Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

36. fundur
11. maí 2022 kl. 16:00 - 19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Finnur Smári Torfason varaformaður
Vésteinn Fjölnisson 2. varamaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Bartosz Skrzypkowski byggingarfulltrúi
Stefán Aspar Stefánsson
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir Umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Úrgangsmálefni: 2022
Málsnúmer 202201005
Framlagt minnisblað um stöðu úrgangsmála í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.
2.
Styrkir til eflingar hringrásarhagkerfisins 2022
Málsnúmer 202204013
Framlögð til kynningar umsókn sveitarfélagsins um styrk til eflingar hringrásarhagkerfisins til umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytisins.
Lagt fram til kynningar.
3.
Byggingarleyfisumsókn: Júllatún 21 - einbýlishús
Málsnúmer 202001102
Árdís Erna Halldórsdóttir skilar nýjum teikningum af húsi á lóð Júllatún 21. Fyrirhugað er að hafa flatt þak á húsinu, en í skilmálum deiliskipulagsins fyrir svæði segir að "mænisstefna er frjáls en gæta skal samræmis við nálægar byggingar". Ákvæði skipulagsins má túlka á þann hátt að gerð sé krafa um mænisþak. Með flötu þaki er gert ráð fyrir því að hæð hússins verður langt undir heimildum skipulagsins. Óskað er að heimilt verður að víkja frá ofangreindum skilmálum skipulagsins um mænisstefnu á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn heimili að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Umsókn um byggingarheimild - Stekkatún, viðbygging
Málsnúmer 202204077
Ragnar Frank Kristjánsson sækir um byggingarheimild fyrir viðbyggingu við frístundahús að Stekkatún í Öræfum samkvæmt framlögðum teikningum. Um er ræða lengingu á húsinu í suðurátt. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að veita byggingarheimild án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44.gr. skipulagslaga. Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi þegar farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. laganna. Engar athugasemdir bárust. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki að heimilt verði að gefa út leyfi án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Nefndin beinir því til umsækjanda að verði um frekari uppbyggingu að ræða á svæðinu skuli vinna deiliskipulag. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Byggingarleyfisumsókn - Bugðuleira 9 Álaleira 11, tvö raðhús
Málsnúmer 202111031
Mikael ehf. óskar eftir frávik frá deiliskipulagi til að heimila raðhús 4,66 m að hæð. Í gildi er deiliskipulag frá 1993 ásamt breytingu á því frá 2016, sem gera ráð fyrir tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum allt að 7,6m há. Unnin hefur verið breyting á þessu deiliskipulagi til að heimila tvö eins hæða raðhús á lóðinni. Breytingin var send til Skipulagsstofnunar en afgreiðsla hennar hefur dregist. Ný breyting gerir ráð fyrir því að hús verða allt að 4,5m há.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir athugasemdir við að framkvæmdir hafi verið hafnar áður en leyfi hafi verið veitt og að aðgerðir lóðarhafa leiddu til þess að byggingarfulltrúi þurfti að stöðva framkvæmdir.
Að því sögðu leggur Umhverfis- og skipulagsnefnd til að bæjarstjórn heimili að byggja 4,66 m raðhús skv. framlögðum teikningum og að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
6.
Umsókn um byggingarheimild - Lambhagi, viðbygging
Málsnúmer 202204027
Íris Ragnarsdóttir Pedersen og Árni Stefán Haldorsen sækja um byggingarheimild fyrir viðbyggingu við íbúðarhús að Lambhaga í Öræfum samkvæmt framlögðum teikningum. Fyrirhugað er að hafa þvottahús, baðherbergi og bílageymslu í viðbyggingunni. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að veita byggingarheimild án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44.gr. skipulagslaga. Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hefur þegar farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. laganna. Engar athugasemdir bárust. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki að heimilt verði að gefa út leyfi án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Nefndin beinir því til umsækjanda að verði um frekari uppbyggingu að ræða á svæðinu skuli vinna deiliskipulag. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Byggingarleyfisumsókn - Hafnarbraut 1, breyting á skráða notkun
Málsnúmer 202205026
Gistiheimilið Dyngja ehf. óskar eftir breytingu á notkun húss að Hafnarbraut 1 samkvæmt framlögðum teikningum. Húsið var reist sem íbúðarhús en notað sem gistiheimili á síðustu árum. Lóðin er á miðsvæði M 1 samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins, en ekki er til staðar gildandi deiliskipulag.
