Umhverfis- og skipulagsnefnd
22. fundur
8. apríl 2021
kl.
16:00
-
19:20
Teams Meating
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson
formaður
Finnur Smári Torfason
varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Hjördís Skírnisdóttir
1. varamaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Íris Mist Björnsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Urðunarstaður Grænt bókhald 2020
Grænt bókhald fyrir urðunarstaðinn á Mel í landi Fjarðar í Lóni.Bókhaldið hefur verið sent til yfirlestrar til KPMG og bíður staðfestingar þeirra. Í kjölfarið verður því vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Lagt fram til kynningar. Vísað til umfjöllunar í bæjarráði.
2.
Ársfundur Umhverfisstofnunar, nátturuverndarnefnda og náttúrustofa
Ársfundur Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa verður að þessu sinni rafræn fundaröð dagana 8., 15. og 29. apríl Kl. 9-10:30.
Lagt fram til kynningar.
3.
Eftirlit umhverfisfulltrúa í gámaport
Umhverfisfulltrúi hefur sinnt reglulegu eftirliti seinustu vikurnar í Gámaporti á Höfn. Farið yfir stöðu mála til upplýsingar.
Umhverfis og skipulagsnefnd fagnar því að jákvæðar breytingar hafa orðið í gámaportinu og vonar að það skili sér í enn betri umgengni og áframhaldandi flokkun og endurvinnslu úrgangs.
4.
Grenndarstöð í Öræfum
Erindi frá Evu Bjarnadóttur þar sem hún býður sveitarfélaginu aðstöðu til leigu fyrir grenndarstöð í Öræfum. Í erindinu kemur fram að, "með því að vera með grenndarstöð í Öræfunum gæti samfélagið orðið vistvænna, en oft enda hlutir sem í þéttbýli færu í endurvinnslu í almennu sorpi, þar sem keyra þarf með þá langar vegalengdir til þess að koma þeim á áfangastað".
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið. Ekki er fyrirhugað að breyta fyrirkomulagi sorphirðu í dreifbýli að svo stöddu. Starfsmanni falið að kanna möguleika á aukningu á endurvinnslu og endurnotkun í tengslum við endurskoðun á útboði sorphirðu í sveitarfélaginu 2022.
5.
Sorphirða í frístundabyggð í Stafafellsfjöllum
Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins getur sveitarfélagið séð um að hirða sorp frá sumarhúsabyggðum yfir sumarmánuðina. Eina svæðið sem fellur undir þetta ákvæði er Stafafellsfjöll. Unnið hefur verið að skipuleggja fyrirkomulag í framhaldi af breyttri þjónustu í dreifbýli og því að gámar á aurunum hafa verið fjarlægðir.
Lagt fram til kynningar.
6.
Svæðið milli Fiskhóls og Hrossabithaga
Á síðustu misserum hefur verið tekið á móti jarðvegi á svæðinu milli Fiskhóls og Hrossabithaga. Farið yfir stöðu málsins og fyrirhugaðan frágang á svæðinu. Umræður um hvaða svæði skuli nýtt til móttöku jarðvegs.
Gert er ráð fyrir að gengið verði frá svæðinu í vor og sáð í það. Svæðið verður áfram hluti af grænum svæðum á Höfn. Starfsmanni falið að vinna að skipulagi á móttöku jarðvegs í samræmi við umræður á fundinum.
7.
Landsskipulagsstefna - ósk um umsögn
Skipulagsstofnun hefur sent svör vegna umsagna um Landsskipulagsstefnu.
Lagt fram til kynningar.
8.
Staða fráveituframkvæmda
Upplýsingar vegna umsóknar um styrki til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis vegna fráveituframkvæmda.
Lagt fram til kynningar.
9.
Leiðarhöfði - Hönnunarsamkeppni
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur fengið styrk til að halda hönnunarsamkeppni á Leiðarhöfða. Umræður um fyrirhugaða samkeppni og íbúakönnun.
