Umhverfis- og skipulagsnefnd
123. fundur
4. nóvember 2026
kl.
15:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Fundarsalur
Finnur Smári Torfason
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varaformaður
Þórdís Þórsdóttir
aðalmaður
Níels Brimar Jónsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Erlingur Ingi Brynjólfsson
aðalmaður
Theódór Árni Stefánsson
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskaði eftir að unnar verði sviðsmyndir vegna endurskoðunar á gjaldtöku vegna meðhöndlunar úrgangs frá fyrirtækjum, bæði hvað varðar fast gjald og móttökugjöld fyrir endurvinnanlegan úrgang.
Markmið minnisblaðs er að fara yfir núverandi fyrirkomulag, skoða meginreglur um skiptingu kostnaðar við meðhöndlun úrgangs, kanna þær leiðir sem önnur sveitarfélög hafa farið og leggja fram mögulegar útfærslur á gjaldtöku til frekari umfjöllunar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að sviðsmynd 3 verði fyrir valinu.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
2.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lagt fram bréf Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 16.10.2026, þar sem stofnunin bendir á atriði sem bregðast þarf við áður en aðalskipulagið verður staðfest skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig lagt fram bréf HMS, dags. 2.11.2026, þar sem bent er á atriði í stafrænum skipulagsgögnum sem þarf að lagfæra fyrir staðfestingu.
Jafnframt lagt fram minnisblað með tillögum skipulagsfulltrúa að viðbrögðum við ábendingum HMS. Í minnisblaðinu er einnig farið yfir önnur mál sem komið hafa upp frá því bæjarstjórn samþykkti aðalskipulagið til staðfestingar HMS þann 10.9.2026.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að gerðar verði lagfæringar á skipulagsgögnum í samræmi við viðbrögð í framlögðu minnisblaði, með minniháttar breytingum sem ræddar voru á fundinum. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að uppfæra minnisblaðið og leggur til við bæjarstjórn að þannig uppfærð aðalskipulagstillaga ásamt forsendu- og umhverfismatsskýrslu verði samþykkt í samræmi við 32. gr. skipulagslaga og 16. gr. laga um umhverfismat áætlana og send HMS til staðfestingar í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Vegir í náttúru Íslands - Endurskoðun aðalskipulags
Lögð er fram uppfærð tillaga að skrá yfir vegi í náttúru Íslands til samþykktar skv. 2. gr. reglugerðar nr. 260/2018, sbr. hjálagt minnisblað þar sem lýst er breytingum sem gerðar eru vegna framkominna ábendinga.
Með vísan í 2. gr. reglugerðar nr. 260/2018 um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd, leggur umhverfis- og skipulagsnefnd til að vegaskrá sem hefur verið uppfærð skv. hjálögðu minnisblaði verði send HMS til yfirferðar og varðveislu.
Samþykkt samhljóma.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóma.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Horn - Deiliskipulag
Tekin er fyrir tillaga að deiliskipulagi að Horni. Umsögn HMS vegna málsmeðferðar liggur fyrir fundinum. Samkvæmt umsögn þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. skipulagslaga.
Með deiliskipulagi er settur rammi utan um núverandi byggð og starfsemi ásamt því að heimila uppbyggingu í samræmi við skilmála aðalskipulags til að efla ferðaþjónustu á svæðinu. Skilgreindar eru lóðir utan um verslunar- og þjónustustarfsemi og byggingarreitir skilgreindir fyrir frekari uppbyggingu sem tekur mið af útbreiðslu vistgerða og náttúruverndargildis svæðisins. Áhersla er lögð á að takmarka rask og að mannvirki falli vel inn í landslag og umhverfi jarðarinnar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir samhljóma að auglýsa tillögu að nýju í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Breyting á deiliskipulagi - Hagahverfi, endurskoðun deiliskipulags
Tillaga að breytingu greinargerðar deiliskipulags Hagahverfis tekin fyrir. Með breytingunni eru kvöðum í greinargerð breytt m.t.t. hámarks bygginarmagns, þakhalla, uppbrots, blágrænna ofanvatnslausna ásamt fleiru.
Lagt fram til kynningar.
Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Breyting á deiliskipulagi Skarðshólar
Tekin er fyrir ósk um breytingu á deiliskipulagi Skarðshólum í Nesjum. Markmið breytingar er að auka byggingarheimild íbúðarhúss úr 200 m² í 250 m².
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að um svo óverulega breytingu sé að ræða að hægt sé að víkja frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga enda óveruleg frávik og hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Jökulfellsvöllur
Tekin er fyrir umsókn sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna endurnýjunar Jökulfellsvallar. Verkefnið felst í fullnaðarfrágangi undirbyggingar fyrir nýjan gervigrasvöll á Sindravelli á Höfn í Hornafirði. Á komandi vallarsvæði er nú grasvallarsvæði. Verkið felst einnig í uppbyggingu nýrrar hlaupabrautir.
Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag og deiliskipulag sem nær yfir svæðið.
Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag og deiliskipulag sem nær yfir svæðið.
Þar sem verkefnið snýr að viðhaldi Jökulfellsvallar ásamt því að framkvæmdin hefur ekki áhrif á landslag og ásýnd telur nefndin framkvæmdina ekki háða útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 5. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Samþykkt samhljóma.
Samþykkt samhljóma.
8.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerðir 54, 55, 56 og 57 frá stýrihóp um byggingu nýs íþróttahúss teknar fyrir.
Lagt fram til kynningar.