Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

4. fundur
4. september 2019 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Finnur Smári Torfason varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Jörgína Elínbjörg Jónsdóttir aðalmaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Róbertsson skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Aðalskipulagsbreyting: Þétting byggðar á Höfn
Málsnúmer 201809084
Tillaga að aðalskipulagsbreytingu Þétting byggðar í Innbæ tekin fyrir. Breytingin felur í sér að opnu svæði verði breytt í íbúðarsvæði við Silfurbraut og Hvannabraut.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt og send til yfirferðar Skipulagsstofnunar skv. 1. og 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Þriðja framboðið bendir á að sveitarfélagið hafi til reiðu framtíðar byggingarsvæði íbúðabyggðar og hvetur til að hafin verði skipulagsvinna.
2.
Deiliskipulag Þorgeirsstaðir í Lóni
Málsnúmer 201908028
Ósk um að hefja vinnu við deiliskipulag við Þorgeirsstaði í Lóni tekin fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimiluð sé vinna við deiliskipulag í samræmi við 40. til 42. gr. skipulagslaga. Ákvörðun vísað til bæjarstjórnar.
3.
Hrollaugsstaðir -gámavöllur-lóðarréttindi
Málsnúmer 201709383
Skipulagsuppdráttur yfir Hrollaugsstaði frá árinu 1985 lagður fram.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að unnið sé nýtt deiliskipulag sem nær yfir svæðið í samræmi við 40. til 42. gr. skipulagslaga. Ákvörðun vísað til bæjarstjórnar.
4.
Framkvæmdaleyfisumsókn, virkjun í Birnudal
Málsnúmer 201908039
Framkvæmdaleyfisumsókn virkjun í Birnudal tekin fyrir. Framkvæmdin felur í sér að reisa vatnsaflsvirkjun í Birnudal í landi Kálfafellsstaðar í Suðursveit. Virkja á ána Birná sem á upptök sín innst í Birnudal og liggur eftir miðjum dalnum. Birnudalur er lítill dalur innarlega í Staðardal vestanverðum. Birná er dragá og vatnsvið hennar er u.þ.b. 4km². Framkvæmdin felur einnig í sér byggingu stöðvarhúss ásamt vegslóðum tengdum framkvæmdinni. Samkvæmt viðauka 3.23 í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 fellur framkvæmdin í umhverfismatsflokk C og er því ekki háð umhverfismati.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að gefið verði út framkvæmdaleyfi skv. 15. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Málsnúmer 201709224
Niðurstöður íbúakönnunar vegna uppbyggingar grænna svæða og göngu- og reiðhjólastíga á Höfn lagðar fram.
Umhverfis- og Skipulagsnefnd lýsir yfir ánægju með þátttöku íbúa í könnuninni. Nefndin vill einnig færa þakkir til þeirra sem komu að gerð könnunar. Niðurstöðurnar munu nýtast í skipulagsvinnu og áætlunargerðar innan Hafnar. Nefndin leggur til að könnunin verði kynnt á íbúafundi á haustmánuðum.
6.
Ábending vegna gönguleiðar frá Hlíðartúni að Vesturbraut
Málsnúmer 201908029
Ábending vegna hjóla- og gönguleiðar frá Hlíðartúni að Vesturbraut lögð fram. Í ábendingunni er bent á hættuna sem getur skapast þegar hjólandi- og gangandi vegfarendur ferðast yfir sameiginlegt bílaplan N1 og Höfn-Inn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
7.
Áskorun vegna hamfarahlýnunar
Málsnúmer 201908043
Áskorun Samtaka Grænkera á íslandi vegna hamfarahlýnunar lögð fram.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar samtökunum fyrir erindið.
8.
Byggingaráform, raðhús að Borgartúni 1
Málsnúmer 1902018
Áform um byggingu raðhúss að Borgartúni 1 tekin fyrir. Áform eru að byggja 363 m² þriggja íbúða raðhús á lóðinni. Samkvæmt skipulagsskilmálum er heimilt að byggja allt að 350 m² raðhús á lóðinni. Grenndarkynning hefur farið fram skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga en engar athugasemdir bárust.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Umhverfisviðurkenning 2019
Málsnúmer 201907011
Lagt fram til kynningar.
Frestað til næsta fundar.
10.
Umsókn um lóð Krosseyjarvegur 21-23
Málsnúmer 201908026
Umsókn um lóða að Krosseyjarvegi 21-23 tekin fyrir. Bæjarráð vísaði umsókninni til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd og óskaði bæjarráð þess að hafin yrði vinna við deiliskipulag á svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimiluð sé vinna við deiliskipulag í samræmi við 40. til 42. gr. skipulagslaga. Ákvörðun vísað til bæjarstjórnar.