10.
Almannavarnir: Svínafellsjökull
Leitað hefur verið til Skipulagsstofnunar vegna óvissu um stöðu skipulagsmála í framhaldi af áhættumati vegna sprungu og ofanflóða í Svínafellsjökli. Farið var yfir stöðu málsins nýlega á íbúafundi í Öræfum.
Lagt fram til kynningar.
11.
Aðalskipulagsbreyting - Þjóðvegur 1 í Öræfum
Þann 23. mars. sl. var málið rætt á fundi með íbúum í Öræfum. Þar kom fram vilji íbúa til að flytja veginn neðar í landið en þær hugmyndir sem kynntar voru á fundinum gera ráð fyrir.
Starfsmanni falið að ræða við Vegagerðina um hönnun á mögulegri veglínu skv. umræðum á íbúafundi í Öræfum og undirbúa breytingu á aðalskipulagi.
12.
Breyting á aðalskipulagi - Heppuvegur 6
Óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi á lóð Heppuvegi 6 vegna breyttrar notkunar. Húsið hefur verið notað sem sláturhús og starfsemi tengdri því. Óskað er eftir breytingu á skipulagi sem heimilar notkun hússins fyrir íbúðir, matvælaframleiðsu / iðnaðarframleiðslu, veitingasölu og listsýninga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að vinna breytingu þar sem miðsvæði er stækkað þannig að hluti Heppuvegar 6 verði innan Miðsvæðis þar sem starfsemi skv. umsókn verður heimiluð sem og íbúðir í hluta hússins. Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
13.
Deiliskipulag - Leirusvæði 2
Forsendur vegna uppbyggingar á Leirusvæði II. Samkvæmt minnisblaði frá jarðtækniverkfræðingum er æskilegt að grunda hús á svæðinu með fergingu. Líklegt þykir að sig verð a.m.k. 2 ár að koma fram jafnvel lengur. Samkvæmt þessum niðurstöðum er líklegt að ekki verði hægt að hefja byggingarframkvæmdir á Leirusvæði II fyrr en árið 2023 í fyrsta lagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna áfram að skipulagi Leirusvæðis II en telur jafnframt ljóst að leita þurfi annarra leiða til þess að tryggja lóðaframboð á næstu árum.
14.
Skipulag íbúðarsvæðis
Í ljósi þess að uppbygging á Leirusvæði II verður ekki möguleg fyrr en í fyrsta lagi árið 2023 þarf að hefja skipulagsvinnu á öðrum svæðum til að mæta þörf á byggingarlóðum á næstu árum.
Starfsmanni falið að greina valkosti til uppbyggingar á íbúðalóðum.
Bókun 3ja framboðsins:
"Á síðasta fundi skipulagsnefndar benti fulltrúi 3.framboðsins á Handbók um íbúasamráð í sveitarfélögum og þeim verkferlum sem þar eru kynntir (sjá: https://www.samband.is/wp-content/uploads/2020/05/lydraedisrit_loka.pdf). Það hefur sýnt sig að þeir sem vinna eftir þessu ferli að þar næst meiri sátt um skipulagsmál. Jafnframt er lagt til að hefja nú þegar vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi og hafa þá sérstaklega í huga hvar uppbygging nýrra íbúðasvæða í þéttbýlinu eigi að vera."
Bókun 3ja framboðsins:
"Á síðasta fundi skipulagsnefndar benti fulltrúi 3.framboðsins á Handbók um íbúasamráð í sveitarfélögum og þeim verkferlum sem þar eru kynntir (sjá: https://www.samband.is/wp-content/uploads/2020/05/lydraedisrit_loka.pdf). Það hefur sýnt sig að þeir sem vinna eftir þessu ferli að þar næst meiri sátt um skipulagsmál. Jafnframt er lagt til að hefja nú þegar vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi og hafa þá sérstaklega í huga hvar uppbygging nýrra íbúðasvæða í þéttbýlinu eigi að vera."
