Umhverfis- og skipulagsnefnd
52. fundur
20. febrúar 2023
kl.
16:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Stefán Aspar Stefánsson
verkefnastjóri
Bartek Andresson Kass
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski
byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfisviðurkenning 2022
Framlagt minnisblað um tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2022. Ný tilnefning barst eftir auglýstan frest.
Tekin fyrir tilnefning sem barst eftir auglýstan frest. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir viðurkenningarhafa á ný enda hafi það ekki áhrif á fyrra val nefndarinnar.
Viðurkenningar verða afhentar á sama tíma og menningarverðlaun sveitarfélagsins.
Viðurkenningar verða afhentar á sama tíma og menningarverðlaun sveitarfélagsins.
2.
Umsókn um byggingarheimild - Mánabraut 2, stækkun, breyting inni og úti
Jakob Örn Guðlaugsson og Sædís Ösp Valdemarsdóttir sækja um byggingarheimild fyrir breytingar á húsi að Mánabraut 2 samkvæmt framlögðum teikningum. Um er að ræða stækkun á bílskúr, nýja tengibyggingu, stækkun á húsi, breytingar á þaki, breytingar á gluggum og hurðum, breytingar á innra skipulagi og nýja klæðningu bæði á þaki og veggjum. Lóð er inn á íbúðarsvæði ÍB9 samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins, en ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæði.Erindið var grenndarkynnt frá 11. janúar með athugasemdarfresti til 10. febrúar 2023.Engin athugasemd barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að heimilt verði að veita byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar, sbr. 44.gr. skipulagslaga 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Bogaslóð 8, bílskúr
Þröstur Jóhannsson vék af fundi undir þessum lið.Friðbjörn Garðarsson óskar eftir álit nefndarinnar vegna fyrirspurnar sínar um bílskúr á lóð Bogaslóð 8. Bílskúrinn stendur stakur á óskiptri lóð ásamt einbýlishúsi, en skúrinn og einbýlishúsið eru ekki í eigu sömu aðila.Fyrirhuguð væri að breyta skúrnum í íverustað yfir sumarmánuðina. Ekki er gert ráð fyrir miklu raski nema þegar á framkvæmdum stendur og eftir framkvæmdatíma verður ekki gert ráð fyrir miklum hávaða eða umferð, mengunarlykt eða ónæði, enda mun eignin sjálfsagt mest nýtt yfir hásumarið og óreglulega utan sumartíma. Spurt er hvort fyrirhuguð breyting á notkun bílskúrinns samræmist skilmálum aðalskipulags og hvort þörf sé á grenndarkynningu og jafnframt hvort fyrirhugaðar breytingar krefjist þess að byggingarstjóri sé skráður eða teikningum skilað.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vill benda á að ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæði og því gilda ákvæði í 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin hefur almennt talið að fjölgun íbúðareininga innan lóðar getur haft áhrif á nágranna og slíkar umsóknir ber að grenndarkynna.
Byggingarfulltrúa falið að svara öðrum hluta erindis sem varðar byggingarstjóra og teikningar.
Byggingarfulltrúa falið að svara öðrum hluta erindis sem varðar byggingarstjóra og teikningar.
4.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Hafnarbraut 19, stofnun nýrrar lóðar
Jökull Fjárfestingar ehf. lóðarhafi lóðar Hafnarbraut 19 vil kanna möguleikann á að stofna nýja lóð út frá L159651. Erindinu fylgir skjal sem sýnir hvernig lóðinni yrði hugsanleg skipt upp.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vill benda á að ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæði og því gilda ákvæði í 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin hefur almennt talið að fjölgun íbúðareigninga innan lóðar getur haft áhrif á nágranna og slíkar umsóknir ber að grenndarkynna.
Að því sögðu tekur nefndin jákvætt í erindi og óskar eftir tillögum frá lóðarhafa um nýtingu lóðarinnar.
Að því sögðu tekur nefndin jákvætt í erindi og óskar eftir tillögum frá lóðarhafa um nýtingu lóðarinnar.
5.
Umsókn um lóð Hagatún 16
Umhverfis- og skipulagsnefnd var falið að ganga formlega frá lóðarmörkum lóðar Hagatún 16 og starfsmönnum falið að kynna afmörkun lóðarinnar fyrir lóðarhöfum aðliggjandi lóða. Erindið var grenndarkynnt frá 11. janúar með athugasemdarfresti til 10. febrúar 2023.Ein athugasemd barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytt lóðamörk og felur stafsmönnum að ganga frá breyttum lóðarleigusamningi til þinglýsingar. Starfsmanni falið að svara athugasemd. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Landeignaskrá: Hoffell - landskipti
Úlfar Helgason, Andri Már Jónsson og Benedikt Jónsson, eigendur Hoffells 1, og Þrúðmar Sigurður Þrúðmarsson, eigandi Hoffells 2 og Miðfells og Ingibjörg Ævar Steinsdóttir, eigandi Miðfells óska eftir því við bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar að staðfest verði landskipti í landi sínu að Hoffelli í samærmi við meðfylgjandi lóðarblöð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptagerð, enda samræmist hún skipulagsáætlun. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Lagðar eru fram tillögur að breyttu skipulagi fyrir nýjar lóðir við Sandbakkaveg, sunnan Nettó. Tillagan hefur verið unnin áfram í samvinnu við umhverfis- og skipulagsstjóra frá fundi 12. desember 2022 og 21. janúar 2023.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að vinna áfram með tillögu 4.
8.
Vegir að fjölmennum ferðamannastöðum
Gunnlaugur Róbertsson og Helga Árnadóttir véku af fundi undir þessum lið. Lögð er fram tillaga um vegi að fjölförnum ferðamannastöðum í sveitarfélaginu sem óskað er eftir að verði á forræði Vegagerðarinnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að umhverfis- og skipulagsstjóri í samráði við Vatnajökulsþjóðgarð, útbúi umsókn til Vegagerðarinnar um að þeir taki yfir vegi að fjölförnum ferðamannastöðum í samræmi við framlagða uppdrætti.
9.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - skógræktaráform í landi Selbakka
Sótt er um framkvæmdarleyfi fyrir skógrækt í landi Selbakka (L232272) á Mýrum. Markmið verkefnisins er kolefnisbinding með plöntun stafafuru, alaskaaspar ásamt víðitegundum í um 100 ha lands ofan þjóðvegar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að óska eftir umsögn Vatnajökulsþjóðgarðs vegna nálægðar við þjóðgarðsmörk, Landsnets vegna háspennulínu og Náttúrustofu Suðausturlands vegna skógræktar innan hverfisverndarsvæðis sem er með það að markmiði að tryggja eðlilega framvindu gróðurs og vistkerfis.