Umhverfis- og skipulagsnefnd
20. fundur
3. febrúar 2021
kl.
16:00
-
20:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson
formaður
Finnur Smári Torfason
varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Íris Mist Björnsdóttir
Hjördís Skírnisdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
umhverfisfulltrúi
Bartosz Skrzypkowski
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10
Lagt fram til kynningar
2.
Deiliskipulag: Heildarendurskoðun fyrir Skaftafell
Helga Árnadóttir kom á fundinn f.h. Vatnajökulsþjóðgarðs. Unnið hefur verið að umfangsmiklu samráði við íbúa og hagsmunaaðila vegna deiliskipulags í Skaftafelli. Niðurstöður samráðs kynntar.
3.
Eftirlitsferðir byggingarfulltrúa - niðurstöður
Íris Mist Björnsdóttir kom inn á fundinn. Bartek sat fundinn undir liðum 3-9. Lausafjármunir innan þéttbýlis. Minnisblað vegna stöðuleyfa.
Byggingarfulltrúa falið að undirbúa drög að reglum vegna lausafjármuna í þéttbýli og á landbúnaðarsvæðum.
4.
Umsókn um leyfi til þess að staðsetja reykköfunargám inn á lóð Áhaldahúss - Slökkvistöðvar
Umsókn um leyfi til þess að staðsetja reykköfunargám inn á lóð áhaldahús/slökkvistöðvar. Umsóknin er byggð á gr.2.6.1 um stöðuleyfi í byggingarreglugerð sem gerið ráð fyrir að hægt sé að hafa álíka lausafjármuni án þess að vera með skráð stöðuleyfi sem endurnýjast árlega samkvæmt reglugerð.
Málinu frestað þar til reglur um lausafjármuni hafi tekið gildi.
5.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 7, einbýlishús
Jón Vilberg Gunnarsson sækir um heimild til þess að hafa þakskyggni á húsi við Hagaleiru 7 óverulega út fyrir byggingarreit.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að hafa þakskyggni óverulega út fyrir byggingarreit skv. framlögðum teikningum án breytingar á deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda um óverulegt frávik að ræða sem skerðir hagsmuni nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Staðfesting nágranna liggur fyrir.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Byggingarleyfisumsókn - Horn 1, viðbygging við veitingarhús
Ómar Antonsson sækir um leyfi til að byggja við veitingahús Viking Cafe á Horni. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að byggja við veitingahúsið á Horni í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44 gr. skipulagslaga enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Byggingarleyfisumsókn - Víkurbraut 29, breyting á þakkanti, breyting á notkun að hluta
Ríkiseignir sækja um leyfi til að breyta þakkanti byggingar á Víkurbraut 29-31. Við breytingu stækkar þakskyggni við aðalinngang og á bakhlíð. Einnig er sótt um leyfi til að uppfæra brunavarnir og innrétta litla íbúð fyrir starfsmann. Lóð er á samfélagsþjónustusvæði og skv. deiliskipulagi er ekki gert ráð fyrir stækkun.
Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið þar sem ekki er skilgreindur byggingarreitur fyrir húsið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að gera útlitsbreytingar á húsinu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Lagt er til að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem breytingin er óveruleg og hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að heimilt sé að útbúa íbúð til skammtímabúsetu starfsfólks en bendir á að ekki sé heimilt að vera með skráða búsetu í íbúðinni og ekki sé talið heppilegt að búa á vinnustað og hvetur Ríkiskaup til þess að leita annarra leiða til þess að hýsa starfsfólk sitt.
Málinu vísað til bæjarstjórnar
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að gera útlitsbreytingar á húsinu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Lagt er til að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem breytingin er óveruleg og hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að heimilt sé að útbúa íbúð til skammtímabúsetu starfsfólks en bendir á að ekki sé heimilt að vera með skráða búsetu í íbúðinni og ekki sé talið heppilegt að búa á vinnustað og hvetur Ríkiskaup til þess að leita annarra leiða til þess að hýsa starfsfólk sitt.
Málinu vísað til bæjarstjórnar
8.
