Umhverfis- og skipulagsnefnd
18. fundur
2. desember 2020
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson
formaður
Finnur Smári Torfason
varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Íris Mist Björnsdóttir
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8
Lagt fram til kynningar.
2.
Samantekt á sorpmálum 2020
Töluverðar breytingar voru gerðar á úrgangsþjónustu sveitarfélagsins árið 2020. Farið er yfir breytingar sem voru gerðar, þær ræddar og línur lagðar fyrir næsta ár þegar kemur að sorpþjónustunni.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram: finna hentug, minni, sorpílát fyrir almenningssvæði, útfæra nýjar merkingar fyrir flokkun í stofnunum sveitarfélagsins í samræmi við nýjar merkingar FENÚR. Starfsmanni einnig falið að skoða mögulegar breytingar á dýrahræsgámum og nýja útfærslu á þeirri þjónustu í samræmi við umræðu fundarins. Hefja þarf undirbúning að nýju útboði þar sem samningurinn við Íslenska gámafélagið rennur út um mitt ár 2022.
Fulltrúi 3.framboðsins bendir á að í minnisblaði um samantekt á sorpmálum, þar sem farið er yfir þær breytingar sem gerðar voru á úrgangsþjónustu sveitarfélagsins árið 2020 er ekki gerð grein fyrir magntölum og kostnaði við þjónustuna sem breyttust milli ára. Enn er langt í land að sveitarfélagið innheimti lögbundin gjöld vegna þeirrar þjónustu sem veitt er.

3.
Umhverfisviðurkenning 2020
Farið yfir tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2020 og viðurkenningarhafar valdir.
Afhending umhverfisviðurkenninga 2020 fer fram á menningarhátíð sveitarfélagsins í byrjun árs 2021. Ákveðið var að veita viðurkenningarskjöl fyrir tilnefnda aðila.
4.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Haldið áfram með umræðu frá síðasta fundi.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
5.
Staða fráveituframkvæmda
Yfirlit yfir stöðu fráveituframkvæmda.
Lagt fram til kynningar.
6.
Breyting á aðalskipulagi Hnappavellir 1 - Verslunar og þjónustusvæði
Local Guide ehf. Óskar eftir breytingu á aðalskipulagi á hluta af Hnappavöllum 1. Nánar tiltekið er um að ræða 10.909 m2 lóð úr landinu þar sem stendur fjárhús og hlaða. Lóðinni verður skipt út úr jörðinni og heita Hnappavellir 1, Mói en hún hefur ekki verið skráð hjá Þjóðskrá. Stefnt er að því að breyta byggingum sem þegar eru á lóðinni skv. meðfylgjandi teikningum. Ekki er gert ráð fyrir fleiri byggingum. Óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi samkvæmt eftirfarandi atriðum. * Að Hnappavellir 1, Mói verði breytt í verslunar og þjónustusvæði* Gert er ráð fyrir 20 gistirýmum* Fyrirhuguð starfsemi leigutaka er rekstur ferðaþjónustu ásamt tilheyrandi stoðstarfsemi, s.s. gistiaðstöðu og veitingasölu þ.e. bæði matar- og vínveitingasölu* Engar breytingar verða gerðar á húsi að utan fyrir utan einhverja viðbót og breytingar á gluggum* Gert er ráð fyrir minniháttar tjaldgistingu/húsbílastæði fyrir viðskiptavini fyrirtækisins þá 20 tjöld* Aðkoma að húsi helst óbreytt* Ekki er gert ráð fyrir íbúðum
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að unnin verði breyting á aðalskipulagi skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Starfsmanni falið að láta vinna skipulagslýsingu. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Breyting á aðalsklipulagi - Borgarhöfn 2-3 Suðursveit
Óskað er breytingar á aðalskipulagi vegna frístundabyggðar og afþreyingar- og ferðamannasvæði, m.a. fyrir tjaldsvæði í landi Neðribæjar í Borgarhöfn. Lögð er fram tillaga að skipulagslýsingu fyrir breytingu á aðalskipulag og gerð deiliskipulags samhliða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga og að skipulagslýsing verði auglýst skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Deiliskipulag: Borgarhöfn 2 - 3 Suðursveit
Lögð fram skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir frístundabyggð og afþreyingar- og ferðamannasvæði, m.a. fyrir tjaldsvæði.Í deiliskipulagi verður gerð grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum og settir fram skilmálar um landnotkun, byggingar og vernd náttúru- og menningarminja.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að unnið verði deiliskipulag samhliða breytingu á aðalskipulagi. Nefndin samþykkir auglýsingu skipulagslýsingar skv. 40. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Deiliskipulag - Leirusvæði 2
Umræður um deiliskipulag íbúðabyggðar á uppfyllingu austan við Álaleiru.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
10.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra: Sel, Svínafell Öræfum
Sótt um leyfi til að byggja atvinnuhúsnæði/hesthús fyrir Öræfahesta ehf. Húsið er steypt og er 14x28 m að stærð. Það mun verða notað í rekstri tamningastöðvar og hestaleigunnar Glacier Horses sem er nú þegar á staðnum og hefur verið rekin þar síðan árið 2014. Húsið er byggt við hól í Seli í Svínafelli, þar sem gömul fjárhús og hlöður eru og hafa verið síðan 1954. Hesthúsið verður einangrað og klætt með timbri og fyllt að því að hluta með jarðvegi þannig að það falli betur inn umhverfið. Samþykki landeiganda liggur fyrir og landeigenda í Svínafelli 2 og 4. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að byggja hesthús skv. meðfylgjandi gögnum án deiliskipulagsgerðar skv. 43. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda og því verði fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því jafnframt til framkvæmdaraðila að samræma útlit hússins við aðrar byggingar á hlaðinu. Málinu vísað til bæjarstjórnar.

