Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

60. fundur
12. júní 2023 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bartek Andresson Kass
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Álaleira 6, björgunarmiðstöð, fyrirspurnaruppdrættir
Málsnúmer 202303027
Erindi dagsett 6. mars 2023 þar sem Finnur Smári Torfason formaður Björgunarfélags Hornafjarðar óskar eftir afstöðu sveitarfélagsins við því að byggja björgunarmiðstöð við Sæbraut í samræmi við framlagða vinnsluteikningu.Erindið var grenndarkynnt 25. apríl með athugasemdarfresti til 23. maí 2023. Engar athugasemdir bárust. Umsögn barst frá Minjastofnun Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að veita megi heimild til framkvæmda án skipulagsgerðar samkvæmt 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Umsókn um byggingarheimild - Silfurbraut 15 - sólskáli
Málsnúmer 202306018
Ásgerður Haraldsdóttir og Birgir Sigurðsson sækja um heimild til að setja sólskála garðmegin við íbúð að Silfurbraut 15. Samþykki eigenda raðhúsalengju liggur fyrir, en ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að veita megi heimild til framkvæmda án skipulagsgerðar. Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi þegar farið fram samkvæmt 2. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Umsókn um byggingarheimild - Reynivellir, starfsmannabúðir
Málsnúmer 202305116
Suðurhús ehf. sækir um byggingarheimild fyrir starfsmannabúðir að Reynivöllum samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum til þriggja ára, vegna byggingar hótels. Ekki er til gildandi deiliskipulag en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að veita megi heimild án deiliskipulagsgerðar sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmd varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda, sbr. 3. mgr. 44. gr. laganna. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Umsókn um byggingarheimild - Hnappavellir 1, starfsmannabúðir
Málsnúmer 202304061
Þingvangur ehf. sækir um heimild til að staðsetja starfsmannabúðir að Hnappavöllum 1 vegna framkvæmda sem fyrirhugaðar eru í Skaftafelli 3A til 3C. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði. Samþykki landeiganda liggur fyrir.Erindið var grenndarkynnt skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 11. maí með athugasemdarfresti til 8. júní 2023.Ein athugasemd barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að veita megi heimild án deiliskipulagsgerðar sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og að starfsmönnum verður falið að svara athugasemd. Í ljósi athugasemdar, vekur nefndin athygli á að eðli máls samkvæmt verða færanlegar starfsmannabúðir, sem ætlaðar eru til nota í takmarkaðan tíma á hverjum stað á meðan framkvæmdir standa yfir, ekki hluti af skipulagðri byggð. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022 - 2034
Málsnúmer 202111003
Framlögð drög að svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2023 - 2036.
Kynnt fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd. Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
6.
Reglur um gáma, báta og aðra lausafjármuni í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202102033
Reglur um gáma, báta og aðra lausafjármuni í Sveitarfélaginu Hornafirði hafa verið uppfærðar í samræmi við umræddu á 53. fundi umhverfis- og skipulagsnefndar. Uppfærsla er gerð á 5.gr. reglna og fellur í sér heimilt til að skilgreina sérstaklega skipulögð svæði til geymslu lausafjármuna einnig á íþróttasvæðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytinguna og vísar uppfærðum reglum um gáma, báta og aðra lausafjármuni í Sveitarfélaginu Hornafirði til bæjarstjórnar.
7.
Skarðshólar, skógræktarsvæði - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202306030
Erindi dagsett 4. júní 2023 þar sem Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, f.h. landeiganda, óskar eftir breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 þar sem jörð þeirra, Skarðshólar (L221022) í Nesjum, verði breytt úr landbúnaðarlandi í skógræktar- og landgræðslusvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu til vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
8.
