Umhverfis- og skipulagsnefnd
26. fundur
11. ágúst 2021
kl.
16:00
-
18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Vésteinn Fjölnisson
2. varamaður
Finnur Smári Torfason
varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson
aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 12
Lagt fram til kynningar.
2.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 13
Lagt fram til kynningar.
3.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Drög að umhverfisstefnu og aðgerðaráætlunar hafa verið yfirfarin af Söndru Rán Ásgrímsdóttur sjálfbærniverkfræðingi hjá Mannvit.
Umhverfisfulltrúi boðar til vinnufundar 1. október nk. um umhverfisstefnu, aðgerðaráætlun og afleidd verkefni. Lagt er til að fulltrúum annarra nefnda verði boðið að taka þátt í vinnufundinum. Umhverfisfulltrúa er falið að kostnaðarmeta fyrir fjárhagsáætlunargerð þær tillögur að aðgerðum sem þegar liggja fyrir.
4.
Umhverfisviðurkenning 2021
Óskað er eftir til tilnefningum til umhverfisviðurkenninga 2021. Frestur til að senda inn tilnefningar er 22. ágúst.
Íbúar eru hvattir til að senda inn tilnefningar til umhverfisviðurkenninga.
Auglýst er eftir tilnefningum á einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum, fyrirtækjum, lóðum og lögbýlum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem hafa með athöfnum sínum verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúruna og umhverfið að eðlilegum þætti í hversdagslífi sínu, starfi og rekstri eða hafa á annan hátt lagt mikið af mörkum til verndunar á náttúru og umhverfi.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til 22. ágúst, þeim skal skila í afgreiðslu ráðhússins við Hafnarbraut 27 eða á netfangið anna@hornafjordur.is
Auglýst er eftir tilnefningum á einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum, fyrirtækjum, lóðum og lögbýlum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem hafa með athöfnum sínum verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúruna og umhverfið að eðlilegum þætti í hversdagslífi sínu, starfi og rekstri eða hafa á annan hátt lagt mikið af mörkum til verndunar á náttúru og umhverfi.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til 22. ágúst, þeim skal skila í afgreiðslu ráðhússins við Hafnarbraut 27 eða á netfangið anna@hornafjordur.is
5.
Nytjasmiðjan-regnhlíf hringrásarhagkerfis í Sveitarfélaginu Hornafirði
Sveitarfélagið fékk styrk að upphæð 5.000.000 kr frá umhverfis og auðlindaráðuneytinu fyrir Nytjasmiðjunni.Markmið verkefnisins er að í Sveitarfélaginu Hornafirði þrífist öflugt hringrásarhagkerfi þannig að stærstur hluti þess úrgangs sem fellur til í sveitarfélaginu hafi annan og betri farveg en urðun eða endurvinnsla í öðrum landshlutum eða löndum.Lagt fram til kynningar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar styrkveitingunni og felur umhverfisfulltrúa að vinna verkefnið áfram.
6.
Nafn á víkinni við Ránarslóð
Erindi frá Gunnari Stíg Reynissyni þar sem hann leggur til að manngerðu víkinni við Ránarslóð verði gefið nafn. Þess er óskað að íbúar komi að valinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur umhverfisfulltrúa að óska eftir nafnatillögum meðal íbúa.
7.
Breyting á jarðalögum - verklag sveitarfélagsins
Erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem tilkynnt er að Alþingi samþykkti breytingu á jarðarlögum nr. 81/2004. Helstu breytingar sem snúa að sveitarfélögum eru að felld er brott skylda ráðherra að samþykkja breytta landnotkun á landbúnaðarsvæðum en um leið leitast við að styrkja sveitarfélögin til að takast á við breytingar á landnotkun þannig að þau hafi betri möguleika að gæta hagsmuna landbúnaðar við gerð skipulags. Breyting á jarðarlögum kallar á settar séu reglur um nýtt verklag. Bæjarráð hefur falið starfsmönnum að undirbúa vinnu að nýjum verklagsreglum. Lagt fram til kynningar.
8.
