málsnúmer 202506007
Tekin er fyrir umsókn Landhelgisgæslu Íslands um byggingu ratsjárstöðvar á Borgarhafnarfjalli. Um er að ræða lítið mannlaust tæknimannvirki sem hýsir ratsjá og tölvubúnað til notkunar við vöktun á landhelgi og lögsögu Íslands.
Mannvirkið fellur undir 2.3.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 og er því undanþegið byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við umrædda framkvæmd. Samþykkt samhljóða.
7.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Leikskólinn Sjónarhóll- bílastæðamerking á hringtorg
Málsnúmer 202609027
Tekið er fyrir erindi Sigrúnar Birnu Steinarsdóttir vegna umferðar við leikskólann Sjónarhól. Í erindi er óskað eftir að sett verði upp skilti sem merkja einstefnu við hringtorg til að forðast umferðaröngþveiti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið og felur starfsmanni að vinna áfram í málun í samræmi við umræður á fundinum.
8.
Fyrirspurn um framkvæmdarleyfisskyldu - Breyting slóða að vestanverðum Breiðamerkurjökli
Málsnúmer 202609080
Tekin er fyrir fyrirspurn Náttúruverndarstofnunar um framkvæmdarleyfisskyldu vegna lengingar vegslóða við Breiðármerkurjökul. Umrædd framkvæmd er í samræmi við stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.



Umhverfis- og skipulagsnefnd telur framkvæmdina óverulega í samræmi við 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og því ekki háða framkvæmdaleyfi.
Samþykkt samhljóma.
9.
Gangstétt á Fiskhól
Málsnúmer 202609047
Tekin er fyrir ósk um að Fiskhóll verði með samfelldri gangbraut.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.

Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið og felur starfsmanni að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
10.
Umsókn um byggingarheimild - fjarskiptamastur í Suðursveit
Málsnúmer 202608082
Tekin er fyrir umsókn um uppsettningu fjarskiptamasturs í Suðursveit.
Mannvirkið fellur undir 2.3.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 og er því undanþegið byggingarleyfi. Umvherfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við umrædda framkvæmd. Samþykkt samhljóða.
11.
Landeignaskrá - Bær 2 Neðri bær, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003949
Málsnúmer 202609002
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Bær 2 Neðri bær, þar sem gert er ráð fyrir stofnun nýrrar 57 m² lóðar undir rofastöð.



Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Nefndin telur að stofnun lóðar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004

Umsækjanda er bent á að samþykki merkjalýsingar gefur ekki heimild til uppbyggingar eða framkvæmda á svæðinu.

Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
12.
Landeignaskrá - Skaftafell 3, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003310
Málsnúmer 202607002
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Skaftafell 3, þar sem gerðar eru millilóðir úr Skaftafelli 3 og Sandbúðum 2 og sameinaðar Sandbúðum 1a og Skaftafelli 3.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004

Umsækjanda er bent á að samþykki merkjalýsingar gefur ekki heimild til uppbyggingar eða framkvæmda á svæðinu.

Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
13.
Landeignaskrá - Ránarslóð 6, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003474
Málsnúmer 202602168
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Ránarslóð 6.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

14.
Endurnýjun lóðarleigusamnings - Ránarslóð 4
Málsnúmer 202605775
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Ránarslóð 4.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.