11.
Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Svínafell 2 & 4 - reiðhöll
Sótt er um leyfi til að byggja 18x40 m reiðhöll í landi Svínafells 2 & 4. Reiðhöllin yrði byggð úr límtré og yleiningum og á steyptum grunni. Gert er ráð fyrir tengibygging milli reiðhallarinnar og fyrirhugaðs hesthúss í landi Sels 1. Meðfylgjandi afstöðumynd sýnir byggingarnar tvær, reiðhöllin verður staðsett um 5 metrum norðar heldur en myndin sýnir og lengd hússins verður 40m en ekki 28 eins og myndin sýnir. Leyfi frá landeigendum liggur fyrir munnlega. ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að byggja hesthús skv. meðfylgjandi gögnum án deiliskipulagsgerðar skv. 43. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda og því verði fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Með þeim fyrirvara að skriflegt samþykki landeigenda Sels og Svínafells 2 og 4 berist.
Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því jafnframt til framkvæmdaraðila að samræma útlit hússins við aðrar byggingar á hlaðinu. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda og því verði fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Með þeim fyrirvara að skriflegt samþykki landeigenda Sels og Svínafells 2 og 4 berist.
Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því jafnframt til framkvæmdaraðila að samræma útlit hússins við aðrar byggingar á hlaðinu. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
12.
Byggingarleyfisumsókn Hrollaugsstaðir - breyting á notkun
Breyting á ytra útliti Hrollaugsstaða. Skipt verður um klæðningu, glugga og hurða. Settar verða nýjar svalir. Í aðalskipulagi er heimild fyrir 5 íbúðum á verslunar og þjónustusvæðinu. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að breyta húsnæðinu skv. meðfylgjandi gögnum án deiliskipulagsgerðar skv. 43. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og því verði fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.

13.
Umsókn um lóð: Bugðuleira 8
Bæjarráð vísar umsókn um lóð til umræðu í umhverfis- og skipulagsnefnd þar sem ekki er til deiliskipulag af svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda. Í drögum að deiliskipulagi sem byggt hefur verið eftir á svæðinu er lágmarksnýtingarhlutfall 0,2. Lóðin verður minnkuð. Staðsetning byggingar á lóð verði þannig að framan við hús verði gengið snyrtilega frá og gert ráð fyrir athafnasvæði aftan við húsið.
14.
Umsögn: Breytingu á skipulagslögum, 275. mál
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis), 275. mál.Um er að ræða breytingu á skipulagsferlum vegna raflínuframkvæmda, stytting á fresti til að gera athugasemdir við deiliskipulagsbreytingar og innleiðingu miðlægrar landfræðilegrar gagna- og samráðsgátt fyrir skipulagsmál og mat á umhverfisáhrifum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd sveitarfélagsins Hornafjarðar telur að skipan raflínunefndar fyrir framkvæmdir í meginflutningskerfi raforku feli í sér inngrip ríkisins í skipulagsvald sveitarfélaga sem samræmist ekki markmiðum skipulagslaga um að ábyrgð á skipulagsgerð sé á höndum sveitarfélaga. Ótækt sé að slík nefnd taki stjórnsýsluákvarðanir fyrir hönd sveitarfélaga. Bæði er hér um að ræða takmörkun á skipulagsvaldi og leyfisveitingavaldi sveitarfélaga.
