Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

70. fundur
20. desember 2023 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Málstefna
Málsnúmer 202309020
Bæjarráð vísaði málstefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við málstefnuna.
2.
Áhrif breytinga á lögum um skráningu, merki og mat fasteigna nr.6-2001
Málsnúmer 202312044
Áramótin 2023-2024 tekur lagabreyting gildi sbr. III kafli breytingarlaga nr. 74/2022, sem hefur þau áhrif að ferill mun breytast við skráningu og mælingu merkja fasteigna. Eftir lagabreytingu mega þeir einir sem hafa leyfi ráðherra sem merkjalýsendur, mæla eignamörk og gera merkjalýsingar, en merkjalýsing er skjal sem tekur við af lóðauppdrætti eins og skilað hefur verið inn með skráningu fasteigna hingað til. Kröfur og efni merkjalýsinga eru meiri en almennt gilda nú til lóða-/mæliblaða og er lýst í nýrri reglugerð um merki fasteigna, sem er samráðsgátt.
Lagt fram til kynningar.
3.
Athugasemd um umferðaröryggi við Kirkjubraut
Málsnúmer 202311182
Bent er á hættulegar aðstæður fyrir gangandi vegfarendur þar sem göngustígur mætir Kirkjubraut mill húsa nr. 7 og 9. Engin aðvörun, þrenging, gangbraut eða gangstétt tekur á móti gangandi/hjólandi þegar stígurinn kemur út að götunni. Steyptur kantur er á lóðarmörkum þannig að það skyggir á börn sem koma gangandi eða hjólandi í átt að götunni.
Starfsmanni falið að gera ráðstafanir til að bæta öryggi við göngustíginn þar til umferðaröryggisáætlun verður uppfærð.
4.
Heppuvegur 9 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202311183
Erindi dagsett 29. nóvember 2023 þar sem óskað er eftir leyfi f.h. Iceguide og lóðarhafa til að rífa Heppuveg 9 og byggja þar upp nýtt gistihús með 28 herbergjum. Gert er ráð fyrir að byggingin verði um 800 m2 og yrði á tveimur hæðum.Erindið var tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 6. desember 2023 þar sem óskað var eftir frekari upplýsingum sem nú liggja fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að breyta aðalskipulagi og deiliskipulagi í samræmi við framlögð gögn og heimila gistingu á lóðinni.
5.
Deiliskipulag Hafnarvík Heppa - endurskoðun lóðarmarka
Málsnúmer 202312092
Deiliskipulag Hafnarvík Heppa - endurskoðun lóðarmarka
Starfsmanni falið að vinna málið áfram.
6.
Skipulag - Stækkun á lóð Hótel Jökull
Málsnúmer 202312091
Hótel Jökull ehf. lóðarhafi lóðar Hótel Jökull óskar eftir stækkun á lóð í samræmi við innsend gögn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stækkun á lóð Hótel Jökuls en felur starfsmanni að skoða mögulega skörun við veitustofna. Breytingu á afmörkun VÞ svæðis vísað í endurskoðun aðalskipulags. Málinu vísað til bæjarráðs.
7.
Fiskhóll 11 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Málsnúmer 202309040
Breytingar á lóð Fiskóls 11 voru grenndarkynntar skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 11. október með athugasemdarfresti til 8. nóvember 2023.Nokkrar breytingar hafa orðið á skipulagi vegna frekari hönnunar og er því lagður fram nýr uppdráttur.Breytingar frá grenndarkynntum gögnum:Lóð stækkar úr 1.921,4 í 2.028.9 m2.Byggingarreitur breytist.Bílastæði taka breytingum, þeim fækkar úr 13 í 10, eitt þeirra verður fyrir hreyfihamlaða.Hámarks byggingarmagn eykst um 20 m2
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis og skipulagnefnd telur ástæðu til að grenndarkynna á ný breytingu deiliskipulags samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
8.
Smyrlabjörg - Deiliskipulag
Málsnúmer 202310146
Erindin dagsett 27. október 2023 þar sem Vigfús Halldórsson sækir um heimild til að leggja fram deiliskipulag fyrir hluta lóðar Smyrlabjarga með það að markmiði að fjölga starfsmannahúsum.Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 1. nóvember 2023 var farið framá að allt bæjarhlaðið yrði deiliskipulagt og sett fram heildarmynd af svæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim breytingum sem lagðar voru til á fundinum.
9.
Lenging vegslóða í Þröng - Framkvæmdarleyfi
Málsnúmer 202310157
Erindi dagsett 24. október 2023 þar sem Glacier Adventure sækir um f.h. 12 fyrirtækja, framkvæmdarleyfi til að lengja vegslóða inn í Þröng sem nemur rúmum 966 m.Grenndarkynning framkvæmdarleyfis fór fram gegnum skipulagsgátt með athugasemdarfresti frá 6. nóvember til 6. desember. Óskað var eftir umsögn Skipulagsstofnunar og Umhverfisstofnunar. Skipulagsstofnun telur fyrirhugaða slóðagerð ekki falla undir lög nr. 111/2021.Umsögn frá UST hefur ekki borist.
Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar.
10.
Landeignaskrá - kortasjá, lausar lóðir til úthlutunar
Málsnúmer 202003048
Kynnt er fram nýtt fyrirkomulag lausra lóða á kortasjánni sveitarfélagsins https://www.map.is/hofn/ . Áhugasamir geta nú m.a. sótt lóðarblöð beint úr kortasjánni eða skoðað gildandi skipulagsskilmála.
Lagt fram til kynningar.
11.
Húsnæðisáætlun - Hornafjörður 2024
Málsnúmer 202311080
Verið er að vinna húsnæðisáætlun sveitarfélagsins 2024. Farið yfir stöðu vinnunnar.
Lagt fram til kynningar.
12.
Landeignaskrá: Laxárbakki - uppskipting landeignar, Laxárbakki 3
Málsnúmer 202312099
Helgi Ragnarsson eigandi Laxárbakka L159504 óskar eftir stofnun nýrrar landeignar. Um er að ræða 576 fm lóð samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði, en skv. aðalskipulagi er um landbúnaðarsvæði að ræða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun landeignar. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.