15.
Breyting á deiliskipulagi, útbæ Höfn
Borist hafa nánari upplýsingar um ósk um breytingu á deiliskipulagi Höfn Útbær vegna hótelbyggingar á lóð D, E g F.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
16.
Deiliskipulag - Stekkaklettur
Deiliskipulag vegna uppbyggingar skv. leigusamningi Stekkakletts. Markmið deiliskipulagsins er að framfylgja markmiðum aðalskipulags um eflingu byggðar, styrkja og auka fjölbreytileika atvinnu og menningarlífs í sveitarfélaginu. Gera listsköpun sýnilega, styrkja og efla menningu, sköpun og tjáskipti og hlúa að menningararfi samfélagsins í Hornafirði og nágrenni. Gera fasta búsetu vænlega á staðnum og auðvelda almenningi og fagfólki snertingu við listsköpun þá sem þar fer fram. Búa starfsemi á staðnum fastan ramma í samræmi við áætlanir og markmið sem fram koma í vinningstillögu um nýtingu á Stekkakletti. Búa til nærumhverfi sem frjóvgar huga og tjáskipti þeirra sem dvelja og skapa á svæðinu. Gera ábúendum kleift að stuðla að takmarka kolefnispor sitt með gróðursetningu trjáa og ræktun á eigin matvælum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillögunni verði breytt í samræmi við leigusamning. Samþykkt að auglýsa tillöguna með þeim breytingum skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga. Allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi og því er fallið frá kröfu um lýsingu.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
17.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Forsendur vegna breytinga á deiliskipulagi Hornafjarðarhafna við Ósland.
Málinu vísað til Hafnarstjórnar. Starfsmanni falið að hefja vinnu við breytingu á skipulagi.
18.
Deiliskipulagsbreyting - Bugðuleira 7 og Álaleira 9-11
Mikael ehf hefur óskað eftir breytingu á deiliskipulagi þar sem gert verður ráð fyrir raðhúsum með bílskúr í stað fjölbýlishúsa á lóðum við Álaleiru 9-11.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fellst á að skipulagi lóðanna verði breytt. Starfsmanni falið að undirbúa breytingu á deiliskipulagi í samræmi við umsókn.
19.
Deiliskipulagsbreyting: Lambleiksstaðir
Markmið með gerð breytingar á deiliskipulagi fyrir Lambleiksstaði er að efla byggð og styrkja atvinnulíf. Ferðaþjónusta hefur lengi verið á Lambleiksstöðum og með gerð þessarar breytingar er rekstrargrundvöllur styrktur, skipulagssvæðið stækkað og skipt í byggingarreiti A-D hver með sína húsaþyrpingu. Breytingin á deiliskipulaginu tekur til frekari uppbyggingar á gistiaðstöðu og nýbygginga fyrir ferðaþjónustu. Skipulagið var til kynningar frá 18. febrúar 2021 til og með 2. apríl 2021.Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að deiliskipulagið verði samþykkt skv. 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
20.
Deiliskipulag Borgarhöfn
Tillaga að deiliskipulagi til auglýsingar. Meginmarkmið með deiliskipulaginu er að skilgreina tjaldsvæði, byggingarreit fyrir smáhýsi og lóðir og byggingarreiti fyrir frístundahús. Áform landeiganda er að efla ferðaþjónustu á svæðinu og bjóða uppá möguleika til gistingar og afleidda þjónustu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að skipulagstillagan verði auglýst skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
21.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi þar sem lega Prestbakkalínu samræmist ekki legu í aðalskipulagi. Sótt hefur verið um framkvæmdaleyfi vegna færslu línunnar enda er ysta mastrið nú aðeins um 7,5m frá sjávarbakkanum. Leitað var umsagna Vegagerðarinnar, Umhverfisstofnunar, Minjastofnunar sem gera ekki athugasemdir við færsluna. Umsögn hefur ekki borist frá Vatnajökulsþjóðgarði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að tillagan feli í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins. Grenndarkynning hefur þegar farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga þar sem óskað var umsagna. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga með fyrirvara um jákvæða umsögn Vatnajökulsþjóðgarðs. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
22.