Byggingarleyfisumsókn - Víkurbraut 25A-E, raðhús
JEK ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 5 íbúða raðhús að Víkurbraut 25. Um er að ræða íbúðir fyrir aldraða. Sótt er um breytingu lóðarmarka og um heimild fyrir þakskyggni til að fara utan byggingarreits og stækkun byggingarreits um 16 cm til norð-austurs.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að breyta innri lóðamörkum milli íbúða og heimila þakskyggni út fyrir byggingarreit og minniháttar breytingu á byggingarreit án breytingar á deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga, enda um óverulegt frávik að ræða sem skerðir hagsmuni nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Óskað er eftir heimild til að breyta íbúðarhúsnæði við Dalbraut 4 á Höfn. Breytingin felur í sér að húsnæðinu er skipt upp í þrjár íbúðir í stað einnar. Þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag af svæðinu hefur verið óskað eftir staðfestingu frá hagsmunaaðilum að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að breyta notkun þannig að þrjár íbúðir verði í húsinu í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi þegar farið fram.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Umsögn um drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis
Anna Ragnarstóttir Pedersen sat fundinn undir liðum 10 - 17.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur óskað eftir umsögn um breytingu á lögum vegan innleiðingar hringrásarhagkerfisins.
Starfsmanni falið að ganga frá tillögu að umsögn og skila inn.
11.
Umsögn um drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur óskað eftir umsögn um drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032
Starfsmanni falið að ganga frá tillögu að umsögn og skila inn.
12.
Umsögn - Heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 121.mál
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld.
Starfsmanni falið að ganga frá tillögu að umsögn og skila inn.
13.
Rotþrær í sveitarfélaginu
Sveitarfélagið hefur unnið að úrbótum í málaflokknum, en það hefur staðið lengi til. Kortlagning og skráning gagna er forsenda fyrir sanngjarnar gjaldtöku og jafnræðis.Umræða um endurnýjun samþykktar um hreinsun rotþróa.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
14.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Farið yfir drög að umhverfisstefnu sveitarfélagsins.
Mælanleg markmið í umhverfisstefnunni rædd og mótuð. Starfsmanni falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins. Stefnt er að því að taka stefnuna upp á næsta fundi og hún þá samþykkt og hún þá birt í kjölfarið.
15.
Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Ósland
Auglýstur umsagnartími vegna stjórnunar og verndaráætlun Óslands er nú liðinn.Umhverfis og skipulagsnefnd er hér með upplýst um þá umræðu sem hefur farið fram innan samstarfshópsins.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður.
16.
Refir og minkar
Lengi hefur verið kallað eftir breytingum í málaflokknum.Breytingar á gjaldskrá sem og breytt verklag sveitarfélagsins varðandi verðlaun tekin til umræðu. Þörf er á að endurnýja samninga við ráðna veiðimenn.
Almenn umræða um refa og minkaveiðar. Starfsmanni falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
17.
Samantekt á sorpmálum 2020
Farið yfir sorpmálefni seinasta árs.
Sveitarfélagið setur sér markmið um að minnka hlutfall urðaðs heimilisúrgangs niður fyrir 50% á árinu.
Fyrirhugað eru endurbætur í gámaporti til þess að hámarka endurnotkun/vinnslu og skapa góða umgjörð um málaflokkinn. Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
Fyrirhugað eru endurbætur í gámaporti til þess að hámarka endurnotkun/vinnslu og skapa góða umgjörð um málaflokkinn. Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
18.
Aðalskipulagsbreyting Seljavellir III
Skipulagslýsing vegna aðalskipulagsbreytingar var auglýst frá 19. janúar til 1. febrúar sl. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Vegagerðinni og HAUST. Lögð er fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu þar sem gert er ráð fyrir 40 gistirýmum með allt að 80 gestum á 9 ha. svæði á reit VÞ 10.
Málinu er frestað þar sem engin gögn bárust.
19.
Deiliskipulag Seljavellir III
Deiliskipulag fyrir Seljavelli III var auglýst vorið 2019. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við samræmi við aðalskipulag. Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi aftur samhliða breytingu á aðalskipulagi.
Málinu er frestað.
20.
Breyting á deiliskipulagi, útbæ Höfn
Lögð fram á ný umsókn um breytingu á deiliskipulagi þar sem heimilað verði að hótel á lóðinni verði að hluta til 3ja hæða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar því að stór hluti byggingarinnar verði á þremur hæðum. Það er álit nefndarinnar að mikilvægt sé að huga að útliti svo stórra húsa og að það falli vel inn í umhverfið og því þörf á betri aðlögun að svæðinu. Starfsmanni falið að ræða við umsækjanda í samræmi við umræður á fundinum.
21.
