Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

37. fundur
9. júní 2022 kl. 16:00 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson varaformaður
Níels Brimar Jónsson 1. varamaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Sveitarstjórnarkosningar 2022 kynning
Málsnúmer 202205124
Erindisbréf afhent og trúnaðaryfirlýsing undirrituð. Kynning á stjórnsýslureglum og fjármálum. Starfsemi á Umhverfis- og skipulagssviði kynnt ásamt viðeigandi lögum og reglum. Farið lauslega yfir skipulagsmál í vinnslu og önnur mál í vinnslu á sviðinu.
Lagt fram til kynningar.
2.
Úrgangsmálefni: 2022
Málsnúmer 202201005
Framlagt minnisblað um stöðu úrgangsmála í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.
3.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202001013
Umhverfis- og loftslagsstefna sveitarfélagsins Hornafjarðar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 7. apríl 2022. Hlutverk umhverfis- og loftlagsstefnu er að tryggja góð lífsgæði íbúa og innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun hjá Sveitarfélaginu. Áhersla er lögð á fjölbreytta og góða þjónustu, blómstrandi mannlíf, skilvirkan og ábyrgan rekstur ásamt öflugu atvinnulífi sem stuðlar að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Megin markmið stefnunnar er að íbúar þekki leiðir til þess að stuðla að bættri umhverfishegðun og draga úr áhrifum sínum á umhverfi og loftslag. Lögð verður áhersla á að allt samfélagið sé virkur þátttakandi í samtali, fræðslu og aðgerðum tengdum umhverfis- og loftslagsmálum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að leggja fram tillögur að aðgerðaráætlun á fundi nefndarinnar í ágúst.
4.
Umferðaröryggisáætlun
Málsnúmer 201709426
Umferðaröryggisáætlun var samþykkt í bæjarstjórn þann 11.apríl 2018. Markmið með gerð umferðaröryggisáætlunar er að auka vitund forráðamanna sveitarfélaga og íbúa um umferðaröryggi. Í umferðaröryggisáætluninni var leitast við að greina stöðu umferðaröryggis í sveitarfélaginu með gögnum um slys frá Samgöngustofu.Mikilvægt er að endurskoða umferðaröryggisáætlunina reglulega með tilliti til breytinga á umferð og þróun ökutækja.Umhverfisnefnd leggur til að umferðarhraði verið lækkaður í 30 km. kl.st. í íbúagötum, og verði sú aðgerð unnin í áföngum. Umferðaröryggisáætlun er lifandi plagg sem verður endurskoðuð með tilliti til þróunar í umferðarmálum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að leggja fram tillögur að tímaáætlun vegna endurskoðunar á aðgerðaráætlun umferðaröryggisáætlunar og drög að mati á þörf á endurskoðun áætlunarinnar sjálfrar.
5.
Aðalskipulag 2012-2030
Málsnúmer 202206027
Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 var samþykkt þann 18.september 2014. Í aðalskipulagi er sett fram stefna sveitarstjórnar um þróun sveitarfélagsins varðandi landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál.Í aðalskipulagi er lagður grundvöllur fyrir gerð deiliskipulags varðandi landnotkun, takmarkanir á landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi og byggðamynstur, þ.m.t. þéttleika byggðar. Í aðalskipulagi eða breytingu á því er heimilt að setja fram nánari stefnu, svo sem um nýbyggingarsvæði eða endurbyggingarsvæði í eldri byggð eða um einstök viðfangsefni.http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?countyno=7708
Gerðar hafa verið yfir 30 breytingar á gildandi aðalskipulagi sem unnið var á árunum 2007 til 2014 og því ljóst að hluti þeirra forsendna sem stefnumótun skipulagsins byggir á er brostin. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna minnisblað um endurskoðun aðalskipulags og gera mat á kostnaði við endurskoðunina.
6.
Deiliskipulag - Breiðabólsstaður Hali
Málsnúmer 202003097
Deiliskipulag Breiðabólstaðatorfu var auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 26. janúar með athugasemdarfresti til 9. mars 2022.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Vegagerðinni, HAUST og Umhverfisstofnun. Engar athugasemdir bárust. Á fundi nefndarinnar þann 4. apríl sl. var umhverfis- og skipulagsstjóra falið að vinna málið áfram í samráði við landeigendur og umsagnaraðila. Vegagerðin hefur sent endurnýjaða umsögn og gögn hafa verið uppfærð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deilskipulagstillöguna með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu í samræmi við 41. grein skipulagslaga og felur starfsmanni að svara umsagnaraðilum og senda Skipulagsstofnun deiliskipulagið til athugunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi Hafnarbraut 4-6
Málsnúmer 202111114
Breyting á deiliskipulagi Hafnarvík Heppu var auglýst frá og með 17. mars til 17. maí 2022.Byggingarreitir lóða við Hafnarbraut 4 og 6 stækka og verða samtengdir. Heimild verður fyrir þriggja hæða byggingu og kjallara á lóð nr. 6 og allt að tveggja hæða viðbyggingu og kjallara á hluta á lóð nr. 4. Gert er ráð fyrir um 20 bílastæðum í kjallara. Umsagnir bárust frá eigendum Hafnarbrautar 8, Hafnarbrautar 10 og Hafnarbrautar 3 og frá Jóhannesi Þórðarsyni, Ólafi J. Engilbertssyni og Pétri H. Ármannssyni. Framkvæmdaaðili hefur lagt fram endurbætt skuggavarp.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að láta gera breytingar á gögnum í samræmi við svör nefndarinnar. Auk þess verði lóðamörk lagfærð til norðurs þannig að göngustígur sveitarfélagsins verði utan lóðar.