Lóðamörk lóða við Silfurbraut 9-17 og 19-29
Vakin hefur verið athygli á því að lóðamörk raðhúsa við Silfurbraut 9-17 og 19-29 sé ekki í samræmi við nýtingu íbúa. Um er að ræða nýtingu svæðis umfram lóðamörk frá byggingu húsanna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að lóðirnar verði stækkaðar í samræmi við raunverulega nýtingu íbúa við mörk á gróðri til suðurs og gangstíg til norðurs. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og breytingin talin óveruleg og til samræmis við núverandi notkun. Starfsmanni falið að grenndarkynna fyrir íbúum stækkun lóðanna skv. 44. gr. skipulagslaga.
23.
Stöðuleyfisumsókn: Víkurbraut 29 Skjólgarður: Gámur
Bæjarráð vísaði málinu til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd. Umsókn um stöðuleyfi fyrir skrifstofugám við Skjólgarð til vors 2023 á meðan nýtt húsnæðið er í byggingu.Samkvæmt 4. mgr. gr. 2.6.1. byggingarreglugerðar skulu stöðuleyfi mest vera veitt til 12 mánaða nema ákvæði skipulags mæli fyrir um annað.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir bókun bæjarráðs og telur að heppilegra væri að leita annarra lausna en að staðsetja skrifstofugám við núverandi húsnæði.
24.
Hrísbraut 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Árnason sækir f.h. Óskars Arasonar og Írisar Heiðar Jóhannesdóttur um leyfi til að byggja við Hrísbraut 3. Um er að ræða sólstofu vestan megin við núverandi hús. Einnig er sótt um leyfi til að saga niður úr gluggaopi á vesturgafli hússins ogsetja nýja hurð.
Starfsmanni falið að undirbúa og auglýsa grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
25.
Mánabraut 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hjalti Þór Vignisson sækir um leyfi fyrir útlitsbreytingu á húsi við Mánabraut 6. Breytingin felst í byggingu tveggja nýrra kvista. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Grenndarkynning var auglýst frá 10 febrúar til 10 mars. Engar athugasemdir bárust.
Ásgrímur vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingar á húsnæðinu án deiliskipulagsgerðar skv. 44. gr. skipulagslaga enda er breytingin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingar á húsnæðinu án deiliskipulagsgerðar skv. 44. gr. skipulagslaga enda er breytingin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
26.
Hraðhleðslustöð á Höfn
Óskað hefur verið eftir lóð undir hraðhleðslustöð á Höfn á hluta bílastæðs við höfnina.
Málinu vísað í hafnarstjórn og starfsmanni falið að grenndarkynna áformin fyrir íbúum þegar afstaða hafnastjórnar liggur fyrir.
27.
Umsókn um lóð fyrir þjónustumiðstöð
Óskað hefur verið eftir lóð fyrir þjónustumiðstöð - Laufey - á Höfn. Um er að ræða þjónustu við ferðamenn þar sem eru salerni, veitingar og gagnvirkt kynningarefni. Sótt er um lóð 0,5-1 ha að stærð. Engin slík lóð er á verslunar og þjónustusvæði á Höfn.
Starfsmanni falið að skoða hvort lóð í Óslandi gæti hentað. Vísað til vinnu við endurskoðun á deiliskipulagi í Óslandi.
28.
Byggingarleyfisumsókn: Reynivellir 2a (L225395) - geymsla
Sótt er um byggingarleyfi fyrir geymslu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Staðsetning hússins hefur verið grenndarkynnt fyrir eigendum að Reynivöllum 2. Ekki voru gerðar athugasemdir við fyrirhugaða byggingu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir byggingu geymslu skv. umsókn án deiliskipulagsgerðar skv. 44. gr. skipulagslaga enda er breytingin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin leggur áherslu á að ekki verði heimilaðar fleiri byggingar á svæðinu án þess að fyrir liggi staðfest deiliskipulag með heildarsýn fyrir bæjartorfuna. Skorað er á landeigendur á jörðinni að sameinast um deiliskipulagsgerð. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
29.
