Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

54. fundur
20. mars 2023 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Nytjasmiðjan-regnhlíf hringrásarhagkerfis í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202108014
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir og Helga Árnadóttir frá Umhverfis Hornafjörður komu á fundinn og kynntu fræðsluferð hópsins til Danmerkur í nóvember sl. þar sem ýmis áhugaverð verkefni tengd hringrásarhagkerfinu voru skoðuð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og hvetur íbúa til að koma í Nýheima á föstudaginn n.k. kl 12 þar sem verkefnið verður kynnt.
2.
Fyrirhugað sorpútboð 2023
Málsnúmer 202108112
Framlögð drög að útboðsgögnum vegna sorphirðu heimila og stofnana, reksturs söfnunarstöðvar og reksturs urðunarstaðar og jarðgerð matarleifa.
Kynnt fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd. Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
3.
Urðunarstaður Grænt bókhald 2022
Málsnúmer 202302024
Framlögð drög að grænu bókhaldi fyrir urðunarstaðinn í Lóni fyrir árið 2022.
Kynnt fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd. Nefndin fagnar minnkun á urðun á milli ára. Starfsmanni falið að vinna málið áfram. Málinu vísað til bæjarráðs.
4.
Erindi vegna refaveiða - Hlíð í Lóni
Málsnúmer 202303065
Framlagt erindi landeigenda Hlíðar í Lóni vegna refaveiða.
Starfsmanni falið að vinna málið áfram og svara erindinu í samræmi við reglur um refa- og minkaveiði í sveitarfélaginu Hornafirði.
5.
Breyting á aðalskipulagi - Leiðarhöfði
Málsnúmer 202205085
Lögð fram tillaga að skipulagslýsingu fyrir breytingu á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag á Leiðarhöfða í samræmi við tillögu úr hönnunarsamkeppðni um uppbyggingu á Leiðarhöfða. Hulda Jónsdóttir hjá Hjark arkitektum, Tiago Sá hjá Sastudio ogJóhann Sindri Pétursson hjá Landmótun, höfundar vinningstillögu mættu á fundinn og kynntu tillöguna fyrir nefndarmönnum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skipulagslýsing verði kynnt skv. 30.gr og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Deiliskipulag Háhóll - Dilksnes
Málsnúmer 201904013
Deiliskipulagstillaga fyrir Háhól-Dilksnes var í kynningu frá 3. nóvember til 15. desember 2022. Umsagnir bárust frá HAUST, Skipulagsstofnun, Vegagerðinni, Náttúrfræðustofnun Íslands og Minjastofnun Íslands. Skipulagssvæðið er tvískipt og nær yfir um 37 ha. Svæðið er skammt norðan Hafnar og tekur yfir land Dilksness 1 og 2, Hjarðarness, Háhóls, Garðshorns og Hólaness. Skipulagið var sent til yfirferðar til Skipulagsstofnunar og óskað eftir heimild til að birta staðfestingu þess í B-deild Stjórnartíðinda. Í bréfi Skipulagsstofnunar dags. 27. janúar 2023 eru gerðar athugasemdir sem voru lagðar fyrir nefndina 6. febrúar. Starfsmanni falið að fara yfir innkomnar athugasemdir með skipulagsráðgjafa málsaðila. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir viðbrögðum þeirra við athugasemdum sem bárust. Starfsmanni falið að fara yfir innkomnar athugasemdir með skipulagsráðgjafa málsaðila. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskaði eftir viðbrögðum þeirra við athugasemdum sem bárust.
Bygging nýrra íbúðarhúsa stuðlar að eflingu samfélags og mögulega atvinnulífs í dreifbýli. Ný íbúðarhús eru nauðsynleg til að kynslóðaskipti á bújörðum séu möguleg. Íbúðarhús nýtast fyrir starfsfólk sem starfar á jörðunum við landbúnað, í ferðaþjónustu, garðyrkju eða í steypustöðinni. Þau íbúðarhús sem gert er ráð fyrir að byggja eru staðsett á þurru landi og hæðarkollum sem standa aðeins hærra í landinu. Aðkomuvegur að lóðum 1 og 2 hefur verið færður frá fyrstu kynningu deiliskipulagsins til þess a leitast við að fara um þurrara svæði. Almennt er skortur á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu, bæði í dreifbýli og þéttbýli og er uppbygging á svæðinu þáttur í að tryggja nægt íbúðarhúsnæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki deiliskipulag Háhóls - Dilksness á ný skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Útbær Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202012081
Deiliskipulag fyrir um 13.000 m2 hótel í Útbæ var samþykkt í bæjarstjórn þann 25. október 2022. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við skipulagið við yfirferð og eru því lagfærð gögn lögð fram.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki á ný tillögu að breytingu á deiliskipulagi Útbæ á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Breyting á deiliskipulagi - Hafnarsvæði við Krossey
Málsnúmer 202209031
Skinney-Þinganes hf. óskar eftir breytingu á gildandi skilmálum deiliskipulags Hafnarsvæði við Krossey fyrir reit á Krosseyjarvegi 2 austan við fiskvinnsluhús. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir 10 metra mænishæð, en óskar er eftir að mænishæð verði færð í 17 metra. Tillaga að skipulagi var auglýst 27. janúar með athugasemdarfresti til 10. mars 2023.Engin athugasemd barst. Umsagnir frá Minjastofnun og Vegagerðinni bárust.