Breyting á aðalskipulagi - Heppuvegur 6
Breyting á aðalskipulagi fyrir Heppuveg 6 lögð fram. Megin markmið með breytingunni er að M1 miðsvæði stækkar og Heppuvegur 5 og hluti Heppuvegar 6 verða á miðsvæði í stað athafnasvæðis.Með breyttri landnotkun verður heimilt að hafa á lóðunum matvælaframleiðslu/iðnaðarframleiðslu, veitingasölu og listsýningar auk íbúða. Aðalskipulagsbreytingin hefur verið kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði send Skipulagsstofnun til athugunar skv. 3. mgr. 30.gr. skipulagslaga og auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Deiliskipulag: Reynivellir II
Markmiðið með gerð deiliskipulagsins er að byggja upp ferðaþjónustu, gistingu og/eða hótel. Nýtt þjónustusvæði VÞ45 liggur sunnan þjóðvegar og er í landi Reynivalla ll. Markmið er að reisa hótel á svæðinu auk þess að styrkja þjónustu við ferðamenn og heimamenn svo sem með vöru- og eldsneytissölu auk ýmis konar afþreyingu s.s. sölu á jökla- og gönguferðum, leiðsögn o.fl. Tillagan var áður auglýst frá 29. janúar til 11. mars 2020. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, HAUST, Vegagerðinni, Náttúrustofu Suðausturlands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun og Veðurstofunni. Brugðist var við athugasemdum sem fram komu á auglýsingartíma. Á grundvelli umsagna var unnið mat á flóðahættu á svæðinu. Tillagan var í kynningu að nýju frá 15. júní til 29. júlí. Endurnýjaðar umsagnir bárust frá Vegagerðinn og Veðurstofu Íslands. Nánari upplýsingar hafa verið sendar til Veðurstofunnar. Bæjarráð tók deiliskipulagið til umræðu á eittþúsundasta fundi sínum og samþykkti í umboði bæjarstjórnar. Komið hefur í ljós að afstaða Veðurstofu Íslands er óbreytt og er því skipulagið tekið til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið með fyrirvara um jákvæða umsögn Veðurstofunnar og vísar því í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga.
10.
Deiliskipulag - Stekkaklettur
Deiliskipulagstillagan var í kynningu 20. apríl til 1. júní 2021. Markmið með gerð deiliskipulagsins er að framfylgja markmiðum aðalskipulags um eflingu byggðar, styrkja og auka fjölbreytileika atvinnu og menningarlífs í sveitarfélaginu. Gera listsköpun sýnilega, styrkja og efla menningu, sköpun og tjáskipti og hlúa að menningararfi samfélagsins. Búa starfsemi á staðnum fastan ramma í samræmi við áætlanir og markmið sem fram koma í tillögu um nýtingu á Stekkakletti. Deiliskipulagið var auglýst frá 20. apríl til 1. júní 2021. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Vegagerðinni, HAUST og Minjastofnun. Brugðist hefur verið við umsögnum skv. fundargerð 25. fundar Umhverfis- og skipulagsnefndar.
Meirihluti umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkir deiliskipulagið skv. 41. gr. skipulagslaga og felur starfsmönnum að svara umsagnaraðilum og senda tillöguna til til umfjöllunar Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga. Fulltrúi 3. framboðsins sat hjá við afgreiðslu málsins. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Deiliskipulag Brunnhóll
Deiliskipulagstillagan var í kynningu frá 19. október til 1. desember 2017 og samþykkt í bæjarstjórn í mars 2018. Láðst hefur að auglýsa skipulagið í B- deild og því þarf að endurauglýsa skipulagið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skipulagið verði uppfært þar sem búið er að reisa byggingar á byggingareitum B1 og B2. Lagnir fyrir varmadælu í jörð eru frágengnar og hreinsivirki fyrir frárennsli er frágengið. Tillagan hefur áður verið auglýst og kynnt fyrir íbúum skv. 40. gr. skipulagslaga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að tillagan sé auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að tillagan sé auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Deiliskipulagsbreyting: Lambleiksstaðir
Skipulagsstofnun gerir athugasemdir við að deiliskipulagið sé auglýst í B-deild. Stofnunin telur að fjöldi gistirýma sé umfram það sem heimild er til í aðalskipulagi.