Deiliskipulag við Hrollaugsstaði
Lögð er fyrir skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags við Hrollaugsstaði. Í aðalskipulagi verður heimilað að auka fjölda íbúða á svæði VÞ22. Atvinnuhættir í sveitum hafa breyst mikið undanfarin ár og uppbygging ferðaþjónustu verið mikil á svæðinu. Því er mikilvægt að sveitafélagið geti boðið uppá íbúðalóðir nærri atvinnutækifærum og möguleikum á þjónustu sveitafélagsins við íbúa, s.s. rekstur leikskóla. Helstu markmið deiliskipulagsins eru:*Að móta hverfi sem hentar ólíkum fjölskyldugerðum*Að skapa notalegt umhverfi þar sem kostir þess að búa í sveit fá að njóta sín. *Áhersla er á notalega og mannvæna byggð sem fellur vel að núverandi byggð. *Skapa umgjörð og aðkomu að félagsheimilinu Hrollaugsstöðum. *Skapa ramma utan um opin svæði við Hrollaugsstaði*Tryggja umferðaöryggi
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu v. deiliskipulags og aðalskipulagsbreytingar skv. 30.gr. og 40. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
22.
Deiliskipulagsbreyting: Lambleiksstaðir
Skipulagið var áður auglýst sumarið 2019. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við framsetningu skipulagsgagna og hafa nú borist uppfærð gögn. Frestur skv. skipulagslögum til staðfestingar er liðinn og er tillagan því lögð fram aftur til auglýsingar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að deiliskipulagið verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga. Þar sem um er að ræða endurauglýsingu án umfangsmikilla breytinga er fallið frá kynningu skv. 3. mgr. 40.gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
23.
Deiliskipulag - Leirusvæði 2
Drög að skipulagslýsingu til umræðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu v. deiliskipulags og aðalskipulagsbreytingar skv. 30. gr. og 40. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
24.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - staðsetning hraðhleðslustöðvar á miðsvæði Hafnar
Umræða um staðsetningu hraðhleðslustöðvar á Höfn. Mikilvægt er að hleðslurnar verði staðsettar nálægt þjónustu (veitingum og salerni), aðgengi sé gott (ekki snjór, pollar eða svell) og bara almennt að notendaupplifun fólks af að hlaða á staðnum sé sem best. Einnig er sérstaklega mikilvægt að aðgengi að rafmagni sé sem best til að stækkun í framtíðinni geti átt sér stað sbr. upp í 300kW síðar. ON hefur lagt fram dæmi um uppsetningu hraðhleðslustöðva og stærð og óskar eftir tillögum að mögulegum staðsetningum.
Starfsmanni falið að ræða við umsækjanda um fram lagðar tillögur og undirbúa kynningargögn náist sátt um staðsetningu.
25.
Hraðhleðslustöð á Höfn
Fyrirspurn vegna hraðhleðslu á Höfn.
Starfsmanni falið að ræða við umsækjanda um fram lagðar tillögur og undirbúa kynningargögn náist sátt um staðsetningu.
26.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra vegna lóðar Júllatúni 10
Fyrirspurn um hvort hugsanlegt væri að breyta staðsetningu lóða í Júllatúni 10 og 8 til þess að íbúðirnar nytu betra útsýnis.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur ekki forsendur til að færa lóðirnar og minnka græna svæðið.
27.
Viðhalsdýpkun 2021
Bjóða þarf út viðhaldsdýpkun innan hafnar á árinu ásamt því að kortleggja mögulega losunarstaði. Hafnarstjórn óskar eftir samstarfi við umhverfis- og skipulagsnefnd um nýja losunarstaði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna áfram í málinu í samstarfi við Hafnarstjórn.
28.
Leyfi vegna efnistöku á Suðurfjörum
Óskað er eftir heimild til að taka allt að 2000 m3 af efni úr Suðurfjörum til rannsóknar á fýsileika fyrir efnistöku af svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að efnistakan sé skipulagsskyld og heimilar að unnin sé aðalskipulagsbreyting vegna efnistöku í rannsóknarskyni skv. umsókn. Heimilt verði að auglýsa skipulagslýsingu skv. 30. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
29.
Mánabraut 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hjalti Þór Vignisson sækir um leyfi fyrir útlitsbreytingu á húsi við Mánabraut 6. Breytingin felst í byggingu tveggja nýrra kvista. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Ásgrímur vék af fundi undir þessum lið.
Starfsmanni falið að undirbúa og auglýsa grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
Starfsmanni falið að undirbúa og auglýsa grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.