Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

58. fundur
15. maí 2023 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Finnur Smári Torfason 1. varamaður
Stefán Birgir Bjarnason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Sorpútboð 2023
Málsnúmer 202108112
Drög að útboðsgögnunum vegna sorphirðu í sveitarfélaginu Hornafirði lögð fram til kynningar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að sveitarfélagið eigi endurvinnanlegan úrgang og sjái til þess að honum sé komið í farveg samkvæmt stefnumörkun um hringrásarhagkerfi. Verktaki fái hlutdeild í greiðslum úrvinnslusjóðs sem sé hvetjandi fyrir betri flokkun. Nefndin telur að þessi leið sé hagkvæm og samræmist umhverfis- og loftslagsstefnu sveitarfélagsins. Málinu vísað til bæjarráðs.
2.
Yfirlýsing sveitarfélagsins vegna 19.gr.eldri lóðarleigusamninga
Málsnúmer 202305038
Erindi dagsett 5. maí 2023 þar sem Snorri Snorrason fasteignasali óskar eftir að sveitarfélagið taki það til skoðunar að fella út ákvæði um tilkynningarskyldu vegna framsals lóðaleigusamninga.Á ákveðnu tímabili hefur sveitarfélagið gert lóðarleigusamninga þar sem fram kom í 19.gr. ákvæði um tilkynningarskyldu vegna sölu á leigurétti ásamt húsum. Í ákvæðinu segir "nú vill leigutaki framselja öðrum leigurétt sinn til lóðarinnar, ásamt húsum og mannvirkjum, sem á lóðinni og er honum þá skylt að tilkynna það byggingarfulltrúa sveitarfélagsins til skráningar, og er framsal ógilt, nema bæjarverkfræðingur eða fulltrúi hans hafi ritað vottorð sitt á framsali um að eignaskiptin hafi verið tilkynnt og þar með staðfest, að framsalið brjóti eigi í bága við lóðarleigusamning þennan".
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkt verði að þinglýsa yfirlýsingu þar sem ákvæði 19.gr. umræddra lóðarleigusamninga verði felld brott. Málinu vísað til bæjarráðs.
3.
Fundarboð - Kröfur til hins byggða umhverfis vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis
Málsnúmer 202305048
Samband íslenskra sveitarfélaga efnir til opins fjarfundar undir yfirskriftinni Kröfur til hins byggða umhverfis vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis þriðjudaginn 16. maí kl. 10:00 til 12:00. Fundurinn er hluti af fundarröð sambandsins undir átakinu Samtaka um hringrásarhagkerfi sem styrkt er af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur íbúa til að fylgjast með fundinum og skrá sig til þátttöku hér: https://www.samband.is/vidburdir/krofur-til-hins-byggda-umhverfis-vegna-innleidingar-hringrasarhagkerfis/
4.
Umsögn - Skýrsla um vindorkumál
Málsnúmer 202305041
Óskað hefur verið umsagnar sveitarfélagsins um skýrslu um vindorkumál.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur mikilvægt að sveitarfélög og nærsamfélög fái tekjur af vindorkuverum.
Setja þarf sérstök viðmið um staðsetningu vindorkuvera, fjölda þeirra og stærð. Það má hvort sem er gera með lagasetningu, stefnumörkun stjórnvalda eða í aðalskipulagi sveitarfélaga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur mjög brýnt að hugað sé að skýrari reglum og viðmiðum þegar kemur að áhrifum á umhverfi og náttúru, ekki síst þegar kemur að mikilvægum fuglasvæðum og farleiðum fugla, sem og kröfu um bestu fáanlegu tækni og hvernig skilja skuli við að starfsemi lokinni.
Skoða þarf hvort forgangsraða þurfi orkuöflun í þágu loftslagsmarkmiða og -skuldbindinga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að huga þurfi að styrkingu stofnana sem sjá um eftirlit og málsmeðferð vindorku og samhæfingu opinberrar málsmeðferðar.
5.
