Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

16. fundur
5. október 2020 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Finnur Smári Torfason varaformaður
Matthildur U Þorsteinsdóttir 1. varamaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 6
Málsnúmer 2009009F
Lagt fram til kynningar
2.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Málsnúmer 201903117
Heimsmarkmiðin lögð fram til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar. Starfsmanni falið að leggja fram athugasemdir nefndarinnar og fara vel yfir kafla 11.4. um umhverfismál.
3.
Norrænt samstarfsverkefni um kolefnishlutlausa bæi (NTP)
Málsnúmer 202009065
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur fengið boð um að taka þátt í norrænu samstarfsverkefni á sviði kolefnishlutleysis og hringrásarhagkerfisins Nordic Transition Partnership for Climate Neutral Cities 2030? (NTP)Markmið verkefnisins er að aðstoða smærri sveitarfélög að komast nær kolefnishlutleysi með innleiðingu hringrásarhagkerfisins. Allt er þetta gert með það að markmiði að hjálpa sveitarfélögunum að hrinda áætlunum um loftslagsmál í framkvæmd og styðja við innleiðingu nýrra lausna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar boði um að taka þá í verkefninu.
4.
Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Ósland
Málsnúmer 202005096
Umhverfisstofnun vinnur að stjórnunar og verndaráætlun fyrir Ósland. Sveitarfélagið vinnur að aðgerðaráætlun fyrir fólkvanginn samhliða stjórnunar og verndaráætlunarinnar.Lögð eru fram drög að aðgerðaráætlun.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram og óska eftir því að stjórnunar og verndaráætlun komi til umfjöllunar í nefndinni fyrir auglýsingu.
5.
Eftirlitsskýrsla urðunarstaður í Lóni 5.júni 2020
Málsnúmer 202009021
Eftirlitsskýrsla Umhverfisstofnunar vegan urðunarstaðar í Lóni lögð fram til kynningar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar bættum árangri á urðunarstað í Lóni.
6.
Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2020
Málsnúmer 202009072
Opið er fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, og skal umsóknum skilað fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 6. október nk. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Heimilt er að fjármagna framkvæmdir sem snúa að öryggi ferðamanna, náttúruvernd og uppbyggingu, viðhaldi og vernd mannvirkja. Lagt fram minnisblað atvinnu- og ferðamálafulltrúa með tillögum að umsóknum.
Lagt fram til kynningar
7.
Almannavarnir: Svínafellsjökull
Málsnúmer 201807008
Tilbúin eru drög að hættumati vegan berghlaups í Svínafellsjökli.
Lagt fram til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að hættulínur verði færðar inn í aðalskipulag við næstu endurskoðun.
8.
Óveruleg breyting á aðalskipulagi Flugvöllur í Skaftafelli
Málsnúmer 201803092
Óskað er eftir að gerð verði óveruleg breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem svæði fyrir verslun- og þjónustu er fært frá Freysnesi að flugvellinum í Skaftafelli. Breytingin var áður tekin fyrir 2018 en hefur beðið eftir niðurstöðu hættumats vegan berghlaups í Svínafellsjökli. Umsögn um málið hefur borist frá Veðurstofu Íslands sem í ljósi bráðbirgðaniðurstaðna telur að hægt sé að byggja upp þjónustu á svæðinu með ákveðnum skilmálum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur æskilegt að breytingin sé send til umsagnar hjá Vatnajökulsþjóðgarði, Vegagerðinni, Umhverfisstofnun, HAUST og að íbúum á svæðinu sé gert kleift að tjá sig um málið.

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að breyting á aðalskipulagi verði auglýst skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Ósk um deiliskipulagsbreytingu: Flugvöllur í landi Skaftafells/Freysnes
Málsnúmer 201802039
Drög að breytingu á deiliskipulagi Flugvallar í Öræfum lögð fram. Hugmyndir snýr að því að heimila byggingu veitinga- og bensínsöluskála við flugvöllinn. Skipulagsbreytingin var áður tekin fyrir í febrúar 2018 en vinna við hana stöðvuð þegar í ljós kom að svæðið gæti verið í hættu vegan berhlaups úr Svínafellsjökli. Borist hefur umsögn VÍ um tillöguna með tilliti til bráðabirgðaniðurstöðu áhættumats.
Skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að vinna áfram að breytingu á deiliskipulagi og að málsmeðferð verði skv. 1. mgr. 43. gr skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Aðalskipulagsbreyting Svínhólar
Málsnúmer 201709404
Megin markmið með skipulagstillagnanna er að staðsetja nýtt verslunar-og þjónustusvæði og skógræktar- og landgræðslusvæði á Svínhólum. Svæðið er afmarkað á uppdrætti og nánari skilmálar eru settir í greinargerð. Heimilt verður að byggja upp ferðaþjónustu með gistingu/hóteli sem hýst getur allt að 203 gesti. Einnig er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir starfsfólk í sér húsi og 20 heilsárshúsum, þar sem dvalið yrði aðeins hluta árs. Áform eru einnig uppi um skógrækt á jörðinni í samræmi við samning við Skógræktina um nytjaskógrækt. Borist hefur afgreiðslubréf Skipulagstofnunar.
Fyrir liggja drög að svörum vegna afgreiðslu Skipulagsstofnunar og leggur umhverfis- og skipulagsnefnd til að gerðar verði breytingar á uppdrætti og greinargerð í samræmi við þær.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að breytingin verði samþykkt skv. 32. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar hafa verið skv. athugasemdum Skipulagsstofnunar.
Starfsmanni falið að taka saman svör og senda til Skipulagsstofnunar. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Deiliskipulag Svínhólar
Málsnúmer 201903014
Megin markmið með skipulagstillagnanna er að staðsetja nýtt verslunar-og þjónustusvæði og skógræktar- og landgræðslusvæði á Svínhólum. Svæðið er afmarkað á uppdrætti og nánari skilmálar eru settir í greinargerð. Heimilt verður að byggja upp ferðaþjónustu með gistingu/hóteli sem hýst getur allt að 203 gesti. Einnig er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir starfsfólk í sér húsi og 20 heilsárshúsum, þar sem dvalið yrði aðeins hluta árs. Áform eru einnig uppi um skógrækt á jörðinni í samræmi við samning við Skógræktina um nytjaskógrækt. Borist hefur afgreiðslubréf Skipulagsstofnunar.
Fyrir liggja drög að svörum vegna afgreiðslu Skipulagsstofnunar og leggur umhverfis- og skipulagsnefnd til að gerðar verði breytingar á uppdrætti og greinargerð í samræmi við þær.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að breytingin verði samþykkt skv. 32. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar hafa verið skv. athugasemdum Skipulagsstofnunar.
Starfsmanni falið að taka saman svör og senda til Skipulagsstofnunar. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Deiliskipulagsbreyting: Skemma í Skaftafelli
Málsnúmer 202008060
Ósk um heimild til að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi í Skaftafelli. Fyrirhugað er að reisa um 200m² geymslu/skemmu í Skaftafelli norðan við gestastofu. Hæð útveggja er um 3 m og þakform er hefðbundið risþak. Fyrirhugað er að skemman verði úr yleiningum með steypri plötu og sökkli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að breyta deiliskipulagi í Skaftafelli með óverulegri breytingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Svæðisráð suðursvæðis fjallaði um málið á fundi sínum þann 20. ágúst 2020.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að tillagan feli í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins. Nefndin telur breytingin hafi í engu áhrif á hagsmuni í grennd og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13.
Byggingarleyfisumsókn: Víkurbraut 2 - viðbygging
Málsnúmer 202009086
Funaborg ehf. sækir um leyfi fyrir stækkun á þegar samþykktu viðbyggingu við eign 0102 að Víkurbraut 2. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að byggja við húsið skv. framlögðum teikningum skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Samþykki meðeigenda liggur fyrir og nefndin telur að viðbygging á baklóð hafi ekki áhrif á hagsmuni annarra en lóðarhafa og er því fallið frá frekari grenndarkynningu skv. 2. ml. 3. mg. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
14.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Kynning á lýsingu hefur farið fram. Umsagnir og athugasemdir bárust frá MÍ, Vegagerðinni, Skipulagsstofnun, Fimleikadeild Sindra og Kristínu Hermannsdóttur.