Sveitarfélagið Hornafjörður tekur undir með Sambandi íslenskra sveitarfélaga að ekki sé ástæða til að útvíkka hlutverk raflínunefnda og ákvæða um raflínuskipulag þannig að þau nái til annarra samfélagslega mikilvægra innviða, t.d. vegaframkvæmda. Skýrt verði að vera að sú sérstaka málsmeðferð sem lögð sé til í frumvarpinu um skipulag og veitingu framkvæmdaleyfa vegna framkvæmda í meginflutningskerfi raforku, sé grundvallarfrávik frá meginreglum skipulagslaga. Framkvæmdir við meginflutningskerfið hafi sérstöðu umfram ýmsa aðra samfélagslega innviði þar sem nauðsynlegt sé að taka sameiginlega og bindandi ákvörðun allra sveitarfélaga um línuleið og staðsetningu jarðstrengja.
Það er álit Umhverfis- og skipulagsnefndar sveitarfélagsins Hornafjarðar að tilefni sé til að endurskoða ákvæði skipulagslaga um athugasemdafresti í tengslum við fyrirhugaða rafræna skipulagsgátt. Nefndin telur að stytting athugasemdarfresta eigi ekki að vera vandamál í ljósi breyttra aðferða við kynningu og samráð skipulagsáætlana en efast um að fram lögð tillaga um fjögurra vikna athugasemdafrest í stað sex uppfylli þann tilgang að stytta málsmeðferð. Það er álit nefndarinnar að meiri ávinningur hefði nást með því að fella brott forkynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Vakin er athygli á því að í flestum sveitarfélögum eru fundir skipulagsnefndar og bæjarstjórnar einu sinni í mánuði og því ætti að miða tillögur að breytingum á athugasemdarfrestum og einföldun málsmeðferðar við þær aðstæður.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar áformum um rafræna gagnagátt vegna skipulags og framkvæmdaleyfa og ítrekar að í framhaldi af opnun slíkrar gáttar sé tilefni til að endurskoða og einfalda málsmeðferð. Mikilvægt er að lagaákvæðinu fylgi fjármagn til þróunar og starfrækslu gagnagáttarinnar og að í þeirri vinnu verði haft samráð við væntanlega notendur gáttarinnar bæði sveitarfélög, umsagnaraðila og íbúa. Mikilvægt er að tryggja að gáttin verði notendavæn og til þess fallin að auðvelda íbúum að leggja fram athugasemdir og tillögur við skipulagsgerð.

15.
Landsskipulagsstefna - ósk um umsögn
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn við tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 ásamt umhverfismati sem auglýst er til kynningar ásamt umhverfismati í samræmi við lög nr. 123/2010 og 105/2006 og reglugerð nr. 1001/2011. Í tillögunni er sett fram stefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu í tengslum við framkvæmd skipulagsmála og tekur hún eftir atvikum til allra viðfangsefna gildandi landsskipulagsstefnu. Auk þess felur tillagan í sér breytingar á gildandi landsskipulagsstefnu varðandi skipulag haf- og strandsvæða m.t.t. laga nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða.
Starfsmanni falið að móta umsögn í samræmi við umræður á fundinum. Málinu frestað.
16.
Tilkynning um framkvæmd - Birkikot, vélageymsla
Sigurjón Arason tilkynnir um framkvæmd á lóð Birkikot landeignarnúmer L225562. Um er að ræða 39,8 fm vélageymslu. Leitað er umsagnar umhverfis- og skipulagsnefndar vegna samræmis framkvæmdar við skipulagsskilmála fyrir svæði. Vélageymslan er í 30 m. fjarlægð frá miðlínu vegar. Umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir og gerir Vegagerðin ekki athugasemd við staðsetningu hússins. Í skipulagsreglugerð kemur fram að ekki er heimilt að reisa byggingar nær tengivegum en 50m.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að byggja vélageymslu skv. meðfylgjandi gögnum án deiliskipulagsgerðar skv. 43. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda og því verði fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Sótt verði um undanþágu vegna fjarlægðar frá vegum skv. 12. mgr. 45. gr. skipulagslaga til Umhverfis- og auðlindaráðherra.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
17.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra- breyting á húsnæði Hafnarbraut 20
Lögð fram fyrirspurn um heimild til breytinga á Hafnargötu 20. Spurt er hvort leyfi fengist fyrir að skipta íbúðarhúsnæðinu í tvær íbúðir í stað einnar. Neðri íbúð myndi vera á hluta fyrstu hæðar og í kjallara en hin einnig að hluta til á fyrstu hæð og á 2 hæð. Nýjum svölum myndi vera komið fyrir á 2 hæð. Báðar íbúðir myndu vera með sérinngang. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að grenndarkynna breytingu á íbúðarhúsinu skv. meðfylgjandi gögnum skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
18.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - staðsetning hraðhleðslustöðvar á miðsvæði Hafnar
ON fékk styrk frá Orkusjóði fyrir uppsetningu einnar 150kW hraðhleðslu á Höfn og óskar eftir samstarfi um staðsetningu.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram í samstarfi við ON á miðbæjarsvæði Hafnar.