Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

14. fundur
12. ágúst 2020 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Matthildur U Þorsteinsdóttir 1. varamaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage 1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen umhverfisfulltrúi
Bartosz Skrzypkowski
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 2
Málsnúmer 2005006F
Lagt fram til kynningar.
2.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3
Málsnúmer 2006007F
Lagt fram til kynningar.
3.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 4
Málsnúmer 2007001F
Lagt fram til kynningar.
4.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5
Málsnúmer 2007009F
Lagt fram til kynningar.
5.
Áherslur sumarsins 2020 í umhverfinu
Málsnúmer 202003105
Birkir Þór Önnuson sumarstarfsmaður á Umhverfis- og skipulagssviði kynnir samantekt á leiksvæðum á Höfn, hugmyndavinnu vegna útivistar- og dvalarsvæða.
Lagt fram til kynningar.
6.
Umhverfisviðurkenning 2020
Málsnúmer 202008027
Áherslur í umhverfisviðurkenningumGerður hefur verið listi sem horft verður í þegar kemur að mati á viðurkenningarhöfum. Auglýst hefur verið eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga en fáar tilnefningar hafa borist.
Umhverfis og skipulagsnefnd hvetur fólk til þess að tilnefna fólk og fyrirtæki til umhverfisviðurkenninga sveitarfélagsins fyrir 17 ágúst.
7.
Ósk um óverulega breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi Hnappavöllum
Málsnúmer 202007054
Íslandshótel óska eftir óverulegri breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi í landi Hnappavalla, hótelbygging. Óskað er eftir því að heimilaður herbergjafjöldi verði færður úr 120 herbergjum í 125 herbergi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að tillagan feli í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins. Nefndin telur breytingin hafi í engu áhrif á hagsmuni í grennd og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
Lagt er til að sveitarstjórn sendi tillögu um breytingu á aðalskipulagi til Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og breytingu á deiliskipulag skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Aðalskipulagsbreyting náma í Skinney
Málsnúmer 201912110
Vegna vinnu við sjóvarnargarða var unnin aðalskipulagsbreyting þar sem náman í Skinney var stækkuð úr 10.000m3 í 30.000m3. Ljóst er að það efni er ekki nægilegt fyrir varnargarðana og því æskilegt að auka enn frekar við efnismagnið sem tekið er úr námunni. Stærð námunnar verður áfram innan við 3ha en óskað er eftir heimild til að vinna óverulega breytingu á aðalskipulagi og auka efnismagn í 49.000m3 og eiga þá möguleika á að nýta námuna til minniháttar viðhaldsvinnu við garðana á næstu árum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að tillagan feli í sér óverulega breytingu á landnotkun og sé ekki líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði.
Lagt er til að sveitarstjórn sendi tillögu um breytingu á aðalskipulagi til Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Drög að skipulagslýsingu vegna deiliskipulags miðsvæðis Hafnar lögð fyrir. Tillaga að breyttri afmörkun skipulagssvæðis til umræðu.
Starfsmanni falið að breyta framlagðri skipulagslýsingu í samræmi við umræður á fundinum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að leita umsagnar Skipulagsstofnunar um lýsinguna og kynna hana fyrir almenningi skv. 40. gr. skipulagslaga.
10.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Málsnúmer 201409090
Staðsetning gatna í skipulagi og lóðaafmörkun. Faxeyri.
Starfsmanni falið að ræða við lóðarhafa sem verða fyrir áhrifum af breytingu og láta útbúa breytingu á skipulagsuppdrætti og auglýsa skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
11.
Tilkynning um framkvæmd: Silfurbraut 25 - sólstofa og þakskyggni
Málsnúmer 202005061
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhús. Um er að ræða sólstofu og þakskyggni við raðhús að Silfurbraut 25. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga. Ein athugasemd barst í gegnum síma þar sem lögð var áhersla á að samræma útlit sólstofa við raðhúsið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að byggja sólstofu og þakskyggni við íbúðarhúsið skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Sett er skilyrði um samræmi í útliti við þegar byggðar sólstofur í raðhúsalengjunni.
12.
Nýr lóðarsamningur og ósk um stækkun á lóð: Bogaslóð 4
Málsnúmer 1805110
Umsókn um lóðarstækkun að Bogaslóð 4 lögð fram. Lóðin er í dag 400 m² en óskað er eftir stækkun í 642 m².Málið hefur áður verið tekið fyrir, 7.11.2018 en grenndarkynning ekki farið fram.
Skipulagsnefnd leggur til að lóðin verði stækkuð um 218 m² og að lóðarhafa verði veitt afnot af rest. Skipulagsnefnd felur starfsmanni að grenndarkynna skv. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
13.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202008010
Sótt er um heimild til að staðsetja bogahýsi/bragga að Fornustekkum II. Um er að ræða færanlegt bogahýsi sem óskað hefur verið eftir stöðuleyfi fyrir. Óskað er eftir heimild til að skilgreina svæði þar sem heimilt er að staðsetja lausafjármuni ótímabundið.
Málinu frestað.

14.
Tilkynning um framkvæmd: Birkifell, stöðuhýsi
Málsnúmer 201811001
Óskað er heimildar fyrir staðsetningu smáhýsis undir 40fm við Birkifell.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir staðsetningu smáhýsis við Birkifell án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Nefndin telur að staðsetning hússins hafi ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjanda og er því fallið frá grenndarkynningu skv. 2. ml. 3. mg. 44. gr. skipulagslaga.
15.
Byggingarleyfisumsókn: Borgir - frístundahús
Málsnúmer 202005102
Hjördís vék af fundi undir þessum lið. Umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahús á Borgum. Málið var áður tekið fyrir í skipulagsnefnd þann 3. 6. 2020 og í bæjarstjórn 11.6.2020. Óskað er eftir endurnýjaðri heimild skv. breyttri staðsetningu hússins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að byggja frístundahúsið skv. meðfylgjandi gögnum án deiliskipulagsgerðar skv. 43. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda og því verði fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því jafnframt til framkvæmdaraðila að samræma útlit hússins við aðrar byggingar á hlaðinu.
16.
Skráning mannvirkja: Hlið lóð 2 (Borgarbrekka) - gistiheimili
Málsnúmer 202006020
Breyting á notkun að Borgarbrekku vegna umsóknar um gistileyfi. Fyrirhugað er að breyta notkun á einbýlishúsi í gististað. Um er að ræða lóð úr Borgarbrekku.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að heimilt sé að breyta notkun hússins og reka gistiheimili á lóðinni sem hluta af þeim 16 gistirýmum sem heimilt er að reka á lögbýlinu Hlíð.
17.
Hönnun: Fráveita, götur og gangstéttir Hafnarbraut
Málsnúmer 201806055
Útlit og tímaáætlun til umræðu.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
18.
Beiðni: Breyting á aðstöðu fyrir hlaupahjól og hjólabretti
Málsnúmer 202007026
Málinu var vísað til Umhverfis- og skipulagsnefndar frá bæjarráði.
Málinu er vísað í vinnu með deiliskipulagi miðsvæðis.
19.
Framkvæmdaleyfi: Stækkun á dreifikerfi hitaveitu
Málsnúmer 202005047
Óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna lagningar heimtauga hitaveitu á Höfn.
Lagt er til að framkvæmdaleyfi verði grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga.