Umhverfis- og skipulagsnefnd
69. fundur
6. desember 2023
kl.
16:00
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson
1. varamaður
Níels Brimar Jónsson
1. varamaður
Stefán Birgir Bjarnason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Mannréttindastefna
Bæjarráð vísaði mannréttindastefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við mannréttindastefnuna.
2.
Sorpmál 2023
Tillögur að breyttri gjaldskrá vegna sorpmála kynntar og ræddar.
Lagt fram til kynningar.
3.
Landeignaskrá - Tjörn, stofnun íbúðarhúsalóðar
Agnar Ólafsson og Halldór Ólafsson óska f.h. dánarbús Ólafs Halldórssonar eftir stofnun íbúðarhúsalóðar Tjörn 3 úr jörð Tjörn. Um er að ræða 8.573 fm landeign. Ekki er til gildandi deiliskipulag, en samkvæmt aðalskipulagi er lóð á landbúnaðarsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun landeigna, enda í samræmi við skipulagsáætlun. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Landeignaskrá - Skeiðarárjökull Suður, þjóðlenda
Beiðni frá Forsætisráðuneytinu um stofnun þjóðlendu. Um er að ræða 26,7 km² svæði Skeiðarárjökull, suður, skv. úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 9/2003 og dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 47/2007
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við erindið og leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði að stofna umrædda þjóðlendu, sbr. 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Gjaldskrá byggingarmála
Lagðar eru til tillögur um breytingu á gjaldskrá gatnagerðar- og byggingargjalda. Breytingar varða útsetningar húsa og lóða, upphæðir gatnagerðagjalda samkvæmt bókun bæjarráðs frá 21.11.2023, niðurfellingu lágmarksgjalds, skýrari flokkun mannvirkja í grein 4.1. og breytingu á staðfestingargjaldi vegna lóðarúthlutunar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingar samkvæmt umræðu á fundinum. Málinu vísað til bæjarráðs.
6.
Endurheimt Míganda
Erindi dagsett 19. september 2023 frá Erlingi I Brynjólfssyni þar sem farið er fram á að farvegi Míganda verði skilað í upprunalegan farveg á ný þar sem þörf er ekki lengur fyrir breyttum farvegi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir frekari gögnum um ástæður eða kosti þess að flytja Míganda. Starfsmanni falið að ræða við umsækjanda.
7.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Hagaleira 12, aukaíbúð í bílskúr, álit
Bergsteinn Kárason og María Hjördís Karlsdóttir spyrja hvort fyrirhuguð breyting á húsi að Hagaleiru 12 samræmist skipulagsskilmálum svæðis, og ef svo er ekki, óskar eftir heimild nefndarinnar fyrir þessari breytingu. Fyrrihuguð er að útbúa u.þ.b. 24fm aukaíbúð í bílskúrnum fyrir gesti húseigenda. Engin breyting eða stækkun mun eiga sér stað á ytra formi hússins og hvergi þarf að breyta útliti þess. Ekki er verið að breyta húsinu í tvíbýli með þessari breytingu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði gefið út fyrir breytingunni þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Ekki verður heimilt að gera sér fasteignanúmer eða leigja rýmið út til skammtímaleigu umfram samþykktir.
8.
Umsókn um byggingarheimild - Hoffell 3, skemma
Þrúðmar Sigurður Þrúðmarsson sækir um byggingarheimild fyrir geymsluhúsnæði sem fyrirhugað er að reisa að Hoffelli 3 þar sem áður stóð fjárhús. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en skv. aðalskipulagi er um verslunar- og þjónustusvæði VÞ13 að ræða. Í greinargerð aðalskipulagsins kemur fram um reit VÞ13: "Hoffell / Miðfell. Ferðaþjónusta, gisting og greiðasala, upplýsingamiðstöð. Uppbygging vegna hennar skal heimil, skv. deiliskipulagi. Allt að 20 gistirými. Í Hoffelli er bændakirkja. Uppbygging vegna kirkjustarfsins heimil. Svæðisafmörkun ~ 10ha."
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin samþykkir að grenndarkynna umsóknina landeigendum í Hoffelli, samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Einnig skal óska eftir umsögn Minjastofnunar Íslands.
9.
