Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

61. fundur
26. júní 2023 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði:
Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri umhverfismála
Dagskrá
1.
Landeignaskrá - Hagi, stofnun landeignar Heima-Hagi
Málsnúmer 202306038
Marta K. Grönvold Björnsdóttir óskar eftir stofnun nýrrar lóðar, Heima-Hagi, úr jörð Haga samkvæmt framlögðum uppdráttum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðar, enda samræmist hún skipulagsáætlun. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
2.
Umsögn - Snjóflóðavarnarkeilur norðan Öldugarðs
Málsnúmer 202306057
Erindi frá Múlaþingi þar sem óskað er eftir umsögn vegna breytinga á Aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030 vegna snjóflóðavarna norðan Öldugarðs á Seyðisfirði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar á Aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030.
3.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Skipulagslýsing Aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar var kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skv. 1. mgr. 14. gr. laga um uhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á heimasíðu verkefnisins www.hornafjorduradalskipulag.is. Opið var fyrir umsagnir og athugasemdir frá 8. maí til 10. júní 2023.Alls bárust 19 umsagnir og ein ábending frá einstaklingum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir innkomnar umsagnir og vísar þeim í vinnslu aðalskipulagsbreytingarinnar í samræmi við umræður og minnisblað um viðbrögð við umsögnum.
4.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Málsnúmer 202201109
Breyting á deiliskipulagi miðbæjar Hafnar - Sandbakkavegur, var auglýst frá 4. maí til 15. júní 2023 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Svæðið sem breytingin nær yfir afmarkast af Sandbakkavegi í vestri, Litlubrú í norðri, Hafnarbraut í austri og núverandi íbúðarbyggð við Sandbakkaveg í suðri. Í tillögu að breytingu skipulagsins eru afmarkaðar þrjár lóðir sunnan Nettó fyrir fjölbýlishús á 2-3 hæðum.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og HAUST, engin athugasemd barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Hafnar við Sandbakkaveg skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Kyljuholt á Mýrum - Deiliskipulag
Málsnúmer 202209021
Deiliskipulag Kyljuholts var auglýst frá 4. maí til 15. júní 2023 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið tekur yfir 4 ha svæði innan jarðar Kyljuholts. Afmarkaðar eru raðhúsalóðir fyrir nýbyggingar og afmörkuð lóð fyrir núverandi íbúðarhús á svæðinu.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, HAUST og Rarik, engin athugasemd barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi Kyljuholts skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Málsnúmer 202201107
Til stendur að breyta legu Víkurbrautar á Höfn og mynda sveig á götuna til vesturs á stuttum götukafla. Lagt er fram minnisblað þar sem fjallað er um forsendur fyrir breyttri legu, ásamt kostum og ókostum við breytinguna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart breyttri legu Víkurbrautar skv. fyrirliggjandi minnisblaði. Endanlegri ákvörðun vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
7.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - rútustæði
Málsnúmer 202306079
Erindi frá Páli Guðbrandssyni þar sem óskað er eftir svæði fyrir tímabundna geymslu rúta fram að hausti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vill nýta tækifærið og vekja athygli á að tímabundið leyfi fyrir lagningu atvinnubifreiða á plani við Hafnarbraut, norðan tjaldsvæðis, er útrunnið. Nefndin beinir því til eigenda atvinnubifreiða sem geymdar eru í bæjarlandi að finna þeim aðra geymslustaði.
Nefndin felur starfsmanni að ræða mögulegar tímabundnar lausnir við málsaðila.
8.
Umsókn um afnot af bæjarlandi fyrir malbikunarstöð
Málsnúmer 202306067
Colas Ísland ehf. óskar eftir samþykki sveitarfélagsins fyrir uppsetningu malbikunarstöðvar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir staðsetningu malbikunarstöðvar við Ægissíðu í 3 vikur, að því tilskyldu að umsóknaraðili skili svæðinu í sama ásigkomulagi og hann kom að því. Málinu vísað til bæjarráðs.

9.
Sláttur á opnum svæðum á Höfn
Málsnúmer 202306090
Framlagt minnisblað fulltrúa Kex framboðs varðandi grasslátt á opnum bæjarsvæðum á Höfn. Óskað er eftir því að skoðað verði hvort draga megi úr grasslætti á bæjarsvæðum á Höfn.
Kynnt fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd. Nefndin leggur til að í sumar verði gerð tilraun með minnkaðan garðslátt á afmörkuðum svæðum meðfram bílastæði FAS og á horni Kirkjubrautar við Hagatún 2. Nefndin felur starfsmanni að vinna málið áfram.
10.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - skógræktaráform í landi Selbakka
Málsnúmer 202301053
Sótt er um framkvæmdarleyfi fyrir skógrækt í landi Selbakka (L232272) á Mýrum. Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 12. júní 2023 fól nefndin starfsmanni að koma á samtali á milli umsækjanda og Náttúrustofu Suðausturlands varðandi plöntuval. Samtal hefur átt sér stað og er lögð fram fundargerð samtalsins ásamt minnisblaði verkefnastjóra umhverfismála.
Gunnlaugur Róbertsson og Helga Árnadóttir viku af fundi undir þessum lið. Umhverfis og skipulagsnefnd leggur til að veitt verði framkvæmdaleyfi til skógræktar á því landsvæði sem fellur utan hverfisverndar skv. gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Jafnframt er gerð sú krafa á framkvæmdaraðila að gæta að útbreiðslu trjáa út fyrir skilgreint framkvæmdarsvæði. Vísað til bæjarstjórnar.