Smáhýsi - Reynivellir 2
Suðursveit hyggst reisa smáhýsi á Reynivöllum. Fest hafa verið kaup á einu smáhýsi sem kemur frá Litháen innan tveggja vikna. Í framhaldi verða reist fleiri hús einnig á Reynivöllum. Staðsetning húsanna verður fyrir neðan sumarbústaðina sem fyrir eru á jörðinni og voru reistir af Eimskip á áttunda áratugnum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að gefa út byggingarleyfi í samræmi við 44. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjenda. Nefndin leggur áherslu á að ekki verði heimilaðar fleiri byggingar á svæðinu án þess að fyrir liggi staðfest deiliskipulag með heildarsýn fyrir bæjartorfuna. Skorað er á landeigendur á jörðinni að sameinast um deiliskipulagsgerð. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
30.
Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir nýjan veg við Kálfafellsstaðarkirkju
Lögð hefur verið fram ósk um framkvæmdaleyfi vegna nýs aðkomuvegar og bílastæðis við Kálfafellsstaðakirkju. Málið hefur áður verið til umræðu í nefndinni þann 7.9.2016 þar sem bókað er að framkvæmdin sé ekki deiliskipulagsskyld. Framkvæmdin er alfarið í landi Kálfafellsstaðarkirkju. Óskað hefur verið umsagnar Minjastofnunar og Vegagerðarinnar vegna framkvæmdaleyfis.
Minjastofnun og Vegagerðin gera ekki athugasemdir við framkvæmdina. Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
31.
Framkvæmdaleyfi - færsla á Prestbakkalínu Breiðamerkursandi.
Óskað hefur verið eftir framkvæmdaleyfi vegna færslu á Prestbakkalínu á Breiðamerkursandi. Nauðsynlegt er að færa línuna vegna landrofs en það er orðið mjög stutt frá línustæðinu út í sjó. Leitað var umsagna Vegagerðarinnar, Umhverfisstofnunar, Minjastofnunar sem gera ekki athugasemdir við færsluna. Umsögn hefur ekki borist frá Vatnajökulsþjóðgarði.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga með fyrirvara um umsögn Vatnajökulsþjóðgarðs.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga með fyrirvara um umsögn Vatnajökulsþjóðgarðs.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
32.
Framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara frá Setbergi til Rauðabergs
Óskað er eftir framkvæmdaleyfi til að leggja ljósleiðarastreng frá tengistað Rarik í landi Setbergs að tengistað við gatnamót á vegi no:1 og 986 að Rauðabergi. Áætlaður framkvæmdatími er sumarið 2021. Ástæða lagnarinnar er áframhaldandi uppbygging ljósleiðarakerfis Orkufjarskipta milli tengjvirkja, til stýringa á raforkukerfi landsmanna.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
33.
Umsókn um stækkun á lóð - Álaleira 6
Sótt er um stækkun á úthlutaðri lóð við Álaleiru 6.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að lóðin verði stækkuð skv. umsókn. Breytingin hefur ekki áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið og því ekki þörf á grenndarkynningu.
34.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 11, einbýlishús
Anna Regína Heiðarsdóttir og Hlynur Kristjánsson sækja um heimild til þess að hafa þrjú bílastæði á lóð Hagaleira 11 og að lágmarkshalli þaks verði 8 gráður. Gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir tvö bílastæði og 10 gráða lágmarkshalla þaks.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að vikið sé frá kröfum deiliskipulags samkv. framlögðum gögnum. Frávik eru óveruleg og hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn og er því fallið frá breytingu á skipulagi og grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.