Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

62. fundur
14. ágúst 2023 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir 2. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Málsnúmer 202302008
Nordic Office of Arcitecture kynna áframhald vinnu við deiliskipulagi íbúðabyggðar á ÍB5
Málinu vísað til áframhaldandi vinnu.
2.
Deiliskipulag - Reynivellir - Efribær
Málsnúmer 202201032
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 14. júní 2023 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Reynivalla, Efribæjar, í Suðursveit í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Deiliskipulagið var áður auglýst frá 24. febrúar til 11. apríl 2022 en ekki náðist að ljúka skipulagsferlinu innan árs frá því auglýsingartíma lauk og því er skipulagið auglýst að nýju.Deiliskipulagið tekur til núverandi bæjartorfu og m.a. eru afmarkaðar lóðir og byggingarreitir fyrir gistihús og skemmu fyrir tæki og aðstöðu fyrir ferðaþjónustu. Gerð er grein fyrir fjölda gesta á svæðinu í nýjum og núverandi húsum.Tillagan var endurauglýst frá og með 26. júní til 7. ágúst 2023. Engar umsagnir eða athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulag Reynivellir Efribær samkvæmt 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga og senda það til afgreiðslu Skipulagsstofnunar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Skipulagsmál - Óleyfisframkvæmdir í landi Hofs
Málsnúmer 202210096
Farið yfir stöðuna og samskipti vegna óleyfisframkvæmda í landi Hofs.
Lagt fram til kynningar.
4.
Breyting á aðalskipulagi - Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn
Málsnúmer 202308017
Sótt hefur verið um lóð fyrir verslun og þjónustu til móts við Mjólkurstöðina við innkomu í bæinn. Farið yfir forsendur og verkefnaáætlun.
Málinu vísað til áfrmahaldandi vinnu.
5.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Yfirferð yfir stöðu máls. Lögð fram fundargerð 3. fundar stýrihóps.
Stefnt er að því að halda samráðsfund vegna skipulags í þéttbýlinu á Höfn í október.
Vakin er athygli á vef aðalskipulagsvinnunar, https://www.hornafjorduradalskipulag.is/
Málinu vísað til áframhaldandi vinnu.
6.
Umsögn - Grænbók um skipulagsmál
Málsnúmer 202307063
Grænbók um skipulagsmál er nú í kynningu í samráðsgátt stjórnvalda. Hægt er að senda inn umsögn eða ábendingar til og með 24. ágúst nk.
Lagt fram til kynningar.
7.
Skoðunarskýrsla - Opin leiksvæði Höfn
Málsnúmer 202306104
Reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Austurlands á opin leiksvæði innan þéttbýlis á Höfn í Hornafirði fór fram 5.maí sl. Eftirlit fór fram í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 m.s.br. og reglugerðum sem byggja á áðurnefndum lögum, reglugerð 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim sem og í samræmi við starfsleyfi fyrirtækisins.Úrbótum hefur verið komið í ferli. Lagt fram til kynningar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar því að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem fram koma í skýrslunni.
8.
Sorpútboð 2023
Málsnúmer 202108112
Farið yfir útboð og stöðu máls.
Starfsmaður kynnti nefndinni niðurstöðu útboða vegna sorphirðu.
9.
Stjórnsýsla - Umhverfis og skipulagsnefnd, framsal á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála
Málsnúmer 202206023
Lagt fram minnisblað um möguleika á einföldun á afgreiðslu minni mála.
Starfsmanni falið að taka saman tillögur að framsali valds í samræmi við minnisblaðið.