Umhverfis og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn heimili útgáfu byggingarleyfis fyrir breytingu á notkun húss að Hafnarbraut 1 án deiliskipulagsgerðar, sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Fallið er frá grenndarkynningu enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Aðalskipulag - Seljavellir 2 lóð
Málsnúmer 202203100
Reynir Ásgeirsson óskar eftir því að hefja skipulagsferli á landi sem stendur milli afleggjara Dýhóls og Hóla. Landspildan er hluti af Seljavöllum 2, L1595514 og liggur samsíða þjóðvegi 1. Spildan mælist um 6,8 ha að stærð en skipulagssvæðið er áætlað 1,4 ha. Fyrirhugaðar tillögur miða að skipulagningu smáhýsabyggðar tengda ferðaþjónustu, en samhliða megi skapa umgjörð um íbúðarhúsnæði fyrir starfsfólk á svæðinu um kring. Framkvæmd væri m.a. liður í því að stuðla að auknu framboði búsetu kosta í sveitarfélaginu. Áætlað er að koma fyrir 20 smáhýsum (heilsárshúsum) að stærð 50-60 m2 innan svæðisins. Hluti húsanna er áætlaður í langtíma leigu sem íbúðarhúsnæði. Óskað er eftir því að svæðið verði skipulagt sem verslunar og þjónustusvæði en að auki verði heimilt að hafa fasta búsetu á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að hafin verði vinna við breytingu á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags á svæðinu í samræmi við framlagðar hugmyndir.
9.
Landeignaskrá - Hnappavellir 2 - stofnun landeigna, landskipti
Málsnúmer 202204066
Sigurður Gunnarsson óskar eftir samþykki fyrir skiptingu Hnappavalla 2 L160165 og staðfestingu á að skiptingin sé í samræmi við skipulagsáætlanir sveitarfélagsins. Fyrirhuguð er að skipta út 1 landeign úr jörðinni - Hnappavellir 2A sem verður 1880m² að stærð. Hvorki hlunnindi né lögbýlisréttur fylgir lóðum. Landskipti mun ekki hafa áhrif á búrekstrarskilyrði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Ósk um stækkun lóðar Vesturbraut 6
Málsnúmer 202201108
Mikael ehf. sækir um enn frekari stækkun lóðar við Vesturbraut 6 skv. meðfylgjandi teikningu. Um er að ræða 4,6 m stækkun m.v. það sem áður var búið að samþykkja og þannig verður hægt að bæta einni íbúð við húsið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stækkun lóðarinnar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er tillagan í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir umsækjanda á að óska þarf eftir breytingu á aðalskipulagi til þess að heimilt sé að hafa fasta búsetu á lóðinni. Lóðin er skilgreind á svæði sem er VÞ3 í aðalskipulagi, gisting, eldsneytissala og tilheyrandi þjónusta, verslun. Allt að 40 gistirými. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 13 og 15
Málsnúmer 202106060
Umsækjendur hafa gert rýmisgreiningu á fyrirhugaðri starfsemi sláturhúss og kjötvinnslu á lóðinni. Gert er ráð fyrir að byggt verði a.mk. 400 m2 hús með sláturaðstöðu, kæli og frystigeymslum auk matarsmiðju. Forsenda fyrir starfseminni er að hægt sé að aka í kringum húsið á stórum flutningabílum með tengivagna, einnig þarf að vera pláss fyrir þvottaplan til að fylgja öllum reglum um sóttvarnir. Hægt þarf að vera að staðsetja frystigáma og gera þarf ráð fyrri bílastæðum fyrir starfsfólk og notendur matarsmiðju. Ósk um breytingu á lóðamörkum.Mikilvægt er að unnt sé að stækka fyrirtækið til framtíðar og því telja umsækjendur að lóðin þurfi að vera um 3000 m2 að lágmarki og skipt líkt og sýnt er á meðfylgjandi mynd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á afmörkun lóðanna og framlagðar stærðir án deiliskipulagsgerðar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er tillagan í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjenda og sveitarfélagsins. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
12.