Umsókn um byggingarheimild - Lækjarnes, endurbygging, þegar byggt hús
Sótt er um byggingarheimild fyrir þegar byggt hús að Lækjarnesi, samkvæmt framlögðum reyndarteikningum. Um er að ræða frístundarhús sem byggt var á gömlum rústum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði, en skv. aðalskipulagi er húsið á landbúnaðarsvæði.
Húsið er búið að standa síðan árið 2009, líklega. Sveitarfélagið veit ekki til þess að neinar athugasemdir hafi borist. Umhverfis- og skipulagsnefnd harmar að húsið hafi verið byggt án leyfis. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar þegar afstaða Minjastofnunar liggur fyrir. Framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar, sbr. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Umsókn um byggingarheimild - Stafafell Áfangaklettur, gestahús, þegar byggt
Helga Davids, f.h. eigenda Stafafells Áfangakletts, óskar eftir byggingarheimild fyrir þegar byggt hús. Um er að ræða u.þ.b. 19fm gestahús sem var sett niður árið 2019 á lóðinni. Húsið var byggt af Iglucraft ehf. í Eistlandi og flutt inn í heilu lagi, fullbúið. Ekki er til gildandi deiliskipulag, en skv. aðalskipulagi er lóðin á verslunar- og þjónustusvæði/landbúnaðarsvæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd harmar að húsið hafi verið byggt án leyfis. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar þegar afstaða Minjastofnunar liggur fyrir. Framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar, sbr. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur að fullnægjandi grenndarkynning hafi þegar farið fram samkvæmt 2. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Öll frekari uppbygging á Stafafelli er háð deiliskipulagsgerð. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11.
Álaugarey, lóðasamningur og stækkun lóðar - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Erindi dagsett 17. nóvember 2023 þar sem Ólöf Gísladóttir óskar eftir endurnýjun lóðasamnings fyrir Álaugarey L159571 í samræmi við gildandi aðalskipulag.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar stækkun lóðar þar sem landnotkunarreitir í aðalskipulagi ákvarða ekki lóðamörk.
Vinna við deiliskipulag Krosseyjar er í gangi og verða ný lóðamörk afmörkuð í þeirri vinnu.
Vinna við deiliskipulag Krosseyjar er í gangi og verða ný lóðamörk afmörkuð í þeirri vinnu.
12.
Svæðisskipulag Suðurhálendisins - beiðni um umsögn
Erindi dagsett 15. nóvember 2023 þar sem Svæðisskipulagsnefnd um Suðurhálendi óskar eftir umsögn um Svæðisskipulag Suðurhálendis.Kynnt gögn eru í skipulagsgátt nr. 0862/2023.Umsagnarfrestur er til 14. janúar 2024.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við svæðisskipulag Suðurhálendisins.
13.
Rauðaberg 2 Lóð 1 - Breyting á aðalskipulagi
Lögð fram skipulagslýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi fyrir Rauðaberg 2 Lóð 1 þar sem fyrirhugað er að byggja upp gisti- og þjónustustarfsemi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skipulagslýsing verði kynnt skv. 30.gr og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
14.
Skaftafell III og IV - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Lögð er fram skipulagslýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 þar sem óskað hefur verið eftir aukningu á umfangi þjónustu á verslunar- og þjónustusvæði VÞ44 við Skaftafell III og IV auk nýs deiliskipulags.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skipulagslýsing verði kynnt skv. 30.gr og 40. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
15.
Heppuvegur 6 - breyting á aðalskipulagi
Erindi dagsett 21. september 2023 þar sem óskað er eftir að gerð verði óveruleg breyting á gildandi aðalskipulagi fyrir Heppuveg 6 þar sem bætt verði við að heimiluð verði gisting fyrir ferðamenn í allt að 12% í húsinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gerð verði óveruleg breyting á aðalskipulagi í samræmi við umsókn. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
16.
Byggingarleyfisumsókn - Hagatún 16, parhús
Erindi dagsett 15. september 2023 þar sem Lárus Páll Pálsson sækir um að byggja einnar hæðar parhús á lóð Hagatúns 16 samkvæmt framlögðum teikningum. Erindið var grenndarkynnt frá 10. október með athugasemdarfresti til 7. nóvember 2023. Athugasemd með 7 undirskriftum barst.Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar var bókað að gera ætti breytingar á tillögunni. Breytt tillaga er hér lögð fram.
