Umhverfis- og skipulagsnefnd
63. fundur
28. ágúst 2023
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Níels Brimar Jónsson
1. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson
1. varamaður
Finnur Smári Torfason
1. varamaður
Stefán Birgir Bjarnason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Innviðir í sveitarfélaginu styðji við orkuskipti í samgöngum
Bæjarstórn vísaði erindi um rafhleðslustöðvar til umhverfis- og skipulagsnefndar.Lagt er til að skoðað verði að bæta nýtingu rafhleðslustöðva sveitarfélagsins við Miðbæ og Miðgarð með vísan til markmiðs um samgöngur og skipulag í Umhverfis- og loftslagsstefnu sveitarfélagsins. Meginmarkmið stefnunnar er varða samgöngur og skipulag er: Skipulag og innviðir sveitarfélagsins styðji við vistvænar samgöngur. Áhersla verði lögð á aðgengi að hjólastígum og hleðslustöðvum fyrir ökutæki sem lið í vegferð sveitarfélagsins að kolefnishlutleysi. Það verði gert með því að veita almenningi aðgang að stöð við Miðgarð og vekja aukna athygli á hleðslustöð við Miðbæ t.d. í samvinnu við Ísorku, ON eða aðra sem eru á þessum markaði þannig að þeir verði sýnilegir í þeirra kerfum/appi. Þá er lagt til að skoðað verði að skipta út núverandi hleðslustaurum fyrir nýja með það að markmiði að auðvelda innheimtu hóflegs gjalds fyrir notkun í samvinnu við fyrirtæki á þessum markaði.
Starfsmanni falið að skoða hvernig önnur sveitarfélög hafa komið fyrir rafhleðslustöðum við stofnanir og húsnæði sveitarfélaga og hefja viðræður við mögulega samstarfsaðila.
2.
Hagatún 9 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa
Erindi dagsett 7. ágúst 2023 þar sem Gunnhildur Imsland sækir um heimild til að gera nýtt bílastæði fyrir Hagatún 9 og úrtaki á gangstéttarkanti.
Þröstur Jóhannsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögur umsækjanda að fyrirkomulagi bílastæða á lóðinni. Heimilt verði að taka niður götukant fyrir tvo bíla til viðbótar. Gert verði ráð fyrir að ný bílastæði verði aðgreind frá aðliggjandi innkeyrslu í samráði við starfsmann sveitarfélagsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögur umsækjanda að fyrirkomulagi bílastæða á lóðinni. Heimilt verði að taka niður götukant fyrir tvo bíla til viðbótar. Gert verði ráð fyrir að ný bílastæði verði aðgreind frá aðliggjandi innkeyrslu í samráði við starfsmann sveitarfélagsins.
3.
Fyrirspurn um atvinnulóð fyrir Eimskip
Erindi dagsett 16. maí 2023 þar sem Sigfús Már Þorsteinsson f.h. Eimskips óskar eftir 3500-4000 m2 lóð fyrir starfsemi fyrirtækisins. Fyrirhuguð uppbygging fyrirtækisins á nýju svæði miðast við að auka þjónustu sína enn frekar og bregðast við auknum flutningum til og frá svæðinu. Húsnæðisþörf er áætluð um 500-600 m2 bygging með 3-4 m vegghæð.Erindið var áður tekið fyrir fund þann 30. maí 2023.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að lóðaafmörkun og felur starfsmanni að vinna lóðablað, grenndarkynna og kynna veitustofnunum.
4.
Breyting á aðalskipulagi - Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn
Sótt hefur verið um lóð fyrir verslun og þjónustu til móts við Mjólkurstöðina við innkomu í bæinn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að vinna áfram að þróun verslunar- og þjónustusvæðis við innkomuna í bæinn.
Starfsmanni falið að vinna skipulagslýsingu í samræmi við umræður á fundinum.
Starfsmanni falið að vinna skipulagslýsingu í samræmi við umræður á fundinum.
5.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Lögð er fram frumdrög og hugmynd að deiliskipulagi Víkurbrautar 1-5 og Álaugarvegar 2. Á fundinn kom skipulagshönnuður og fór yfir hugmyndir af notkun og uppbyggingu svæðisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna og samþykkir að þróa áfram deiliskipulagsáform byggð á framlögðum gögnum.
Starfsmanni falið að vinna skipulagslýsingu í samræmi við umræður á fundinum.
Starfsmanni falið að vinna skipulagslýsingu í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Krosseyjarvegur 2 - Breyting á deiliskipulagi
Erindi dagsett 28. júlí 2023 þar sem Kristinn Óskarsson f.h. Sinney-Þinganes hf. sækir um:A) Heimild fyrir viðbyggingu við Krosseyjarveg 2.B) Heimild fyrir lagningu háspennustrengs að viðbyggingu sem fer að hluta til gegnum bryggjusvæði hafnarinnar.C) Heimild fyrir uppsetningu krana.
Starfsmanni falið að fá frekari upplýsingar um stærð og hvort stækkun sé innan núverandi lóðamarka og vinna drög að breytingu.
Málinu vísað til umsagnar Hafnarstjórnar.
Málinu vísað til umsagnar Hafnarstjórnar.
7.
Skipulagsmál - Óleyfisframkvæmdir í landi Hofs
Farið yfir stöðuna og samskipti vegna óleyfisframkvæmda í landi Hofs. Lagt er fram bréf dagsett 25. ágúst 2023 þar sem óskað er eftir 2 vikna fresti til að afla samþykkis landeigenda.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir Rýolít ehf á að svæðið er ekki afmarkað fyrir verslun og þjónustu í aðalskipulagi og að allar framkvæmdir á svæðinu eru unnar í óleyfi. Leyfi allra landeigenda á svæðinu eru forsenda fyrir því að unnt sé að vinna áfram með skipulag á svæðinu. Leyfi landeigenda og tillögur að breytingum skulu liggja fyrir fyrir næsta fund nefndarinnar þann 11. september n.k.
Umhverfis- og skipulagsnefnd harmar stöðuna sem komin er upp í málinu og þann tíma sem það hefur tekið framkvæmdaraðila að leggja fram gögn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd harmar stöðuna sem komin er upp í málinu og þann tíma sem það hefur tekið framkvæmdaraðila að leggja fram gögn.
8.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Lögð er fram tillaga að skipulagslýsingu vegna breytingar aðalskipulags og nýs deiliskipulags við Hvalvörðugilslæk í Öræfum. Einnig eru lögð fram drög að deiliskipulagi svæðisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort vilji sé til að breyta aðalskipulagi eða vinna deiliskipulag á svæðinu. Afstaða annarra landeigenda liggur ekki fyrir. Málinu er frestað.