Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

122. fundur
21. október 2026 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Fundarsalur
Finnur Smári Torfason formaður
Þórdís Þórsdóttir aðalmaður
Níels Brimar Jónsson aðalmaður
Bjarni Haukur Bjarnason varamaður
Erlingur Ingi Brynjólfsson aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson Áheyrnarfulltrúi til vara
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
Málsnúmer 202510014
Tillögur að gjaldskrá 2027 (Gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu og Gjaldskrá söfnunarstöðvar sorps) eru lagðar fyrir nefndina til umfjöllunar og samþykktar. Þar sem kostnaður vegna pappírs- og plastúrgangs getur haft bein áhrif á gjaldskrárgerð eru þau mál einnig lögð fyrir nefndina til umfjöllunar og ákvörðunar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að hækkun vegna íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis hækki ekki meira en 2,5 %. Nefndin leggur til að sorphirðugjöld vegna frístundahúsnæðis hækki um 10 % og sorpeyðingargjald verði leiðrétt og lækkað m.v. raunkostnað. Nefndin leggur til að gjaldskrá vegna eyðingu dýraleyfa, móttökugjald á urðunarstað og söfnunarstað hækki ekki meira en 2,5 %. Nefndin óskar eftir mögulegum sviðsmyndum varðandi gjaldtöku vegna móttöku endurvinnsluefna frá fyrirtækjum.
Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu.
Samþykkt samhljóma.
2.
Deiliskipulagsbreyting Skaftafell III og IV
Málsnúmer 202604118
Tekin er fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi Skaftafell III og IV. Breytingin var auglýst með athugasemdafresti frá 13. maí til 26. júní 2026. Átta umsagnir bárust á auglýsingatíma. Viðbrögð við athugasemdum fela m.a. í sér að grunnflötur húsa er minnkaður úr 64 m² í 54 m² og hæð húsa er minnkuð í 3,5 m og verða húsin á einni hæð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að uppfærð tillaga verði send til athugunar HMS í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málinu vísað til bæjarstjórna
3.
Deiliskipulag Mói á Hnappavöllum
Málsnúmer 202610008
Tekin er fyrir tillaga að deiliskipulagi Mói á Hnappavöllum. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir Móa á Hnappavöllum í Öræfum, lóðin er samkvæmt aðalskipulagi skilgreind sem verslunar- og þjónustusvæði (VÞ 46). Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina ramma og forsendur fyrir heildræna framtíðaruppbyggingu ferðaþjónusturekstrar, þjónustu við ferðamenn og aðstöðu fyrir starfsmenn. Með skipulaginu eru afmarkaðar þrjár nýjar lóðir fyrir gistihús innan lands Móa og settir skilmálar um landnotkun, aðkomu, mannvirki og nýtingarhlutfall.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að tillagan verði kynnt í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga og auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Krosseyjarvegur 21-23
Málsnúmer 202610053
Tekin er fyrir fyrirspurn Jökulfells ehf. vegna uppbyggingaráforma á Krosseyjarvegi 21-23. Samkvæmt aðalskipulagi er landnýtingarflokkur svæðisins skilgreindur sem athafnasvæði (AT1). Í fyrirspurn er óskað eftir því að reisa byggingar sem nýttar verða til útleigu eða fastrar búsetu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem áformin samræmast ekki landnýtingarflokki svæðisins í aðalskipulagi.
Samþykkt samhljóma.
5.
Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Austurbraut 18, breikkun innkeyrslu
Málsnúmer 202610016
Ásgeir Gunnarsson óskaði eftir heimild til niðurtektar á kantsteini við innkeyrslu inn á lóðina Austurbraut 18. Um er að ræða breikkun á innkeyrslu um 2m, við breytinguna mun innkeyrsla að parhúsi að Austurbraut 18 og 20 vera samtals um 8,4 m.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti erindið samhljóma í tölvupósti þann 02.10.2026.
6.
Framkvæmd - færsla gámasvæðis
Málsnúmer 202507064
Sveitarfélagið áformar færslu á gámsvæði, geymsla gáma er nú staðsett á Álaugarvegi 13-15. Nefndin lagði til á 150. fundi sínum færslu gámasvæðis út í Ægissíðu. Fyrir fundinum liggja mismunandi útfærslur af lóðaafmörkunum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að tillaga 3 verði valin. Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu.
7.
Efnislosun í þéttbýli Hafnar - viðtökusvæði
Málsnúmer 202410093
Leitað hefur verið ráðgjafar Náttúrustofu Suðuausturlands NÁTTSA vegna viðtökusvæða fyrir efnislosun innan þéttbýlismarka Hafnar. Um er að ræða endanlega efnislosun á uppgraftrarefni frá framkvæmdum í þéttbýli.

Umsögn NÁTTSA liggur nú fyrir og er lögð fram til kynningar nefndar.

Í umsögninni kemur fram tillaga um að svæðið á milli Stekkatúnshóls og Suður-Langhóls verði nýtt sem efnislosunarsvæði fyrir uppgraftarjarðveg vegna framkvæmda.

Samvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði skilgreint sem íþróttasvæði (ÍÞ2), en umrætt svæði hefur verið notað sem beitiland.



Umhverfis- og framkvæmdasvið óskar eftir áliti nefndarinnar vegna tillögu Náttúrustofu Suðausturlands.
Samkvæmt viðauka II í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 er umfang efnislosunar ekki háð fyrirspurn um matsskyldu. Efnislosunin er háð útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 5. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 773/2021 en einnig þarf að grenndarkynna áformin í samræmi við 8. gr. sömu laga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að gefið verði út framkvæmdaleyfi ásamt því að umrædd framkvæmd verði grenndarkynnt.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Landeignaskrá - Skaftafell 4A, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M004318
Málsnúmer 202609110
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Skaftafell 4A, þar sem gert er ráð fyrir leiðréttingu á skráningu landeignar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004

Umsækjanda er bent á að samþykki merkjalýsingar gefur ekki heimild til uppbyggingar eða framkvæmda á svæðinu.

Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
9.
Landeignaskrá - Skaftafell 4, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M004319
Málsnúmer 202609111
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Skaftafell 4B, þar sem gert er ráð fyrir stofnun lóðar Skaftafell 4B.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004

Umsækjanda er bent á að samþykki merkjalýsingar gefur ekki heimild til uppbyggingar eða framkvæmda á svæðinu.

Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
10.
Landeignaskrá - Dilksnes og Dilksnes II, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M004334
Málsnúmer 202609121
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Dilksness og Dilksness II, þar sem gert er ráð fyrir uppskiptingu landeignar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004

Umsækjanda er bent á að samþykki merkjalýsingar gefur ekki heimild til uppbyggingar eða framkvæmda á svæðinu.

Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar telst fullnaðarafgreiðsla málsins í samræmi við 2. gr. viðauka I samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.