8.
Breyting á deiliskipulagi - Deiliskipulag austan Víkurbrautar, svæði S3
Málsnúmer 202205075
Jón Malmquist Guðmundsson óskar eftir breytingum á skilmálum deiliskipulags austan Víkurbrautar varðandi lóð Víkurbraut 34. Um er að ræða aukning byggingarmagns lóðar úr 300 m² í 360 m² án breytingar á byggingarreit og breytingu á notkun íbúða úr "þjónustuíbúðir aldraða" í "íbúðir aldraða".
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn heimili að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Byggingarleyfisumsókn - Hraunhóll 1, einbýlishús
Málsnúmer 202204003
Verkfærni ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Hraunhóll 1. Um er að ræða u.þ.b. 280 fm hús allt að 4,5 m að hæð samkvæmt framlögðum teikningum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Lóð er staðsett á ÍB10 svæði skv. aðalskipulagi sveitarfélagsins og er því framkvæmd í samræmi við aðalskipulag. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti að grenndarkynna skuli framkvæmd samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Frestur til að skila inn athugasemdum rann út þann 27.05.2022. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að heimila byggingu einbýlishúss á lóðinni skv. framlögðum teikningum án deiliskipulagsgerðar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar á svæðinu.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Umsókn um byggingarheimild - Miðtún 24, viðbygging
Málsnúmer 202203032
Einar Jóhann Sigurðsson sækir um byggingarheimild til að byggja 59,2 m² bílskúr á lóð Miðtún 24 skv. framlögðum teikningum. Ekki er til gildandi deiliskipulagi fyrir svæði, en skv. aðalskipulagi er lóð á íbúðarsvæði ÍB9. Mál hefur þegar verið tekið til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkti grenndarkynningu og byggingaráform á 255. fundi þann 16.10.2018, en skv. 4. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 skal grenndarkynning fara fram að nýju áður en leyfi er veitt, þar sem byggingar- eða framkvæmdaleyfi á grundvelli grenndarkynningar hafi ekki verið gefið út innan eins árs frá afgreiðslu bæjarstjórnar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti að grenndarkynna skuli framkvæmd samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Frestur til að skila inn athugasemdum rann út þann 27.05.2022. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að heimila byggingu bílskúrs á lóðinni skv. framlögðum teikningum án deiliskipulagsgerðar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar á svæðinu.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Sandbakki 3 - framlenging á þaki yfir sorptunnuskýli
Málsnúmer 202205133
Fyrirspurn frá húsfélagi Sandbakka 3. Óskað er heimildar fyrir framlengingu á þaki yfir sorptunnuskýli og til klæðningar þess með glær báruplast. Gildandi deiliskipulag miðsvæðis nær ekki til lóða að Sandbakka 1 og 3. Samþykki lóðarhafa lóða nr. 2, 5, 7 og formanns húsfélags Sandbakka 1 eru til staðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að framlengja þak yfir sorptunnuskýli án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44.gr. skipulagslaga.
Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi þegar farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. laganna. Engar athugasemdir bárust.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
12.
Umsókn um byggingarheimild - Skjólshólar, gestahús
Málsnúmer 202206030
Ívar Smári Reynisson sækir um byggingarheimild fyrir gestahús á Skjólshólum. Um er að ræða tvö samtengd hús, samtals 61 m² að stærð samkvæmt framlögðum teikningum. Samkvæmt aðalskipulagi er umrædd lóð á verslunar- og þjónustu svæði VÞ42 þar sem heimilt er fyrir gistingu fyrir allt að 60 gesti. Þann 08.02.2018 samþykkti Bæjarstjórn nýtt deiliskipulag fyrir Skjólshóla og vísaði því í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en skipulagið hefur ekki öðlast gildi. Samkvæmt þessu deiliskipulagi eru hús sem umsóknin varðar innan byggingarreits B2 þar sem hægt er að reisa tvö hús, 45m² að stærð hvort um sig.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir athugasemdir við að framkvæmdir hafi verið hafnar áður en leyfi hafi verið veitt. Að því sögðu leggur Umhverfis- og skipulagsnefnd til að bæjarstjórn heimili að veita megi byggingarheimild án deiliskipulagsgerðar fyrir framkvæmd þar sem hún er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar, sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur einnig til að fallið sé frá grenndarkynningu þar sem framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.