Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

13. fundur
3. júní 2020 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Matthildur U Þorsteinsdóttir 1. varamaður
Finnur Smári Torfason varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen umhverfisfulltrúi
Bartosz Skrzypkowski
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Skipurit 2020
Málsnúmer 202001015
Bæjarstjórn vísaði skipuritinu til umsagnar í fastanefndum sveitarfélagsins.
Matthildur Ásmundardóttir sat fundinn undir lið 1.

Meirihluti umhverfis- og skipulagsnefndar gerir ekki athugasemd við framlagt skipurit.

Sæmundur leggur fram eftirfarandi bókun: Bent er á að atvinnu- og ferðamál eiga mikla samleið með menningarmálum. En líka margskonar samleið við umhverfis- og skipulagsmál og málefni sjávarútvegs og bænda, jafnvel fræðslumál og heilbrigðismál. Þess vegna getur hann ekki stutt þá breytingu, að fella atvinnu- og ferðamál undir menningarmál í skipuriti. Það dregur úr mikilvægi atvinnu- og ferðamála gagnvart stjórnsýslunni, að mati Sæmundar. Nær væri að halda atvinnu- og ferðamálum undir stjórnsýslueiningunni, í sama dálki og gert var í skipuriti frá 2016 og þannig nær málaflokkurinn að vinna þvert á allar nefndir.
2.
Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Ósland
Málsnúmer 202005096
Anna Ragnarsdóttir Pedersen sat fundinn undir lið 2. Umhverfisstofnun hefur hafið undirbúning að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Ósland. Stofnunin óskar eftir tilnefningu fulltrúa í samstarfshóp.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að Anna Ragnarsdóttir Pedersen, umhverfisfulltrúi verði skipuð fyrir hönd sveitarfélagsins í samstarfshóp.
3.
Fyrirspurn: Frágangur á gangstígum á Álaleiru
Málsnúmer 202004050
Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar frá bæjarráði
Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu.
4.
Gjaldskrá vatnsveita 2020
Málsnúmer 201911041
Drög að uppfærðri gjaldskrá vegna vatnsveitu lögð fyrir.
Málinu er frestað.
5.
Aðalskipulagsbreyting Svínhólar
Málsnúmer 201709404
Megin markmið með skipulagstillagnanna er að staðsetja nýtt verslunar-og þjónustusvæði og skógræktar- og landgræðslusvæði á Svínhólum. Svæðið er afmarkað á uppdrætti og nánari skilmálar eru settir í greinargerð. Heimilt verður að byggja upp ferðaþjónustu með gistingu/hóteli sem hýst getur allt að 203 gesti. Einnig er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir starfsfólk í sér húsi og 20 heilsárshúsum, þar sem dvalið yrði aðeins hluta árs. Áform eru einnig uppi um skógrækt á jörðinni í samræmi við samning við Skógræktina um nytjaskógrækt.Tillögurnar voru til sýnis frá og með miðvikudeginum 25. mars 2020 til þriðjudagsins 5. maí 2020Umsagnir hafa borist frá Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneyti, Umhverfisstofnun, Veðurstofunni, Náttúrufræðistofnun, Hafrannsóknarstofnun, Haust og Minjastofnun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að breytingin verði samþykkt skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu.
Starfsmanni falið að svara umsagnaraðilum og senda til Skipulagsstofnunar. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Deiliskipulag Svínhólar
Málsnúmer 201903014
Megin markmið með skipulagstillagnanna er að staðsetja nýtt verslunar-og þjónustusvæði og skógræktar- og landgræðslusvæði á Svínhólum. Svæðið er afmarkað á uppdrætti og nánari skilmálar eru settir í greinargerð. Heimilt verður að byggja upp ferðaþjónustu með gistingu/hóteli sem hýst getur allt að 203 gesti. Einnig er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir starfsfólk í sér húsi og 20 heilsárshúsum, þar sem dvalið yrði aðeins hluta árs. Áform eru einnig uppi um skógrækt á jörðinni í samræmi við samning við Skógræktina um nytjaskógrækt.Tillagan var auglýst frá og með miðvikudeginum 25. mars 2020 til þriðjudagsins 5. maí 2020. Umsagnir hafa borist frá Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneyti, Umhverfisstofnun, Veðurstofunni, Náttúrufræðistofnun, Hafrannsóknarstofnun, Haust og Minjastofnun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði samþykkt skv. 42. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu. Starfsmanni er falið að gera samantekt um málsmeðferð og svara umsögnum. Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Hafnarbraut 20: Beiðni um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012 - 2030
Málsnúmer 202005049
Óskað hefur verið eftir breytingu á aðalskipulagi þar sem Hafnarbraut 20 sem í dag er á íbúðarsvæði verði breytt í miðsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar því að breyta aðalskipulagi á svæðinu. Starfsmanni falið að svara umsækjanda.
8.
Breyting á aðalskipulagi - Fiskhóll 11
Málsnúmer 202005105
Óskað er eftir að gerð verði breyting á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 oglandnotkun lóðar Fiskhóls nr.11 breytt úr íbúðabyggð í verslunar- og þjónustusvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar því að breyta aðalskipulagi á svæðinu. Starfsmanni falið að svara erindinu.
9.
Deiliskipulagsbreyting: Stafafellsfjöll lóð 45a
Málsnúmer 202005095
Sótt er um óverulega breytingu á deiliskipulagi þar sem byggingarreitur á lóð 45a í Stafafellsfjöllum er stækkaður og verður þá eftir breytingu 10m frá lóðamörkum.
Fyrirhuguð breyting hefur verið kynnt landeigendum og lóðarhöfum á aðliggjandi lóðum sem hafa lýst því yfir skriflega að þeir gera ekki athugasemdir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir því að breyta deiliskipulagi í Stafafellsfjöllum með óverulegri breytingu skv.2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og telur að þeim nágrönnum sem taldir eru geta átt hagsmuna að gæta hafi verið kynnt tillagan og skilyrðum um grenndarkynningu því fullnægt skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
10.
Júllatún 17 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202005004
Grenndarkynning vegna stækkunar á lóð við Júllatún 17 og samsvarandi minnkun á lóð við Júllatún 15 hefur farið fram án athugasemda.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að breyta lóðarmörkum í samræmi við grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
11.
Borgir - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 202005102
Umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahús á Borgum í Nesjum. Fyrirhuguð bygging er á landbúnaðarlandi og skv. aðalskipulagi er heimilt að byggja eitt frístundahús á lögbýlum. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að byggja frístundahúsið skv. meðfylgjandi gögnum án deiliskipulagsgerðar skv. 43. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda og því verði fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því jafnframt til framkvæmdaraðila að samræma útlit hússins við aðrar byggingar á hlaðinu.
12.
Tilkynning um framkvæmd: Silfurbraut 25 - sólstofa og þakskyggni
Málsnúmer 202005061
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhús. Um er að ræða sólstofu og þakskyggni við raðhús að Silfurbraut 25.Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að framkvæmdin verði grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga fyrir nágrönnum í raðhúsinu með því fororði að aðrar mögulegar sólstofur við húsið verði sambærilegar.