Umsögn - Frumvarp til laga um tímabundnar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf
Málsnúmer 202305036
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn sveitarfélagsins til laga um tímabundnar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi, 1028. mál.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að með því að reyna að leysa þennan brýna vanda, á þennan hátt sé verið að búa til nýjan vanda inn í framtíðina þar sem til verður fjöldi íbúða innan svæða sem óhentug eru til búsetu. Nefndin gerir einnig athugasemd við að flóttafólki sé boðið upp á búsetukosti á athafnasvæðum.
Nefndin telur staflið g í 4. gr. lagabreytingarinnar forsendu fyrir því að hægt sé að samþykkja lögin.

6.
Umsögn - Karlsbrekka stofnun fimm lögbýla
Málsnúmer 202304028
Erindi dagsett 29. mars 2023 þar sem Direkta lögfræðiþjónusta sf. óskar eftir, f.h. landeigenda, umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar á stofnun lögbýla á fimm fasteignum sem stofnaðar hafa verið en upprunajörðin er Bær í Lóni.Karlsbrekka, L180010 sem er 4,5 haKarlsbrekka 2, L230351 sem er 3,1 haKarlsbrekka 3, L231196 sem er 1,6 haKarlsbrekka 4, L231197 sem er 2,5 haKarlsbrekka 5, L231198 sem er 1,6 ha
Landspildurnar eru allar innan skilgreinds landbúnaðarsvæðis og fram kemur í gögnum að tilgangur eigenda sé að stunda þar skógrækt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að stofnuð séu lögbýli á spildunum, enda eru þær á landbúnaðarsvæði skv. aðalskipulagi. Nefndin bendir á að sé fyrirhugað að byggja á lóðunum skuli þær deiliskipulagðar sem ein heild.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Hofsnes Bær, umsókn um stofnun landeignar
Málsnúmer 202305060
Erindi dagsett 12. maí 2023 þar sem Egill Rúnar Sigurðsson sækir um stofnun 4 ha lóðar úr landi Hofsness (L160178) skv. framlögðum uppdráttum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðar, enda samræmist hún skipulagsáætlun. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að lóðin er á svæði sem skilgreint er í aðalskipulagi sem landbúnaðarsvæði og því þurfi að óska eftir breytingu á skipulagi sé ætlunin að vera með ferðaþjónustu á svæðinu. Sé fyrirhugað að byggja upp á svæðinu skal gera ráð fyrir að lóðin sé deiliskipulögð.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Stöðuleyfisumsókn - Jökulsárlón, salernisgámar (endurnýjun)
Málsnúmer 202305024
Fyrir hönd Vatnajökulsþjóðgarðsins er óskað eftir endurnýjun á stöðuleyfi fyrir salernisgáma við áfangastað við Jökulsárlón. Stöðuleyfi eru veitt til allt að 12 mánaða og eru ekki endurnýjuð nema með samþykki umhverfis- og skipulagsnefndar.
Gunnlaugur Róbertsson og Finnur Smári Torfason viku af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við endurnýjun umrædds stöðuleyfis til 12 mánaða.
9.
Hlíðartún 12, umsókn um breytingu á götukanti
Málsnúmer 202305021
Erindi dagsett 2. maí 2023 þar sem Óskar Arason f.h. Iceguide sækir um breytingu á götukanti til að koma fyrir fleiri bílastæðum við Hlíðartún 12 á Höfn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögur umsækjanda að fyrirkomulagi bílastæða á lóðinni. Heimilt verði að taka niður götukant fyrir tvo bíla til viðbótar. Gert verði ráð fyrir að ný bílastæði verði aðgreind frá núverandi innkeyrslu í samráði við starfsmann sveitarfélagsins.
10.
Byggingarleyfisumsókn - Álaleira 5, nýtt iðnaðarhús
Málsnúmer 202111055
Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar 6. mars 2023 var samþykkt að grenndarkynna nýja útgáfu af teikningum vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar á lóð Álaleiru 5. Grenndarkynningin stóð frá 4. apríl með athugasemdarfresti til 5. maí. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út byggingarleyfi á grunni grenndarkynntra gagna þegar fullnægjandi gögn hafa borist, skv. 44.gr. skipulagslaga. Málinu visað til bæjarstjórnar.