Unnið er að því í samvinnu við Vegagerðinni að finna henni aðra lóð innan Hafnar. Vinna við minjaskráningu og húsakönnun er hafin og er ábending Kristínar Hermannsdóttur gott innlegg í þá vinnu.
Nefndin þakkar ábendingu fimleikadeildar. Í vinnu undirbúningshóps var gert ráð fyrir aðstöðu fyrir fimleika í fjölnota íþróttahúsi. Málinu vísað til umfjöllunar í bæjarstjórn.

15.
Deiliskipulag Háhóll - Dilksnes
Málsnúmer 201904013
Umsagnir hafa borist frá Minjastofnun og Skipulagsstofnun. Gerð hefur verið húsakönnun á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að deiliskipulagið veri samþykkt skv. 42. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem lagðar eru til í umsögn Skipulagsstofnunar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
16.
Stafafellsfjöll - ósk um undanþágu vegna fjarlægðar frá lóðamörkum
Málsnúmer 202009060
Umhverfis- og auðlindaráðuneyti hefur borist ósk um undanþágu vegna fjarlægðar sumarhúss frá lóðamörkum á lóð 11 í Stafafellsfjöllum. Óskað er umsagnar sveitarfélagsins um undanþáguna.
Starfsmanni falið að rita umsögn skv. umræðum á fundinum. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
17.
Byggingarleyfisumsókn: Reynivellir 2 (L160139) - geymsla
Málsnúmer 202009013
Sótt er um byggingarleyfi fyrir geymslu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir athugasemd við að skemman liggi alveg að lóðamörkum og að framkvæmdir séu hafnar. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að staðsetning hússins verði grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga. Jafnframt verði því beint til umsækjanda að ekki verði heimilað fleiri byggingar nema að deiliskipulag liggi fyrir.
18.
Tilkynning um framkvæmd: Birkikot - vélageymsla
Málsnúmer 202009041
Sigurjón Arason tilkynnir um framkvæmd á lóð Birkikot landeignarnúmer L225562. Um er að ræða 39,8 fm vélageymslu. Leitað er umsagnar umhverfis- og skipulagsnefndar vegna samræmis framkvæmdar við skipulagsskilmálar fyrir svæði.
Málinu frestað. Starfsmanni falið að leita umsagnar Vegagerðarinnar og Skipulagsstofnunar.
19.
Framkvæmdaleyfi: Breyting á vegi Borgarhöfn 2-3, Neðribær
Málsnúmer 202008070
Óskað er eftir Framkvæmdaleyfi til breytinga á veginum heim að Borgarhöfn 2-3 Neðrabæ, Suðursveit. Núverandi vegur er bæði brattur og þröngur þannig að ekki er hægt mætast á honum og þar með hættulegur hann er einnig oft ófær á veturnar. Búið er að gera fornleyfarannsókn á svæðinu. Vegargerðin mun sjá um verkið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir rökstuðningi við staðsetningu vegarins á milli fornleifa á svæðinu og óskar eftir því að skoðað verði hvort ekki sé unnt að koma honum fyrir annarstaðar. Leitað hefur verið umsagnar hjá Minjastofnun. Málinu frestað.
20.
Framkvæmdaleyfi: Stækkun á dreifikerfi hitaveitu
Málsnúmer 202005047
Framkvæmdaleyfi vegan stækkunar á dreifikerfi hitaveitu á Höfn. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Umsögn barst frá Minjastofnun.
Umhverfis- og Skipulagsnefnd leggur til að gefið verði út framkvæmdaleyfi skv. 15. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
21.
Hönnun: Fráveita, götur og gangstéttir Hafnarbraut
Málsnúmer 201806055
Umræður um stöðu málsins.