Deiliskipulagsbreyting - Víkurbraut 9, Miðsvæði Hafnar reitur A
Málsnúmer 202204019
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar, reitur A milli Víkurbrautar og Tjarnarbrúar vegna fyrirhugaðar framkvæmdar við líkamsræktarstöð. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti að unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi og grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga á fundi sínum þann 04.04.2022.
Meirihluti umhverfis- og skipulagsnefndar telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi þegar farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.

Fulltrúi D- lista bókar athugasemd við að grenndarkynning hafi ekki náð til Fiskhóls og nærliggjandi íbúðarhúsa við Hafnarbraut.
13.
Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Borgartún 3 og 5, breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202111066
Óveruleg breyting á deiliskipulagi var grenndarkynnt með athugasemdarfresti til 4. apríl. Breyting er gerð við Hof í Öræfum þar sem heimilt verður að byggja allt að 385 m2 raðhús á lóðum 3 og 5 við Borgartún. Aðkoma að lóðum breytist og verður norðanmegin við húsin við lóðamörk. Athugasemdir bárust frá þremur aðilum sem leggjast gegn breytingunni.
Umhverfis- og skipulagsnefndar telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Nefndin vill vekja athygli á að skammtímaleiga er óheimil á svæðinu. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
14.
Deiliskipulagsbreyting - Stafafellsfjöll lóð 8
Málsnúmer 202203050
Borgþór Freysteinsson hefur óskað eftir breytingu á deiliskipulagi frístundasvæðis í Stafafellsfjöllum í Lóni. Breytingin nær til lóðar nr. 8 í Stafafellsfjöllum. Lóðin er eignarlóð og á því er nú þegar sumarhús, 22,3 m2 sem byggt var árið 1976. Breytingin fellur í sér breytingar á skilmálum í greinargerð deiliskipulagsins. Um er að ræða niðurfellingu viðmiðunarskilmála um mænisstefnu í 2.2. gr. sem segir að „miðað er við (...) að stefna aðalmænis fylgi sem mest meginstefnu í landinu og verði að jafnaði samsíða hlíðum“. Breytingin fellur einnig í sér niðurfellingu skilmála um stærð aukahúss í sömu grein sem segir að aukahús/gestahús getur ekki verið „stærra en helmingur af stærð aðalhúss“. Með fyrirhugaðri framkvæmd mun mænisstefna húss fylgja ekki sem mest meginstefnu í landinu, og stærð aukahúss verður stærra en helmingur af stærð aðalhúss. Ósk um frávik frá kröfum deiliskipulags hefur áður verið grenndarkynnt fyrir landeigendum og skiluð þá þrír landeigendur umsögnum. Grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar var send á 13 aðila auk sumarhúsafélagsins á svæðinu. Þrír aðilar skiluðu inn umsögnum.
Meirihluti umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkir óverulega breytingu á skilmálum í deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga með þeirri breytingu að gert skuli ráð fyrir gróðursvæði milli húsanna á lóðum nr 7 og 8 í þeim tilgangi að takmarka innsýn á milli húsanna. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Minnihluti umhverfis- og skipulagsnefndar situr hjá.