11.
Byggingarleyfisumsókn - Hagatún 16, fjölbýlishús
Málsnúmer 202305044
Lárus Páll Pálssom sækir um leyfi til að byggja 4 íbúða fjölbýlsihús á lóð Hagaleiru 16 samkvæmt framlögðum teikningum.
Þröstur Jóhannsson og Stefán Birgir Bjarnason viku af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu. Vegna staðsetningu lóðarinnar innst í botnlanga, stærð lóðar og fyrirkomulags telur nefndin að hámarksfjöldi íbúða á lóðinni séu tvær.
12.
Deiliskipulag - Reynivellir - Efribær
Málsnúmer 202201032
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 10. febrúar 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Reynivalla, Efribæjar, í Suðursveit í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið tekur til núverandi bæjartorfu og m.a. eru afmarkaðar lóðir og byggingarreitir fyrir frístundahús, smáhýsi og skemmu fyrir búfé og vinnuvélar. Gerð er grein fyrir fjölda gesta á svæðinu í nýjum og núverandi húsum og á svæði fyrir stöðuhýsi. Tillagan var auglýst frá 24. febrúar með athugasemdarfresti til 11. apríl 2022. 5 umsagnir bárust. Eftir auglýsingu var gerð fornleifaskráning á svæðinu, skipulagsgögnum breytt í samræmi við skráningu og óskað var eftir nýrri umsögn Minjastofnunar Íslands.
Þar sem meira en ár er liðið frá því að umsagnarfrestur vegna deiliskipulagsins rann út samþykkir umhverfis- og skipulagsnefnd að auglýsa deiliskipulagstillöguna að nýju skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - skógræktaráform í landi Selbakka
Málsnúmer 202301053
Sótt er um framkvæmdarleyfi fyrir skógrækt í landi Selbakka (L232272) á Mýrum. Markmið verkefnisins er kolefnisbinding með plöntun stafafuru, alaskaaspar ásamt víðitegundum í um 100 ha lands ofan þjóðvegar. Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 20. febrúar 2023 var bókað að óska ætti eftir umsögnum Vantajökulsþjóðgarðs, Landsnets og Náttúrustofu Suðausturlands sem bárust og voru teknar fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 20. mars 2023. Í innkomnum umsögnum voru færð ítarlegri rök gegn skógrækt á svæðinu. Bókað var að leita skuli viðbragða málsaðila.Málsaðili hefur nú skilað inn viðbrögðum við umsögnum.
Gunnlaugur Róbertsson og Helga Árnadóttir viku af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir því að plöntuval verði endurskoðað og fram lögð aðgerðaráætlun til að hefta útbreiðslu þeirra tegunda sem mögulega eru ágengar inn í þjóðgarðinn. Nefndin felur starfsmanni að ræða við umsækjanda um val á plöntum og fara yfir umdeild mörk þjóðgarðs.
14.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Málsnúmer 202305061
Erindi dagsett 12. maí 2023 þar sem Rýólít ehf óskar eftir breytingu aðalskipulags og uppskiptingu lands í landi Hofs í Öræfum. Fyrirhuguð breyting nær til svæðisins á milli Hvalvörðugilslækjar og Kotár í landi Hofs í Öræfum. Fyrirhugað er að svæðið skiptist upp í 6 lóðir í samræmi við eignarhlutfall hvers landeiganda. Óskað er eftir heimild til að byggja upp á athafnsvæði, með heimild til versl. & þjónustu á allt að 10 ha svæði. Samhliða aðalskipulagsbreytingu verður unnið deiliskipulag fyrir austasta hluta svæðisins með nánari útfærslu hluta svæðisins, byggingarheimildum og skilmálum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir frekari gögnum og staðfestingu allra landeigenda á að heimild sé fyrir annarsvegar landskiptum og hinsvegar fyrirhugaðri starfsemi á svæðinu. Nefndin leggur áherslu á að gögnin komi sem fyrst og að lögð sé fram tímaáætlun um gagnaskil og mögulegt ferli. Nefndin harmar að framkvæmdir hafi farið af stað á svæðinu án tilskilinna leyfa.