Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

45. fundur
1. nóvember 2022 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Finnur Smári Torfason 1. varamaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Bartek Andresson Kass
Fundargerð ritaði:
Stefán Aspar Stefánsson Verkefnastjóri umhverfismála
Dagskrá
1.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar
Málsnúmer 202101107
Framlögð drög að breyttri gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar 2023.
Tillaga að nýrri gjaldskrá lögð fram. Málinu vísað til umræðu í bæjarráði.
2.
Gjaldskrá fyrir söfnunarstöð
Málsnúmer 201804015
Framlögð drög að breytingum á gjaldskrá fyrir móttökustöð sorps á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Tillaga að nýrri gjaldskrá lögð fram. Málinu vísað til umræðu í bæjarráði.
3.
Hraðavarnarskilti - Umferðaröryggi í sveitarfélaginu
Málsnúmer 201608014
Framlagt minnisblað um aksturshraða á Hafnarbraut, Kirkjubraut og Víkurbraut á Höfn og í gegnum Freysnes.
Minnisblað lagt fram til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar samantektina og leggur til að meðfylgjandi gögn verði höfð til hliðsjónar við endurskoðun umferðaröryggisáætlunar.
4.
Ársfundur náttúruverndarnefnda
Málsnúmer 202210095
Opið er fyrir skráningar á ársfund náttúruverndarnefnda sem fram fer í Grindavík þann 10. nóvember 2022. Skráning á fundinn er til 6. nóvember.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur starfsmenn og nefndarmenn til þess að fylgjast með streymi fundarins.
5.
Umsókn um byggingarheimild - Miðtún 2 - sólskáli
Málsnúmer 202206068
Kristjón Elvar Elvarsson sækir um leyfi til að setja kaldan sólskála við hús á Miðtúni 2. Framleiðandi er PGV Framtíðarform ehf. Skálinn verður um 13,5 m², um 2,5m að hæð og fylgir honum yfirlýsing NMÍ um nothæfi fyrir íslenskar aðstæður. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.Erindið var grenndarkynnt
Grenndarkynning hefur farið fram skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki að heimilt verði að gefa út leyfi án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Fyrirspurn - Vesturbraut 1, stækkun á þjónustustöð N1
Málsnúmer 202207041
Endurskoðið ósk frá N1 um stækkun á lóð þeirra að Vesturbraut 1
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir frekari gögnum. Málinu frestað.
7.
Umsókn um stækkun lóðarinnar að Dalbraut 4
Málsnúmer 201102046
Bryndís Bjarnason óskar eftir samþykki fyrir stækkun á lóð Dalbraut 4. Um er að ræða stækkun um 90 m² til austurs samkvæmt meðfylgjandi teikningu. Erindi var tekið fyrir fund umhverfis og skipulagsnefndar í 2011 þar sem nefndin mældi með því að umsækjanda verði veittur afnotaréttur af stækkun. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd mælir með að lóð að Dalbraut 4 verði stækkuð í samræmi við ósk umsækjanda. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem stækkun á lóð varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda skv. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Málsnúmer 202201109
Lögð er fram tillaga að breyttu skipulagi fyrir nýjar lóðir við Sandbakkaveg, sunnan Nettó. Unnið af EFLU verkfræðistofu, dagsett 18.10.2022.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir frekari gögnum. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
9.
Leikskólinn á Höfn, austan Víkurbrautar - S3 - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202208016
Breyting á deiliskipulagi austan Víkurbrautar - S3, sem tekur til lóðar Sjónarhóls að Lönguhólum 47 var auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdarfrestur var frá 14. september til 26. október 2022.Engar athugasemdir né umsagnir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Landeignaskrá - Sauðanes 2 - stofnun nýrrar landeignar og samruni
Málsnúmer 202210089
Valdimar Ingólfsson og Aðalheiður Fanney Björnsdóttir óska eftir samþykki á stofnun nýrrar landeignar úr landi Sauðanes 2 (L230375). Um er að ræða 1,5 ha spildu sem fyrirhuguð er að sameina Sauðanesi (L159512). Jafnramt er óskað eftir að landeign Sauðanes 2A (L234017) verði sameinuð Sauðanesi 2 (L230375).
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun og samruna landeigna, enda samrýmist þau skipulagsáætlun, sbr. 6.gr. jarðalaga nr. 81/2004. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Skipulag íbúðarsvæðis
Málsnúmer 202003026
Sveitarfélagið áformar uppbyggingu nýs íbúðasvæðis á Höfn en ekkert framboð á íbúðalóðum innan þéttbýlis Hafnar. Fyrirhugað er að hefja vinnu við deiliskipulag en tvö íbúðasvæði eru skilgreind sem íbúðasvæði á Höfn skv. aðalskipulagi, ÍB2 og ÍB5.
Tekið fyrir minnisblað, unnið af Alta, þar sem farið er yfir möguleika á frekari uppbyggingu íbúðabyggðar á Höfn. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að unnið verði deiliskipulag fyrir íbúðabyggð á ÍB5 í samræmi við 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að samhliða þeirri vinnu fari fram breyting á aðalskipulagi.
Samhliða þessari vinnu fari fram greining á aðliggjandi svæðum ásamt heildarendurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.