15.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Málsnúmer 202201109
Lögð er fram tillaga að breyttu skipulagi fyrir nýjar lóðir við Sandbakkaveg, sunnan Nettó. Unnið af EFLU verkfræðistofu, dagsett 02.05.2022.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna áfram að undirbúningi deiliskipulagstillögu fyrir fjölbýlishús á svæðinu með heimild/kröfu um að hluti 1. hæðar bygginganna verði verslunar- og þjónustuhúsnæði. Gera skal ráð fyrir þremur byggingum en falla frá þeirri austustu skv. framlagði tillögu.
16.
Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Mikligarður og Verðandi - breytingar á húsum
Málsnúmer 202201105
Breytingar á Miklagarði og Verðanda var grenndarkynnt með athugasemdarfresti frá 15. mars til 17. apríl. Gert er ráð fyrir að byggja við og endurnýja Miklagarð við Krosseyarveg 5 - 7, fyrirhugaðar breytingar gera ráð fyrir að heimilt verði að lækka landið framan við kjallara Miklagarðs að lóðarmörkum, að byggja nýtt hús í stað rústanna af Verðanda við Heppuveg 2B, og gera aðkomutorg fyrir Miklagarð og Heppuna á þeim hluta lóðarinnar Graðaloftið stóð á.Ein athugasemd barst og ein ábending um villu i texta.
Umhverfis- og skipulagsnefndar telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Starfsmanni falið að svara umsagnaraðilum í samræmi við umræður a fundinum. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
17.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Málsnúmer 202104021
Hafnarstjórn leggur fram tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi til forkynningar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillögu að breyttu deiliskipulagi skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga i samræmi við framlögð gögn og tillögur Hafnarstjórnar.
18.
Leiðarhöfði - Hönnunarsamkeppni
Málsnúmer 202104018
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitti Sveitarfélaginu Hornafirði veglegan styrk í mars 2021 til þess að halda hugmyndaleit fyrir framtíðarnýtingu Leiðarhöfða til þess að móta umgjörð um hugsanlega uppbyggingu, bæta aðstöðu og aðgengi til útivistar og auka útsýnis- og náttúruupplifun svæðisins jafnt íbúum sem gestum til yndisauka. Fimm teymi voru valin til þátttöku í hugmyndaleit og nú liggja úrslit fyrir. Það var tillagan ?Umhverfis Leiðarhöfða? sem bar sigur úr býtum, en þrjár arkítektastofur, Landmótun, Hjark og Sastudio mynduðu teymi um hana. Í áliti dómnefndar, segir m.a. að tillagan sé spennandi, vel útfærð og líkleg til þess að efla svæðið sem bæði áfangastað og útivistarsvæði. Einnig var hún talin uppfylla meginmarkmið hugmyndaleitarinnar sem er að efla Höfn sem ferðamannastað og búsetukost, með því að bjóða upp á einstakan áfangastað sem byggir á sérstöðu svæðisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að hefja undirbúning að breytingu á aðalskipulagi, gerð deiliskipulags og hönnunarvinnu til að útfæra tillöguna frekar.
19.
Breyting á deiliskipulagi, útbæ Höfn
Málsnúmer 202012081
Marina travel leggur fram tillögu að breytingu á deilsikipulagsskilmálum fyrir sex lóðir í Útbæ á Höfn fyrir hótelbyggingu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að ræða við umsækjanda og útfæra nánar tillögu að skipulagi í samræmi við umræður á fundinum.
20.
Umsókn um byggingarheimild - Hálsasker 2, tvö gestahús
Málsnúmer 202205053
Oddur Ari Sigurðsson og Katerina Sardicka sækja um byggingarheimild fyrir tvö gestahús á Hálsaskeri 2 í Öræfum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Skv. aðalskipulagi er svæðið á skógræktar- og landgræðslusvæði/landbúnaðarsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilað verði að byggja umrædd hús í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga án skipulagsgerðar. Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi þegar farið fram sbr. 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Nefndin beinir því til umsækjanda að verði um frekari uppbyggingu að ræða á svæðinu skuli vinna deiliskipulag. Málinu vísað til bæjarstjórnar.