Brugðist hefur verið við athugasemdum. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn veiti heimild til að rýmka vikmörk frá aðalskipulagi. Starfsmanni er falið að óska eftir umsögn HAUST að nýju.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið skv. 41. gr. skipulagslaga með fyrirvara um jákvæða umsögn HAUST og felur starfsmönnum að svara umsagnaraðilum og senda tillöguna til til umfjöllunar Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið skv. 41. gr. skipulagslaga með fyrirvara um jákvæða umsögn HAUST og felur starfsmönnum að svara umsagnaraðilum og senda tillöguna til til umfjöllunar Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Fyrirspurn til byggingarfulltrúa - Sandbakki 9, viðbygging
Óskað er eftir heimild til að byggja viðbyggingu við hús á Sandbakka 9. Um er að ræða u.þ.b. 19m² sólstofu vestan megin hússins. Lóðin er á svæði C2 skv. núgildandi deiliskipulagi miðbæjar, en um það kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3. Skv. Þjóðskrá er núverandi nýtingarhlutfall lóðar 0,34. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti. Grenndarkynning fór fram á tímabilinu 14. júlí til 11. ágúst. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu án deiliskipulagsbreytingar skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar. Finnur vék af fundi undir þessum lið.
14.
Tilkynning um framkvæmd - Sandbakki 22, sólskáli
Sótt er um leyfi til að byggja við íbúð í raðhúsi á Sandbakka 22. Um er að ræða 4,20m x 3,50m sólskála allt að 3m að hæð. Lóð er á svæði C2 skv. núgildandi deiliskipulagi miðbæjar, en um það kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3. Svk. Þjóðskrá er núverandi nýtingarhlutfall lóðar 0,46. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti. Samþykki íbúa raðhússins liggur fyrir. Grenndarkynning fór fram á tímabilinu 14. júlí til 11. ágúst. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu án deiliskipulagsbreytingar skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar. Finnur vék af fundi undir þessum lið.
15.
Byggingarleyfisumsókn - Álaleira 5 - nýtt iðnaðarhúsnæði
Sótt er um byggingarleyfi fyrir 355,7m² iðnaðarhús á lóð Álaleira 5. Um er að ræða nýframkvæmd. Ekki er til staðfest deiliskipulag fyrir svæði. Grenndarkynning fór fram á tímabilinu 14. júlí til 11. ágúst. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar byggingu á lóðinni án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
16.
Byggingarleyfisumsókn Garðsbrún 2 - viðbygging, breyting á klæðningu, skipting glugga
Sótt er um leyfi til að byggja við íbúðarhús að Garðsbrún 2. Um er að ræða um 15m² stofu á neðri hæð. Einnig er sótt um leyfi til að skipta um glugga og hurðir, og að endurklæða húsið, fjarlægja núverandi plastklæðningu og klæða með litaðri báruklæðningu og lerki viðarklæðningu á afmörkuðum svæðum. Ekki er til staðfest deiliskipulag fyrir svæði. Grenndarkynning fór fram á tímabilinu 14. júlí til 11. ágúst. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
17.
Framkvæmd - Hafnarbraut - Hellulagnir
Farið yfir stöðu framkvæmda við Hafnarbraut. Lagt fram til kynningar.
18.
Umsögn um stöðuskýrslu vegna innleiðingar Árósarsamningsins
Ísland fullgilti í október 2011 Árósasamninginn um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Þar með varð Ísland fullgildur aðili að samningnum og því starfi sem tengist honum.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið undirbýr nú uppfærslu á skýrslu um stöðu innleiðingar Árósasamningsins hér á landi. Skýrsla verður þriðja skýrsla Íslands um innleiðingu samningsins. Skýrslan verður unnin í samráði við umhverfisverndarsamtök og tekur ráðuneytið einnig við öllum ábendingum frá almenningi um efni hennar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur ekki tilefni til að vinna umsögn vegna skýrslunnar.
19.
Skipulag íbúðarsvæðis
Umræður nefndarinnar um upplegg fyrir íbúafund í september þar sem rætt verður um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á Höfn, annarsvegar til næstu fimm ára og hinsvegar hvernig byggðin ætti að þróast til framtíðar.
20.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Heppuvegur 2a, Íshúsið viðbygging
Áform eru um að byggja viðbyggingu við veitingahús að Heppuvegi 2a (Íshúsið Pizzeria). Um er að ræða framlengingu hússins til austurs um 3m, en viðbygging mun vera 2m breiðara en núverandi húss. Ytra útlit hússins verður að öðru leyti óbreytt og lögð áhersla á að viðbygging falli að núverandi ásýnd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu án deiliskipulagsbreytingar skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Gert er ráð fyrir að sveitarfélagið fái lóð Verðandi til baka. Starfsmanni falið að útfæra nánar kvöð um aðkomu á lóð Verðandi. Málinu vísað til bæjarstjórnar.