Starfsmanni falið að bæta inn í tillöguna kvöð um gegnumakstur norðan við fiskvinnsluhúsin um Krosseyjarveg.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðisins við Krossey skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
9.
Kyljuholt á Mýrum - Deiliskipulag
Málsnúmer 202209021
Tillaga að deiliskipulagi Kyljuholts á Mýrum lagt fram.
Starfsmanni falið að láta útbúa óverulega breytingu á aðalskipulagi þar sem íbúðum á ÍB12 er fjölgað úr 15-20 í 30.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að kynna tillögunina í samræmi við 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Málsnúmer 202201109
Lögð er fram tillaga að breyttu skipulagi fyrir nýjar lóðir við Sandbakkaveg, sunnan Nettó.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að láta gera lagfæringar á tillögunni í samræmi við umræður á fundinum og kynna tillögunina í samræmi við 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Álaleira 6, björgunarmiðstöð, fyrirspurnaruppdrættir
Málsnúmer 202303027
Erindi dagsett 6. mars 2023 þar sem Finnur Smári Torfason formaður Björgunarfélags Hornafjarðar óskar eftir afstöðu sveitarfélagsins við því að byggja björgunarmiðstöð við Sæbraut í samræmi við framlagða vinnsluteikningu.
Fyrirhuguð staðsetning er í samræmi við aðalskipulag þar sem svæðið er skilgreint sem athafnasvæði. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að grenndarkynna áformin og óskar eftir umsögn Vegagerðarinnar og Minjastofnunar.
12.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - skógræktaráform í landi Selbakka
Málsnúmer 202301053
Gunnlaugur Róbertsson og Helga Árnadóttir viku af fundi undir þessum lið. Sótt er um framkvæmdarleyfi fyrir skógrækt í landi Selbakka (L232272) á Mýrum. Markmið verkefnisins er kolefnisbinding með plöntun stafafuru, alaskaaspar ásamt víðitegundum í um 100 ha lands ofan þjóðvegar. Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 20. febrúar 2023 var bókað að óska ætti eftir umsögnum Vantajökulsþjóðgarðs, Landsnets og Náttúrustofu Suðausturlands.
Athugasemdir bárust þar sem fram kemur að fyrirhuguð skógrækt gengur bæði inná hverfisverndarsvæði og inn fyrir mörk Vatnajökulsþjóðgarðs. Áætlað er að nota stafafuru sem er talin ágeng og óásættanlegt að nota hana innan hverfisverndar og þjóðgarðs. Í innkomnum umsögnum eru færð ítarlegri rök gegn skógrækt á svæðinu. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að leita viðbragða málsaðila.
13.
Strandvarnir við Jökulsárlón - framkvæmdarleyfi
Málsnúmer 202302093
Gunnlaugur Róbertsson og Helga Árnadóttir viku af fundi undir þessum lið. Erindi dagsett 27. febrúar 2023 þar sem Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi vegna strandvarna við þjóðveg austan brúar yfir Jökulsá á Breiðamerkusandi.Samhliða viðhaldsframkvæmdum á þröskuldi í árfarvegi Jökulsár á Breiðamerkusandi hefur Vegagerðin í hyggju að rofverja þjóðveginn þar sem ágangur sjávar er hvað mestur og næst vegi. Efnisþörf er talin vera um 7000-8000 m3 sem tekið yrði úr námu E-63, í Vatnajökulsþjóðgarði. Er hér um bráða- og skammtímaaðgerð að ræða þar til fjármagn og leyfi fæst til færslu vegar ofar í landið.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Leggja þarf fram fyrirspurn um matsskyldu til Skipulagsstofnunar og sveitarfélagið getur afgreitt framkvæmdaleyfi þegar álit hennar liggur fyrir. Starfsmanni falið að afla umsagna um framkvæmdina.