Umhverfis- og skipulagsnefnd
15. fundur
2. september 2020
kl.
16:00
-
19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Finnur Smári Torfason
varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Matthildur U Þorsteinsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Erindisbréf og leiðbeiningar um innleiðingu barnvænt samfélag fyrir stýrihóp verkefnis um barnvænt samfélag, lagt fram. Bæjarráð samþykkti framlagt erindisbréf og vísaði því til umsagnar í þeim nefndum sem eiga fulltrúa í stýrihópnum
Lagt fram til kynningar.
2.
Fyrirspurn: Lausaganga katta
Erindi frá Guðrúnu Hauksdóttur þar sem hún óskar eftir að lausaganga katta verði bönnuð.Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd.Gjaldskrá og reglur málaflokksins tekin til umræðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið. Nefndin telur ekki ástæðu til þess að svo komnu máli að banna lausagöngu katta en vekur athygli á því að lausaganga er nú þegar háð ströngum takmörkunum skv. samþykkt sveitarfélagsins. Starfsmanni falið að skoða skráningu og verklagsreglur um kattahald og svara fyrir kröfur um undirskriftarlista.
3.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2020-2024
Undirbúningur vegna vinnu við nýja umhverfisstefnu sveitarfélagsins lögð fyrir nefndina til umræðu.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
4.
Refir og minkar
Verklagsreglur um refa- og minkaveiði í Austur-Skaftafellssýslu teknar til umræðu. Þörf er endurbótum á verklagsreglum við skil á skýrslum og ráðningu veiðimanna. Greiðslur til ráðinna veiðimanna hafa ekki hækkað um árabil.
Starfsmanni falið að kortleggja svæði veiðimanna og leggja til endurbættar verklagsreglur og endurnýja samninga við veiðimenn.
Greiðslum til veiðimanna vísað í fjárhagsáætlunargerð sveitarfélagsins.
Greiðslum til veiðimanna vísað í fjárhagsáætlunargerð sveitarfélagsins.
5.
Myndband: Flokkum sorp
Unnið hefur verið að myndbandi vegan sorpflokkunar fyrir sveitarfélagið. Myndbandið er nú að mestu tilbúið en ákveða þarf hvaða skilaboð við viljum skilja áhorfandann eftir í lokin.
Lagt er til að unnin verði markviss birtingaráætlun og að samfélagsmiðlar sveitarfélagsins verði nýttir og beint bæði að fyrirtækjum og einstaklingum í Sveitarfélaginu Hornafirði.
6.
Samgönguáætlun 2020-2034 og fimm ára aðgerðaráætlun 2020-2024
Í gildandi samgönguáætlun liggur fyrir tillaga um styttingu hringvegar á tveimur stöðum í sveitarfélaginu. Lagt er til að hafið verði ferli við breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins í Öræfum og Lóni með breyttri veglínu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er hlynnt því að hefja vinnu við skipulagsbreytingar í samráði við Vegagerðina. Gæta þarf að því að samráð við íbúa verði öflugt í ferlinu. Nefndin vísar því til bæjarstjórnar að hefja skipulagsferlið.
7.
Breyting á aðalskipulagi - Hafnarnes
Óskað er eftir óverulegri breytingu á aðalskipulagi í samræmi við umsögn Skipulagsstofnunar um deiliskipulag Hafnarness. Gert er ráð fyrir að verslunar og þjónustusvæði verði stækkað þannig að V.Þ. svæði rými þá þjónustu sem gert er ráð fyrir og verði 0,3 ha.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að um óverulega breytingu sé að ræða. Tillagan felur sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins. Nefndin telur breytingin hafi í engu áhrif á hagsmuni í grennd og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga, enda hafa deiliskipulagstillaga sama efnis nýlega verið kynnt og engar athugasemdir borist.
Lagt er til að bæjarstjórn samþykki og sendi tillögu um óverulega breytingu á aðalskipulagi til Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lagt er til að bæjarstjórn samþykki og sendi tillögu um óverulega breytingu á aðalskipulagi til Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Deiliskipulag Hafnarnes
Borist hefur umsögn Skipulagsstofnunar um deiliskipulag í Hafnarnesi. Lagt er til að gerðar verði breytingar á skipulaginu skv. umsögninni og gerð breyting á aðlaskipulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði samþykkt skv. 42. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar hafa verið samkvæmt athugasemdum Skipulagsstofnunar.
Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Skipulaglýsing vegan deiliskipulags skóla- og íþróttasvæðis er í auglýsingu. Umræða um deiliskipulag Miðsvæðis Hafnar.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
10.
Deiliskipulag við Hrollaugsstaði
Send var út verðfyrirspurn vegna deiliskipulags nýrrar íbúðabyggðar við Hrollaugsstaði.
Lagt fram til kynningar.
11.
Ný lóð fyrir Vegagerðina á Höfn
Í tengslum við deiliskipulags skóla- og íþróttasvæðis á Höfn hefur verið óskað eftir viðræðum við Vegagerðina um nýja lóð fyrir starfsemi á Höfn.
Starfsmanni falið að afmarka lóðir og senda tillögur til Vegagerðarinnar til umræðu.
12.
Fyrirspurn til Skipulagsstjóra: Aðalból í Lóni: Tækjageymsla
Óskað hefur verið eftir byggingarleyfi fyrir tækjageymslu við Aðalból í Lóni. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir staðsetningu tækjageymslu við Aðalból í Lóni án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Staðsetning hússins hefur ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjanda og er því fallið frá grenndarkynningu skv. 2. ml. 3. mg. 44. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13.
Tilkynning um framkvæmd: 7,6fm rafstöðvarhús í Hestgerði
Sótt er um byggingu rafstöðvarhúss fyrir varaflsstöð fjarskiptakerfis. Fyrirhugað er að tryggja virkni símkerfis þegar rafmagnsleysi verður viðvarandi á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir byggingu rafstöðvarhússins að því gefnu að leyfi landeiganda liggi fyrir. Byggingin verði heimil án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Nefndin telur að staðsetning hússins hafi ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjanda og er því fallið frá grenndarkynningu skv. 2. ml. 3. mg. 44. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
14.
Umsókn um framkvæmdaleyfi - Lónsheiði
Sótt er um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara yfir Lónsheiði.
Umhverfis- og Skipulagsnefnd leggur til að gefið verði út framkvæmdaleyfi skv. 15. gr. skipulagslaga á grundvelli framlagðra gagna. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
15.
Göngustígur um Silfurnes
Golfklúbbur Hornafjarðar óskar eftir stuðningi fyrir endurbætur á stíg/vegi um Silfurnes. Lögð er fram tillaga um að verkefnið tengi saman göngustíga sveitarfélagsins og golfvallarins í samræmi við hugmyndir sem unnið var með hjá sveitarfélaginu í september 2015.
Starfsmanni falið að ræða við Golfklúbb Hornafjarðar um framkvæmdina og kostnaðarmeta. Málinu vísað í gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.
16.
Almannavarnir: Svínafellsjökull
Veðurstofan leggur nú lokahönd á drög að hættumati vegan berghlaups úr Svínafellsheiði. Fyrirhugað er að halda kynningarfund með landeigendum á svæðinu nú í september og fara yfir málið.
Lagt fram til kynningar.