Stefán Birgir Bjarnason yfirgaf fundinn frá og með þessu máli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út byggingarleyfi á grunni nýrrar tillögu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010, þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út byggingarleyfi á grunni nýrrar tillögu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010, þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
17.
Reynivellir hótel - óveruleg frávik frá deiliskipulagi
Erindi dagsett 15. nóvember 2023 þar sem teikningar og skráningartafla fyrir hótel á Reynivöllum er lagt fram. Hönnun þess er í óverulegu ósamræmi við deiliskipulag hvað varðar byggingamagn og fjölda bílastæða og því er það lagt fram í umhverfis- og skipulagsnefnd til ákvörðunar um samræmi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 varðandi byggingarmagn þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landkotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn sbr. 3. mgr. 43. gr. sömu laga og þeim hluta erindis vísað til bæjarstjórnar.
Fyrirhuguð fjölgun bílastæða er umtalsverð og þarf að gera breytingu á deiliskipulagi.
Fyrirhuguð fjölgun bílastæða er umtalsverð og þarf að gera breytingu á deiliskipulagi.
18.
Flatatún í Öræfum - Deiliskipulag
Deiliskipulag Hjáleigu í Öræfum hefur tekið breytingum þar sem fornminjar voru innan þeirrar lóðar og hún því illa nýtanleg. Ákveðið hefur verið að hefja nýtt skipulagsferli og hafa fyrirhugaða uppbyggingu á landi Flatatúns og Flatatúns spildu sem liggur neðan við Hjáleigu.Hér er því lagt fram nýtt deiliskipulag þar sem samskonar uppbygging er fyrirhuguð og var í Hjáleigu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga 1 verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
19.
Kyljuholt á Mýrum - Breyting á deiliskipulagi
Deiliskipulag Kyljuholts á Mýrum tók gildi 18. október 2023. Við nánari hönnun á fyrirhuguðum framkvæmdum varð ljóst að samþykkt skipulag hentaði ekki og þarf að hnika til byggingarreitum og lóðamörkum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að tillagan feli í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins. Nefndin telur breytingin hafi í engu áhrif á hagsmuni í grennd og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
20.
Deiliskipulag hafnarsvæðis Krossey - endurskoðun
Skipulagslýsing vegna endurskoðunar hafnarsvæðisins Krossey á Höfn var kynnt frá 3. nóvember með athugasemdarfresti til 24. nóvember 2023. Umsagnir bárust frá Samgöngustofu, UST, Skipulagsstofnun, Vegagerðinni, Landsneti, Náttúrustofu Suðausturlands, Minjastofnun Íslands og Ólöfu Gísladóttur og Jóhanni Gunarssyni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar innkomnum umsögnum og ábendingum inn í vinnslu deiliskipulagsins.
21.
Breyting á deiliskipulagi - Heppuvegur 2a, lóðarmörk og byggingarreitur
Erindi dagsett 22. nóvember 2023 þar sem óskað er eftir stækkun lóðar að Heppuvegi 2a um 70 cm til vesturs. Einnig að byggingarheimild verði aukin að lóðamörkum til að byggja um 35 m2 óupphitaða sólstofu við hús. Í gildi er deiliskipulag Hafnarvík - Heppa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir afstöðumynd af breytingunni m.t.t. aðgengis og gönguleiða.
22.
Heppuvegur 9 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Erindi dagsett 29. nóvember 2023 þar sem óskað er eftir leyfi f.h. Iceguide og lóðarhafa til að rífa Heppuveg 9 og byggja þar upp nýtt gistihús með 28 herbergjum. Gert er ráð fyrir að byggingin verði um 800 m2 og yrði á tveimur hæðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að gera þurfi grein fyrir aðkomu að húsinu og bílastæðum fyrir gesti. Uppbygging gistiheimilis á svæðinu kallar á aðalskipulagsbreytingu.
23.
Landeignaskrá - Stafafellsfjöll 37 - breyting á lóðamörkum
Breytt lóðamörk Stafafellsfjalla 37 voru grenndarkynnt frá 30. október með athugasemdarfresti til 27. nóvember 2023.Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að lóðamörkum verði breytt til samræmis við grenndarkynnt gögn.