Umhverfis- og skipulagsnefnd
57. fundur
2. maí 2023
kl.
16:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Skúli Ingibergur Þórarinsson
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Deiliskipulag Þorgeirsstaðir í Lóni
Deiliskipulag Þorgeirsstaða í Lóni er hér með tekið fyrir að nýju þar sem deiliskipulagsferli frá 2020 lauk ekki innan þess tímaramma sem skipulagslög setja. Deiliskipulagið nær til hluta jarðanna Þorgeirsstaða (landnr. 159402) og Þorgeirsstaða 3 (landnr. 223144) í Lóni í Sveitarfélaginu Hornafirði. Skipulagssvæðið er um 12 ha að stærð og er í þrennu lagi. Á Þorgeirsstöðum er íbúðarhús og fjárhús en einnig hefur verið rekin þar ferðaþjónusta með gistingu fyrir 7 gesti. Virkjun er í Þorgeirsstaðaá. Fyrirhuguð er frekari uppbygging á ferðaþjónustustarfsemi, m.a. að breyta fjárhúsum í gistingu og vera með gistingu fyrir allt að 60 gesti.Skipulagið var auglýst frá 17. mars með athugasemdarfresti til 28. apríl 2023. Engin athugasemd barst en umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki deiliskipulag Þorgeirsstaða í Lóni skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Deiliskipulag - Reynivellir - Efribær
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 10. febrúar 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Reynivalla, Efribæjar, í Suðursveit í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið tekur til núverandi bæjartorfu og m.a. eru afmarkaðar lóðir og byggingarreitir fyrir frístundahús, smáhýsi og skemmu fyrir búfé og vinnuvélar. Gerð er grein fyrir fjölda gesta á svæðinu í nýjum og núverandi húsum og á svæði fyrir stöðuhýsi. Tillagan var auglýst frá 24. febrúar með athugasemdarfresti til 11. apríl 2022. 5 umsagnir bárust. Eftir auglýsingu var gerð fornleifaskráning á svæðinu, skipulagsgögnum breytt í samræmi við skráningu og óskað var eftir nýrri umsögn Minjastofnunar Íslands.
Málinu frestað þar sem umsögn MÍ hefur ekki borist.
3.
Stafafellsfjöll, lóð 11 - Breyting á deiliskipulagi
Erindi dagsett 19. apríl 2023 þar sem Sveinbjörn Imsland óskar eftir að gerð verði breyting á Deiliskipulagi Stafafellsfjalla, þar sem byggingarreitur verður stækkaður og byggingarmagn aukið á lóð Stafafellsfjalla 11.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir gögnum og rökstuðningi fyrir ósk um breytingu.
4.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 24. apríl 2023 nýtt deiliskipulag skóla- og íþróttasvæðis á miðsvæði Hafnar í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Borist hafa drög að umferðaröryggisrýni frá Vegagerðinni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir umferðaröryggisrýnina og telur ekki tilefni til að bregðast frekar við henni í deiliskipulaginu en felur starfsmanni að svara Vegagerðinni.
5.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Skaftafell 3, svalir
Þingvangur ehf kt. 671106-0750 er framkvæmdaaðili vegna byggingu 35 gestahúsa á lóð Skaftafells III og IV. Eigandi lóðar og húsanna er Arctic Circle hotels ehf kt. 470922-1170. Meðfylgjandi eru fyrstu drög að umræddum húsum og er óskað eftir afstöðu skipulagsnefndar á byggingu svala af svefnlofti, á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Óskað er eftir að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3.mgr. 43.gr laganna. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Stækkun á bílastæði
Óska eftir leyfi til að bæta við bílastæði við Bjarnahól 3. Aðeins 3 bílastæði eru við eignina. Við þetta fengi hvor íbúð 2 bílastæði.
Nefndin óskar eftir afstöðu annarra eigenda að Bjarnahóli 3-5 til erindisins.
7.
Byggingarleyfisumsókn - Bogaslóð 8, breyting á notkun og stækkun
Sótt er um leyfi til að breyta núverandi bílskúr á lóð Bogaslóð 8 í íbúðarrými samkvæmt framlögðum teikningum. Hæð mannvirkis verður frá ca. 2,80m til 3,33m og grunnflatarmál ca. 28fm. Umsækjandi hefur þegar sent fyrirspurn til umhverfis og skipulagsnefndar þar sem þann 20.02.2023 var bókað eftirfarandi "Umhverfis- og skipulagsnefnd vill benda á að ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæði og því gilda ákvæði í 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin hefur almennt talið að fjölgun íbúðareininga innan lóðar getur haft áhrif á nágranna og slíkar umsóknir ber að grenndarkynna. Byggingarfulltrúa falið að svara öðrum hluta erindis sem varðar byggingarstjóra og teikningar."
Þröstur Jóhannsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að óska eftir frekari gögnum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að óska eftir frekari gögnum.
8.
Umsókn um byggingarheimild - Hnappavellir 1, starfsmannabúðir
Þingvangur ehf. sækir um heimild til að staðsetja starfsmannabúðir að Hnappavöllum 1 vegna framkvæmda sem fyrirhugaðar eru í Skaftafelli 3A til 3C. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði. Samþykki landeiganda liggur fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna erindi íbúum nærliggjandi lóða, skv. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga.
9.
Umsókn um byggingarheimild - Sel 1, reiðhöll
Öræfahestar ehf. sækir um byggingarheimild til framkvæmdar á lóð Sel 1 í Öræfum. Fyrirhuguð er að reisa reiðhöll skv. framlögðum teikningum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi þegar farið fram samkvæmt 2. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Landeignaskrá Hoffell 3 - stonun landeignar úr Hoffell 2 og Miðfell
Ingibjörg Ævar Steinsdóttir og Þrúðmar Sigurður Þrúðmarsson óska eftir stofnun nýjar lóðar Hoffell 3 úr sameignarlandi Miðfells og Hoffells 2, samkvæmt framlögðum uppdráttum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðar, enda samræmist hún skipulagsáætlun. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Málinu vísað til bæjarstjórnar.