Hjáleiga í Öræfum - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202306032
Erindi dagsett 7. júní 2023 þar sem Friðrik Friðriksson f.h. Suðureigna ehf. sækir um að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Breytingin nær til lóðarinnar Hjáleigu (L233485) í Öræfum sem er nú skráð sem landbúnaðarland en óskað er eftir að verði íbúðarsvæði til samræmis við framlögð drög að deiliskipulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar að hafin verði vinna við breytingu á greinargerð aðalskipulags í samræmi við umræður á fundinum. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Breyting á aðalskipulagi - Leiðarhöfði
Málsnúmer 202205085
Lögð er fram breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 þar sem breyting er gerð á landnotkunarreitum á Leiðarhöfða á Höfn.Skipulagslýsing vegna breytingar á Leiðarhöfða í aðalskipulagi var kynnt frá 1. maí með fresti til að skila inn umsögnum og ábendingum til 15. maí en var svo framlengt til 22. maí og aftur til 10 júní þegar í ljós kom að nýjasta útgáfa skipulagslýsingarinnar hafði ekki verið lögð fram sem kynnt gögn. Umsagnir bárust frá Náttúrustofnu Suðausturlands, Minjastofnun Íslands, HAUST og Skipulagsstofnun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur umhverfis- og skipulagsstjóra að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði afgreidd í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.
10.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Deiliskipulag fyrir skóla- og íþróttasvæði á Höfn er tekið fyrir að nýju ásamt athugasemdum Skipulagsstofnunar eftir yfirferð skipulagsgagna.Skipulagið var auglýst 13. apríl 2022. Athugasemdarfrestur var til 25. maí en var síðan framlengdur til 5. júní. Ekki náðist að ljúka ferli deiliskipulagsins í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samhliða deiliskipulaginu eru gerðar breytingar á afmörkun þriggja aðliggjandi skipulaga: Íbúðarsvæðis á Leiru, miðbæjarskipulags og skipulags knattleikjahúss við Víkurbraut. Nýtt skipulag mun taka yfir hluta þessara skipulaga og eru skipulagsmörk samræmd og skilmálar endurskoðaðir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingar á afmörkun aðliggjandi skipulaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Miðsvæði - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202306021
Lögð er fram breyting á skipulagsmörkum deiliskipulags miðsvæðis vegna skipulags aðliggjandi svæðis.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að tillagan feli í sér óverulegar breytingar á notkun og formi svæðisins. Nefndin telur að breytingin hafi í engu áhrif á hagsmuni grenndar og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Leiðarhöfði - Deiliskipulag
Málsnúmer 202205086
Lögð eru fram fyrstu drög að deiliskipulagi Leiðarhöfða.
Lagt fram til kynningar.
13.
Lóðir J og K, Útbæ Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202204007
Umhverfis- og skipulagsnefnd fjallaði um hugmyndir Góðrar framkvæmdar ehf. um uppbyggingu við Ósland á fundi 12.desember 2022 og 30. maí 2023. Lögð eru fram frekari útfærsla á hugmyndum á lóðum J og K við Ósland.
Umhverfis og skipulagsnefnd ítrekar bókun frá 59. fundi og heimilar ekki risþak eins og óskað er eftir, en gerir ekki athugasemd við útsýnispall og tæknirými sem tengjast húsinu.
14.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - skógræktaráform í landi Selbakka
Málsnúmer 202301053
Sótt er um framkvæmdarleyfi fyrir skógrækt í landi Selbakka (L232272) á Mýrum. Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 15. maí 2023 fól nefndin starfsmanni að ræða við umsækjanda um val á plöntum og fara yfir umdeild mörk Þjóðgarðs. Samtal hefur átt sér stað og lögð eru fram viðbrögð umsækjanda.
Gunnlaugur Róbertsson og Helga Árnadóttir viku af fundi undir þessum lið. Umhverfis og skipulagsnefnd felur starfsmanni að koma að samtali á milli umsækjanda og Nátturustofu Suðausturlands varðandi plöntuval fyrir næsta fund nefndarinnar þar sem málið verður tekið fyrir að nýju.